Leita í fréttum mbl.is

Náttúrleg upplifun án aukaefna - takk fyrir

 MD-6008-2

Mamma æskuvinkonu minnar vann í apóteki í denn.  Hún gaf okkur oft ágætis ráðleggingar um eitt og annað varðandi útlit.

Við fórum að sjálfsögðu ekki eftir því.  Hún mældi nefnilega sterklega með vatni og sápu til andlitsfegrunar, á meðan markaðurinn benti okkur vinsamlegast á meik og varaliti.

Þessi kona var í raun stórkostlegur húmoristi.  Þegar ég og vinkonan ákváðum að við yrðum að eignast síðar hárkollur, sem þá voru ómissandi í  Mekka hátískunnar, London, reyndi hún að telja okkur hughvarf með því að ráðleggja okkur að bera í okkur lúsameðalið grásalva, því það örvaði hárvöxt svo eftir væri tekið.

Ég gæti logið og sagt að við Einsteinarnir hefðum séð í gegnum þetta, en nei, heiðarleikinn skal hafður í fyrirrúmi og auðvitað settum við þennan illalyktandi viðbjóð í hárið á okkur og viti menn; árangurinn var enginn og mamman hló illkvittnum og tryllingslegum nornarhlátri í eldhúsinu.

Þannig að við keyptum hárkollurnar, en það er önnur saga og verður sögð seinna.

Það er hægt að fá ungt fólk og suma fullorðna reyndar til að trúa hverju sem er.

En það er mér fyrirmunað að skilja hvers vegna fólk fer og kaupir ástarlyf, eða afródesíakk (ojabjakk) sem gert er úr körtueitri.  Einhver dó af því.

Eftir hverju er verið að sækjast?  Stinningu?  Göldrum?

Ég er greinilega ekki inni í kynlegri kynlífstískunni.  Hjá mér hefur þetta alltaf verið spurning um náttúrulega upplifun án aukaefna.

Proppsið er alltaf að verða stærri þáttur í kynlífi.  Að tala um að vera opinn og utanáliggjandi og allur í settöppinu -GMG!

Hjá minni kynslóð er þetta inn-út-inn-út-búið-bless!

Það held ég nú.


mbl.is Varað við banvænu ástarlyfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

hahahaha "inn-út-inn- út-búið-bless!" Jössess..........

Hrönn Sigurðardóttir, 25.5.2008 kl. 23:41

2 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

hmmmm án aukaefna? En aukahluta?

Jóna Á. Gísladóttir, 25.5.2008 kl. 23:47

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég sagði það konur, án propps og allra viðbóta ofcourse.

Jenný Anna Baldursdóttir, 25.5.2008 kl. 23:47

4 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Kristín Katla Árnadóttir, 25.5.2008 kl. 23:50

5 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

knús á þig elsku Jenný mín

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 26.5.2008 kl. 00:07

6 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

hahahahaha......tækjaflóran er orðin svo fjölbreytt að það liggur við að fólk þurfi að skrá sig á námskeið til að geta stjórnað herlegheitunum......

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 26.5.2008 kl. 00:33

7 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Verð að segja að ég er sammála þér...

Laufey Ólafsdóttir, 26.5.2008 kl. 00:34

8 Smámynd: Tiger

 Omæ - ég er einmitt að fara að skella inn - tomorrow - smá bloggi og upplýsingum um eitt og annað sem reyndar er bannað en þó nauðsynlegt til að halda góðri kynorku við. Það er nefnilega langbest eins og þú segir - náttúrulegt og "hjálparlaust" eða þannig. Það eru nefnilega þónokkuð margar matartegundir sem nota má til að "stinna" upp líkamsparta, þannig séð.

Vatn án sápu á andlit er allra allra besta meðferðin - en slíkt "andlitsbað" skilar algerlega hrukkulausu andliti uppúr sextugu og áfram - hef ég heyrt og lesið einhvers staðar líka. En hvað veit ég, hrukkulaus kallinn...  knús á þig ljúfust og eigðu góða viku framundan.

Tiger, 26.5.2008 kl. 03:11

9 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

nei nú grenjaði ég úr hlátri

Hólmdís Hjartardóttir, 26.5.2008 kl. 03:58

10 Smámynd: María Guðmundsdóttir

 enga tøfradrykki takk! "án aukahluta og aukaefna" bara! bara hafa thad eins og hundarnir...hahahahaha... Thú ert frábær kona gód! eigdu góda viku. kvedja frá DK.

María Guðmundsdóttir, 26.5.2008 kl. 06:20

11 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Jónína Dúadóttir, 26.5.2008 kl. 07:40

12 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Get því miður ekki svarað þessari spurningu Jenný mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.5.2008 kl. 07:44

13 Smámynd: Linda litla

Sammála.. hvað gerir þetta lyf ?? Galdra ?

Er þetta kannsi eitthvað sem laðar að sér karlmenn ?? Þá væri ég kannski til í smá smakk dúddídei....

Linda litla, 26.5.2008 kl. 08:16

14 identicon

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 26.5.2008 kl. 10:08

15 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þið eruð biluð, ég líka, þannig að við erum öll himnasending.  Eða þannig.
Dúa: Ég játa að ég er að fatta fyrst núna að Hallgerður var að meina þig.  Hélt að Einar hefði mætt í minn stað. Hehe.

Love u guys.

Jenný Anna Baldursdóttir, 26.5.2008 kl. 10:57

16 Smámynd: Laufey B Waage

Mæli með náttúrulegri upplifun án aukaefna.

Laufey B Waage, 26.5.2008 kl. 11:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (10.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 33
  • Frá upphafi: 2985828

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 33
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.