Leita í fréttum mbl.is

Af hverju ekki 20 vandarhögg?

Til að ná góðu andlegu jafnvægi væri kannski ráð að hætta að lesa blöðin.

Henda sjónvarpinu og útvarpinu líka.

Fá sér hauspoka og hoppa á tölvum heimilisins.

Verst að þeir eru ekki lengur með veðurathugunarstöð á Hveravöllum.  Ég hefði getað sótt um.  Þangað koma ekki margir stóran hluta ársins.  Dem.

Ég er hætt að fá eitthvað út úr því að henda mér í vegg.

Fullt af börnum líður illa á Íslandi.

Enn á ný kemur í fréttum að maður sem vinnur með ungmenni og er auðvitað treyst fyrir þeim, hefur verið vikið úr starfi tímabundið meðan málið er rannsakað, vegna óeðlilegs sambands við stúlku undir lögaldri.

Úff.

Og að dómum.

Og svo koma brandaradómar fyrir nauðganir, sifjaspell og annað ofbeldi.  Ekki í neinum tengslum við alvarleika glæpanna og svo sannarlega ekki þungir ef borið er saman við aðra dóma fyrir mismundi glæpi.

En einu sinni var fólk sent á Brimarhólm ævilangt fyrir að stela sér snærisspotta.

Sami hugsunarháttur virðist enn vera við líði.

5 mánaða fangelsi fékk maður í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að borða súpu sem kostaði 250 kr. í verslun í miðborginni og stela matvöru fyrir 769 krónur úr annarri verslun.

Maðurinn er dæmdur til að greiða 185 þúsund í sakarkostnað.

Um að gera að refsa þessum mannfjanda.  Hann rauf skilorð.

En af hverju fær hann ekki að minnsta kosti 20 vandarhögg?

Friggings bíts mí.

Ég ER stödd í fokkings Fellinibíómynd og ég kemst ekki út úr henni.

ARG


mbl.is Stal súpu og fer í fangelsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Æ - ég fékk alveg sting í  þegar ég heyrði þessa frétt.

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 21.5.2008 kl. 19:23

2 Smámynd: Elías Halldór Ágústsson

Ætli hann fái fanganúmerið 24601?

Elías Halldór Ágústsson, 21.5.2008 kl. 19:27

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Vitavörður á Hornbjargi! Ég ætla að sækja um þar

Hrönn Sigurðardóttir, 21.5.2008 kl. 19:28

4 Smámynd: Laufey B Waage

Ekki gleyma stráknum sem var dæmdur í gær fyrir að brjóta spegil á rútu. Hann hefði örugglega sloppið betur ef hann hefði brotið bein í barni.

Laufey B Waage, 21.5.2008 kl. 19:31

5 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Hér varst þú aðeins á undan mér heheh ætlaði að fara að rausa yfir þessu nákvæmlega sama dæmi. 

Ía Jóhannsdóttir, 21.5.2008 kl. 19:31

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Elías: Góður.

Hrönn: Ég sæki um og fæ vinnuna á bjarginu.

Jóhanna: Sárt.

Jenný Anna Baldursdóttir, 21.5.2008 kl. 19:32

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ía og Laufey: Já, það virðist ekki hátt gengið á okkur mannfólkinu.

Jenný Anna Baldursdóttir, 21.5.2008 kl. 19:32

8 Smámynd: Andrea

Skrýtið! Hérna ertu í kasti af því að sundkennari brást því trausti sem honum er gefið gagnvart börnum og bara örfáum mínútum eftir að þú varar við því að barnarverndarnefnd sé kennt um að bregðast því trausti sem hún fær við að tryggja velferð og öryggi þessara sömu barna

Hvað veldur? Ertu ekki í mótsögn við sjálfa þig?

Andrea, 21.5.2008 kl. 19:36

9 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Ekki koma mér af stað í þessum dómamálum. Ég gæti tekið upp á því að henda mér í vegg sem ég hef aldrei á ævinni gert.

Helga Magnúsdóttir, 21.5.2008 kl. 19:56

10 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Andrea: Ég nenni ekki að útskýra frekar hvað ég meina með því sem ég skrifaði um nefndina.  Að sjálfsögðu á hún að fúnkera og það almennilega.  En fólk verður sjálft að taka ábyrgðina líka, og þá var ég að tala um almennt og svo sannarlega ekki í tilfellinu sem allir eru að ræða um í dag.

Jesús.

Jenný Anna Baldursdóttir, 21.5.2008 kl. 20:02

11 Smámynd: Andrea

Jesús hvað?

Þar sem þú færð nokkur þúsund manns inn á síðuna þína á dag hefði maður haldið að þú vildir að það skildi hvað þú værir að meina þegar þú tjáir þig um málefni

Hvaða "fólk" átti að taka ábyrgð í þessu tiltekna máli?
Fárveikur eiturlyfjasjúklingurinn móðir barnanna?
Amma, afi, frænkur og frændur barnanna reyndu að taka ábyrgð með því að reyna að fá barnaverndarnefnd til að sinna skyldum sínum en henni þóknaðist það ekki einhverra hluta vegna

En þú nennir ekki að útskýra þetta þannig að við fáum líklega ekki að vita hvað fólk átti að taka ábyrgð þarna

Andrea, 21.5.2008 kl. 20:09

12 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég nenni ekki að útskýra það hér kona.

Það stendur hér fyrir neðan við færsluna sem þú ert að vísa í.

Jenný Anna Baldursdóttir, 21.5.2008 kl. 20:10

13 Smámynd: Eyrún Gísladóttir

ÆÆ já dómarnir hér á landi eru til skammar einhver með tóman maga að reyna að stela sér í svangin fær nokkuð harðan dóm ekki að ég sé að mæla því bót sem hann gerði en á miðað við dóma sem barnaníðingar fá er þetta náttla fáránlegt.

Hmhm Fólk ætti kannski að lesa allar færslunar vel áður en það tjáir sig .

Eyrún Gísladóttir, 21.5.2008 kl. 20:27

14 Smámynd: Andrea

Ef þú átt við að ég hafi ekki lesið nógu vel Eyrún þá ertu á villigötum- og ættir kannski að lesa aðeins betur;)

Andrea, 21.5.2008 kl. 20:29

15 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Andrea las rétt, ég var ekki nógu greinileg í að skilja á milli tveggja málefna í færslunni.

Þannig var nú það.

Jenný Anna Baldursdóttir, 21.5.2008 kl. 20:32

16 identicon

Svar við kommenti í kommentakerfinu mínu: Ég man ALLTAF eftir þér, þú ert flottust, - en ég kemst ekki yfir að lesa öll þessi blogg og komment hjá þér, þú ert svo assg... aktív ... en ég fylgist með og kíki inn á hverjum degi.

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 21.5.2008 kl. 21:07

17 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Takk Anna mín, var bara að kanna reflexana.  Sakna þín grimmt.

Jenný Anna Baldursdóttir, 21.5.2008 kl. 21:59

18 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Góður pistill hjá þér kona - að vanda.

Marta B Helgadóttir, 21.5.2008 kl. 22:46

19 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

Djö....ands....helv.....vitleysa er þetta dómskerfi...ég er smátt og smátt að missa trúna á þetta samfélag sem við lifum í....perrar og nauðgarar fá sýnishorn af dómum á meðan minniháttar afbrot þýðir allt að 5 mánaða fangelsi, ofan á allt vill hluti þjóðarinnar ekki taka á móti flóttafólki....frusssssssss
 

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 21.5.2008 kl. 22:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband