Leita í fréttum mbl.is

Og ég hóta með söng

Ég les nánast aldrei neitt sem ég rekst á um Beckhamgengið.  Þau fara svo ógeðslega í taugarnar á mér með sínu póstkortalíferni, útlitsdýrkun og yfirborðsmennsku.

Ég veit ekki afturenda um hver Mark Whalberg er og ég held að það hafi engu breytt lífi mínu til þessa, að vera ómeðvituð um tilvist mannsins.

En...

Nú er ég að hugsa um að skrifa honum.  Eða hringja í hann og bjóða fram stuðning minn í því vandamáli sem er að hrjá hann.

Hann vill Beckham´s í burtu úr sínu hverfi.  Enginn andskotans friður (fyrirgefið hvað ég blóta, hitinn skiljiði) fyrir hrossabrestunum frá Bretlandi.

Ég gæti farið og sungið fyrir utan hús hjónanna.  Þau eru varla öðruvísi en annað fólk, það taka allir til fótanna þegar ég syng.  Háir sem lágir, trúið mér.

Málið er að ég skil Mark vinninn Wahlberg alveg inn að innstu hjartans rótum.

Hver vill ekki fá Beckham´s á brott?

Þó ekki væri nema vegna skrækrar raddar fótboltakappans.

Þvílíkt törnoff.

Mark segir að Bretarnir vilji þau ekki heim.  Harðneita að taka við fjölskyldunni.  Hm...

Já ég er farin að sofa.

Og ég brest út í söng.


mbl.is Vill losna við Beckhamhjónin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Linda litla

Mark Wahlberg er flottur leikari.... þú verður eiginlega að gúggla hann, þá fattarðu um leið hver hann er.

Skil hann líka alveg..... hver er ekki orðinn þreyttur á Beckham hjónunum ??? Viktoría er líka að kafna úr athyglissýki.

gúdd næt..... rúmið kallar.

Linda litla, 11.6.2008 kl. 00:28

2 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Hann er góður í fótbolta - punktur.

Lára Hanna Einarsdóttir, 11.6.2008 kl. 00:28

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

LH: Og þá er öllum formsatriðum fullnægt - punktur

Linda: Gúggla manninn, jájá.

Jenný Anna Baldursdóttir, 11.6.2008 kl. 00:30

4 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Punkturinn var ekki formsatriði - hann táknaði að þetta væri það eina sem ég sæi gott við Beckham. Hann - ekki hana. Hún er bara... æ, ég vil ekki vera orðljót.

En í tilefni af síðustu færslunni þinni um prestastefnuna og samkynhneigða - horfðu og hlustaðu á þetta.  

Lára Hanna Einarsdóttir, 11.6.2008 kl. 00:37

5 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

mjög flottur leikari Jenný mín. Ef ég væri papparassi þá myndi ég nú frekar hanga á gluggunum hjá honum. Það segi ég satt.

Jóna Á. Gísladóttir, 11.6.2008 kl. 00:37

6 identicon

Þú ert nú meiri andskotans bjáninn.

jói (IP-tala skráð) 11.6.2008 kl. 00:51

7 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég er svo fegin hverjum degi sem ég lifi og kemst hjá því að láta fólk sem snertir ekki líf mitt ekki pirra mig, en stundum langar mann að skrifa svona pistil eins og þú um litlausar persónur.

Ásdís Sigurðardóttir, 11.6.2008 kl. 00:55

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jóna: Ok, ég tek þín orð fyrir því.  Híhí.

Lára Hanna: Ég hlusta oft á þennan náunga.  Hann er frábær.

Jenný Anna Baldursdóttir, 11.6.2008 kl. 00:55

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ásdís: Þetta skiptir mig engu heldur, ég var bara í fíflastuði.

Jenný Anna Baldursdóttir, 11.6.2008 kl. 00:56

10 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ó Jói minn, sá þig ekki, voða ertu lítill.  Ég hélt að ég væri búinn að loka á netfangið þitt aulinn sem ég er, hef óvart opnað fyrir það aftur.  Búin að laga og nú ætla ég að komast að því hver hlerinn er, bara for the hell of it.  LALALA

Jenný Anna Baldursdóttir, 11.6.2008 kl. 00:58

11 Smámynd: Himmalingur

Jenný mín: Er nokkur möguleiki á því að þú fáist til þess að syngja fyrir nágranna minn? Heyrðu og kannski tendó?

Himmalingur, 11.6.2008 kl. 01:20

12 Smámynd: Kristín Henný Moritz

Ójá, ekki vildi ég sjá Beckham's í mínu hverfi...!

Kristín Henný Moritz, 11.6.2008 kl. 02:44

13 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

hva?! ertu að segja mér að lífið snúist ekki um hanakamba Davíðs eða buxnadraktir Viktoríu?

nú kipptirðu grundvelli lífs míns í burtu

Brjánn Guðjónsson, 11.6.2008 kl. 03:34

14 Smámynd: María Guðmundsdóttir

hahahahaha...Brjánn klikkar ekki frekar en fyrri daginn segi eins og einhver..myndi mun frekar hanga á glugganum hjá Mark heldur en theim tharna...yrdi mér ofvida ad hlusta á thau TALA...hvor med sinu nefi ..eda hvad thad nú er sem hann t.d notar..thvi já,biggest turnoff ever...

María Guðmundsdóttir, 11.6.2008 kl. 06:08

15 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Ég sá Victoriu einu sinni í samtalsþætti frá breska sjónvarpinu og ég þekkti hana ekki lengi framan af (kom inn í miðjan þátt) því hún var svo mennsk, brosleit og eðlileg!

En ég verð víst að fara skoða aðal sjarmörinn við hliðina! Bless á meðan.

Edda Agnarsdóttir, 11.6.2008 kl. 08:23

16 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Brjánn góður

Hrönn Sigurðardóttir, 11.6.2008 kl. 08:53

17 Smámynd: Tína

 ég er svp að sjá þetta allt fyrir mér sem þú lýsir í færslunni, og útkoman er vægast sagt skemmtileg.

Njóttu dagsins darling 

Tína, 11.6.2008 kl. 09:00

18 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Brjánn: Þú lætur ekki slá þig út af laginu.  hehe.

Edda: Ég hef heyrt af þessu viðtali.  Hún kom víst þægilega á óvart konan.

Æi þið eruð að drepa mig asnarnir ykkar.

Jenný Anna Baldursdóttir, 11.6.2008 kl. 09:15

19 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Mér finnast þau hjón afskaplega gremjuleg og læt það pirra alveg hikstalaust

Sunna Dóra Möller, 11.6.2008 kl. 09:40

20 identicon

Eins gott að við sungum ekki saman í "denn".Ég get ekki sungið og kost að því EFTIR að af mér rann.Svona er víst að vera frægur og fallegur Kannski kellan syngi bara með okkur.Hún syngur ekkert betur en ég.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 11.6.2008 kl. 09:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.