Leita í fréttum mbl.is

Sunnudagsmorgun í eintómri hamingju

20080515145024_11

Ég vaknaði kl. átta í morgun við að lítil stúlka ýtti við mér og sagði; "amma koddu fram".  Þarna stóð hún skælbrosandi og til í að takast á við daginn.

Og við fórum fram og hún horfði á "baddneddni" og borðaði morgunmatinn.

Á svona dögum verð ég "high" af hamingju.  Besta víman er af eigin safa krakkar mínir.

Og svo fóru "sumir" í smá óþekktarham.

Amman: Jenný villtu hætta að príla svona, það getur verið hættulegt.

Jenný (nýbúin að læra hugtakið aldrei): Nei, ég hætti þí aldrei, bara alls ekki.

Amman: Amma verður reið ef þú hlýðir ekki, ég vill ekki að þú meiðir þig.

Jenný: Alltílaj, þú mátt vera reið, ég leikir mér bara á meðan.W00t

Amman gafst upp.

Og við stefnum á bíóferð.  Fílamyndina segir Jenný en ég viðurkenni að ég hef ekki hugmynd um hvaða mynd það er og vona bara í alvöru að hún sé ekki bönnuð börnum.

Sé ykkur seinna í dag.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 18.5.2008 kl. 11:28

2 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Bjútífúl tjæld! Ég öfunda þig - fara í bíó með barnið....

Edda Agnarsdóttir, 18.5.2008 kl. 12:01

3 Smámynd: Bjarndís Helena Mitchell

Góða skemmtun í bíó í dag. Minn litli er að fara, án mín að vísu, hefði alveg viljað komast með honum sjálf.

Bjarndís Helena Mitchell, 18.5.2008 kl. 12:14

4 Smámynd: Þröstur Unnar

Kræst hvað maður kannast við þetta.

Flott Buffið hennar.

Þröstur Unnar, 18.5.2008 kl. 12:16

5 Smámynd: Hugarfluga

Þú ert svo dugleg að vera með og sinna þessari dúllu. Æðisleg amma, Jenný Anna. 

Hugarfluga, 18.5.2008 kl. 13:35

6 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Mig langar að leiða Lottu og Jenny Unu saman

Jóna Á. Gísladóttir, 18.5.2008 kl. 13:43

7 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Þetta er bara toppurinn á tilverunni, þau eru bara stórkostleg.
einn daginn sat ég hér að vanda, heyrði smáarga rödd segja ég ætla ekki inn til ömmu, nú hvert þá, ég ætla á Aparóló, en þú mátt ekki fara ein þangað, jú ég er ekki lítil ég er stór, allt í lagi farðu þá bara þá má fólkið þarna niðurfrá eiga þig, mamman kemur inn, litlu síðar litum við út þá hafði hún ekki þorað niður eftir, og strunsaði síðan upp alla innkeyrsluna frekar stór upp á sig.
Vonandi skemmtir þú þér vel í bíóinu.
              Kveðja Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 18.5.2008 kl. 15:20

8 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Horton!!! Hún er æði!

Heiða B. Heiðars, 18.5.2008 kl. 15:24

9 Smámynd: María Guðmundsdóttir

  oh hvad thau eru heppin ad eiga svona ømmu eins og thig njóttu bíóferdarinnar og thid bádar. 

María Guðmundsdóttir, 18.5.2008 kl. 15:39

10 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Kjútípæ þessi stelpa svo ekki verði meira sagt!

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 18.5.2008 kl. 16:13

11 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Sko myndin var frábær.  Þriggja ára daman sat grafkyrr og intúitt allan tímann.  Amman þolir ekki hlé.  Ég skil ekki þessi hlé í mynd sem er tæpa 90 mínútur.

Femýnyzta-amman sleppur ennþá, barn ekki farið að spyrja um sollis.  Thank you very much.

Jenný Anna Baldursdóttir, 18.5.2008 kl. 17:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 54
  • Frá upphafi: 2985885

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.