Mánudagur, 23. júní 2008
Eltisvín og sumarstarfsmenn með sólsting
Hvað er að gerast í kollektívum þankagangi á Mogganum í dag?
Ég vona að það sé fremur sólstingur en inntaka kemískra efna.
Sumarstarfsmennirnir eru ekki með heilli há á þessum mánudegi. Logi sem logar í Rússlandi til minningar um fallna hermenn heitir í dag "eldsvoði". Og nú er vegið að saklausri konu í USA.
Konan Anniston fer til Englands að hitta kæróann og Mogginn segir að hún sé að ELTA manninn.
Ef húsband fer á undan mér út í bíl þegar við ætlum eitthvað saman og ég kem í kjölfarið þá mun ég samkvæmt þessu vera að ELTA hann.
Ég get ekki lifað með því. Ég elti ekki karlmenn og allra síst þá fjölmörgu sem ég hef gengið upp að altarinu með. Þeir gætu farið að halda að ég væri heit fyrir þeim. Má bara ekki gerast. Friggings dísaster, hreint út sagt.
En hún Greta systir mín elti mig svo sannarlega hérna í denn. Hún var svo kallað eltisvín krakkinn. Hún er tveimur árum yngri en ég og hún hafði gefið dauðann og djöfulinn í að hleypa mér ekki spönn frá rassi nema að koma með. Og ef ég var á leiðinni eitthvað með vinkonunum þá kom hún eins og þruma úr heiðskíru og sagði einbeitt á svip (og tóninn gaf fyrirheit um að það þýddi ekki einu sinni að reyna að múta henni): "Ég ætla að elta".
Það fór ekkert á milli mála hvað það þýddi.
Reyndar átti þessi sama Greta eftir að læsa sígaretturnar mínar inni í bíl uppi í Heiðmörk þegar ég var úlli. Hún læsti líka lyklana inni í bílnum í leiðinni. þannig að systir hans pabba varð að fara á puttanum í bæinn til að ná í aukasett.
Sú saga átti eftir að verða blóðug og dramatísk og gera það að verkum að ég hef verið í stöðugum meðferðum hjá sálfræðingum síðan. En sú históría kemur seinna, með æviminningunum sko.
Það sem systur manns gera ekki til að halda manni réttu megin við hegðunarstrikið.
Ó ég elska þig mín kæra sys.
Úje
Aniston eltir kærastann | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Ferðalög, Lífstíll, Menning og listir | Breytt s.d. kl. 17:55 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 21
- Frá upphafi: 2986898
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 18
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bláar eyllýar
- Bloggar
- Bækur
- danskar kjötbollur með sósu
- Dómar
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Femínistablogg
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Halloki
- Hamfarablogg
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hneyksli
- Íþróttir
- Jólafár
- Kjaramál
- kvikindiskapur og illt umtal
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Lúkas
- lygasögur
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjálfsdýrkun
- Sjónvarp
- Snúra
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Synt til sigurs
- Synt yfir sundið
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Þvagleggur
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Tenglar
Tónlist
Vinir og fjölskylda
Vinkonur
Ég les alltaf
Netmiðlar
Tónlistarspilari
Bloggvinir
- draumur
- jonaa
- hronnsig
- larahanna
- skessa
- eddaagn
- amman
- annabjo
- annambragadottir
- annaragna
- asthildurcesil
- kolgrima
- birnan
- bjarnihardar
- brjann
- brylli
- christinemarie
- danjensen
- lillagud
- disadora
- einari
- einarorneinars
- emm
- estro
- evabenz
- fifudalur
- garun
- gelgjan
- gunnarggg
- halkatla
- halo
- hildurhelgas
- heidah
- helgamagg
- hildigunnurr
- iaprag
- hlynurh
- hugarfluga
- hugsadu
- ibbasig
- katrinsnaeholm
- ingolfurasgeirjohannesson
- jogamagg
- jara
- jensgud
- katlaa
- krummasnill
- krissa1
- lehamzdr
- ktomm
- laufeywaage
- lauola
- lindalinnet
- madamhex
- maggij
- majaogco
- mariakr
- markusth
- meistarinn
- motta
- nimbus
- olinathorv
- pollyanna
- ragnarfreyr
- ragnhildur
- ringarinn
- rosa
- roslin
- saedis
- sailor
- salkaforlag
- skordalsbrynja
- skrifa
- snar
- soley
- steingerdur
- steinnhaf
- steinunnolina
- stinajohanns
- sunnadora
- svetlana
- thuridurbjorg
- tibet
- tigercopper
- toshiki
- unns
- valgerdurhalldorsdottir
- wonderwoman
- vefritid
- vest1
- bidda
- zeriaph
- killjoker
- sisvet
- gudrununa
- dora61
- possi
- gelin
- silfri
- jyderupdrottningin
- gretaulfs
- sibba
- baldvinj
- stjaniloga
- bokakaffid
- kreppukallinn
- jonerr
- gerdurpalma112
- adhdblogg
- astafeb
- snjolfur
- haddih
- brell
- reisubokkristinar
- little-miss-silly
- baldis
- olofdebont
- kikka
- jarnar
- thorolfursfinnsson
- birnast
- vrkristinn
- leifur
- astroblog
- bjarkey
- manisvans
- siggisig
- nordurljos1
- gunnaraxel
- ragnar73
- sij
- kreppu
- runirokk
- gotusmidjan
- dorje
- slembra
- skari60
- must
- fhg
- aevark
- fridaeyland
- hedinnb
- cakedecoideas
- taraji
- audurproppe
- kollakvaran
- finni
- arnaringvarsson
- samstada
- drum
- gretarogoskar
- tbs
- vistarband
- valdivest
- fingurbjorg
- gustichef
- skulablogg
- andreskrist
- fasteignir
- rognvaldurthor
- helgatho
- gullfoss
- bailey
- jennystefania
- gattin
- annaandulka
- ansy
- gumson
- berg65
- bjarnimax
- brahim
- elin
- gudlaugbjork
- dramb
- gudrunkatrin
- hvilberg
- himmalingur
- ingaragna
- naflaskodun
- kiddirokk
- sigurborgkrhannesdottir
- joklamus
- stjornlagathing
- saemi7
- unnurgkr
Athugasemdir
Já nákvæmlega... fyrir utan allar málvillur eins og þessa þarna í nærbuxnaslys fréttinni:
"Kona sem slasaðist á auga við að fara í nærbuxur sínar hefur kært nærbuxnaframleiðandann, Victorias Secret fyrir að hafa valdið henni gríðarlegs sársauka."
Þá er talað um rollur og beljur eins og ekkert sé sjálfsagðara. Hvað verður það næst... Gömul kelling lenti fyrir bíl og drapst.
Aðalheiður Ámundadóttir, 23.6.2008 kl. 18:04
mjøg ósmekkleg fyrirsøgn, eltir kærastann eins og hún sé bara einhver grúppía...einhver mánudagur i mogganum.....
eigdu gott kvøld.
María Guðmundsdóttir, 23.6.2008 kl. 18:33
Þeir eru búnir að leiðrétta þetta með ELDSVOÐANN Viss um að þú hefur rétt fyrir þér með sólstinginn.
Kveðja inn í bjarta sumarnóttina héðan úr svækjuhita
Ía Jóhannsdóttir, 23.6.2008 kl. 18:58
Skil Gretu sko vel, á þrjár eldri systur sem ég er eiginlega bara alveg nýhætt að elta.
Helga Magnúsdóttir, 23.6.2008 kl. 19:20
Edda Agnarsdóttir, 23.6.2008 kl. 19:47
Knús og bestu kveðjur
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 23.6.2008 kl. 20:34
Systir mín hlýtur að hafa hlaupið hraðar en ég. Stakk mig alltaf af
M, 23.6.2008 kl. 21:11
Þannig að það er staðfest með þessu að ég hef síðustu 15 ár lagt konuna mína í EINELTI!
Himmalingur, 23.6.2008 kl. 21:45
Átti aldrei systur, hvernig virkar það þá?
Anna Guðný , 23.6.2008 kl. 22:09
Huld S. Ringsted, 23.6.2008 kl. 22:44
Ég ætla að reyna að ganga í augun á þér og kvitta eins og allar stelpurnar á blogginu þessa dagana.
Risa,hjartaknús til þín,, knúss,knúss. Stubbaknús og innlitskveðjur.
Hvernig var þetta?
S. Lúther Gestsson, 23.6.2008 kl. 22:46
Minnir bara á að nota tungumálið skynsamlega.
Anna Ólafsdóttir Björnsson, 23.6.2008 kl. 22:46
Anna: Jabb, rétt hjá þér.
Lúther: Ertu lasinn eða bara almennt pirraður? Róa sig.
Anna Guðný: Þá eltirðu mömmu þína bara.
Jenný Anna Baldursdóttir, 23.6.2008 kl. 23:11
Himmi: Skammastín.
Helga: Djöfuls pein hefur þú verið krakki.
Ía: Gott, þetta var fádæma hallærislegt.
Aðalheiður: Ég er í kasti.
Jenný Anna Baldursdóttir, 23.6.2008 kl. 23:13
Sorrý yngsti drengurinn með lungnabólgu og ég búinn að vera heima á 3 sólarhring með hann.
sosúme.
S. Lúther Gestsson, 23.6.2008 kl. 23:18
Lúther: Batakveðjur til barnsins.
Jenný Anna Baldursdóttir, 23.6.2008 kl. 23:23
Þeir elta bara ísbirni í Skagafirðinum. Einhvertíma var sútunarverksmiðja á Sauðárkrók, ef hún er þar enn geta þeir "elt" skinnið af dýrinu.
Sigrún Jónsdóttir, 24.6.2008 kl. 00:04
Hvernig líður þér að hafa alltaf þennan Já kór í kringum þig. Langar þig ekki að fá alvöru komment? Nei sjálfsagt ekki þú ert búin að loka á alla sem hafa rökrætt við þig. Held samt að þú hefðir bara gott af því að rökræða við fólk annað slagið.
Sólveig Þóra Jónsdóttir, 24.6.2008 kl. 01:31
Hvað er að vera "úlli"?
Lára Hanna Einarsdóttir, 24.6.2008 kl. 02:02
Lára Hanna: Unglingur.
Sólveig Þóra: Á hverja hef ég lokað. Og lestu svo kommentin við færslunar og sjáðu að ég fæ kaldari kveðjur en margur annar.
Og svo á maður ekki að rífa kjaft á nóttunni. Það er aldrei sniðugt.
Jenný Anna Baldursdóttir, 24.6.2008 kl. 07:28
Ég hlakka bara til að lesa æviminningar þínar!
Knús í daginn til þín mín kæra
Tína, 24.6.2008 kl. 07:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.