Föstudagur, 16. maí 2008
Ég var einu sinni fitubolla
Ég var einu sinni feit, ég viðurkenni það. Það var tímabil sem náði yfir 2-3 ár og orsakaðist af mikilli vín- og bjórdrykkju og svo bruddi ég lyf. Ég alki? Jájá, löngu ljóst og ekkert um það að segja. Og svo fór ég í meðferð, fékk sykursýki og nærri því drapst úr neyslu og lopinn sem hafði sest utan á mig hvarf á methraða. Síðan hef ég verið með eðlilegt holdafar.
Ég var svo rugluð á fitubollutímanum að ég minnist þess ekki að hafa verið að taka upp of mikið súrefni og stuðla að heví loftlagsbreytingum, kannski vegna þess að ég fór helst ekki út úr húsi á meðan tímabilið varði. Þannig að það er ekki hægt að sekta mig eins og hverja aðra eiturspúandi verksmiðju.
En ég er ekki frá því að fólk sem er ekki í norminu, er stærra en einhverjir kílóastuðlar segja til um, sé beinlínis lagt í einelti. Það er ekki langt síðan að það var önnur svipuð frétt um "fitubollur-að-eyðileggja-plánetuna-frétt" í Mogganum.
Auðvitað er bara gott mál að fólk breyti um lífstíl, borði heilbrigðan mat og drekki minna bús, ef það er á annað borð að hlaða utan á sig heilu hillusamstæðunum. En þetta sjúklega kílóatal skil ég ekki.
Ég er auðvitað ekki að tala um fólk sem er með offitusjúkdóma og þarf fleiri hektara undir afturendann á sér, auðvitað ekki. En það er verið að ráðast að fólki um leið og það bætir við sig einhverjum kílóum.
Nú eru þessir sérfræðingar í Bretlandi (2 stk.), örugglega bældir í æsku og gátu ekki kúkað, að troða loftlagsbreytingum jarðar upp á feitlagið fólk. Fari þeir og veri.
Súmíbítmíbætmí.
Offita stuðlar að loftslagsbreytingum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Lífstíll, Stjórnmál og samfélag, Vísindi og fræði | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 16
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bláar eyllýar
- Bloggar
- Bækur
- danskar kjötbollur með sósu
- Dómar
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Femínistablogg
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Halloki
- Hamfarablogg
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hneyksli
- Íþróttir
- Jólafár
- Kjaramál
- kvikindiskapur og illt umtal
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Lúkas
- lygasögur
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjálfsdýrkun
- Sjónvarp
- Snúra
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Synt til sigurs
- Synt yfir sundið
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Þvagleggur
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Tenglar
Tónlist
Vinir og fjölskylda
Vinkonur
Ég les alltaf
Netmiðlar
Tónlistarspilari
Bloggvinir
- draumur
- jonaa
- hronnsig
- larahanna
- skessa
- eddaagn
- amman
- annabjo
- annambragadottir
- annaragna
- asthildurcesil
- kolgrima
- birnan
- bjarnihardar
- brjann
- brylli
- christinemarie
- danjensen
- lillagud
- disadora
- einari
- einarorneinars
- emm
- estro
- evabenz
- fifudalur
- garun
- gelgjan
- gunnarggg
- halkatla
- halo
- hildurhelgas
- heidah
- helgamagg
- hildigunnurr
- iaprag
- hlynurh
- hugarfluga
- hugsadu
- ibbasig
- katrinsnaeholm
- ingolfurasgeirjohannesson
- jogamagg
- jara
- jensgud
- katlaa
- krummasnill
- krissa1
- lehamzdr
- ktomm
- laufeywaage
- lauola
- lindalinnet
- madamhex
- maggij
- majaogco
- mariakr
- markusth
- meistarinn
- motta
- nimbus
- olinathorv
- pollyanna
- ragnarfreyr
- ragnhildur
- ringarinn
- rosa
- roslin
- saedis
- sailor
- salkaforlag
- skordalsbrynja
- skrifa
- snar
- soley
- steingerdur
- steinnhaf
- steinunnolina
- stinajohanns
- sunnadora
- svetlana
- thuridurbjorg
- tibet
- tigercopper
- toshiki
- unns
- valgerdurhalldorsdottir
- wonderwoman
- vefritid
- vest1
- bidda
- zeriaph
- killjoker
- sisvet
- gudrununa
- dora61
- possi
- gelin
- silfri
- jyderupdrottningin
- gretaulfs
- sibba
- baldvinj
- stjaniloga
- bokakaffid
- kreppukallinn
- jonerr
- gerdurpalma112
- adhdblogg
- astafeb
- snjolfur
- haddih
- brell
- reisubokkristinar
- little-miss-silly
- baldis
- olofdebont
- kikka
- jarnar
- thorolfursfinnsson
- birnast
- vrkristinn
- leifur
- astroblog
- bjarkey
- manisvans
- siggisig
- nordurljos1
- gunnaraxel
- ragnar73
- sij
- kreppu
- runirokk
- gotusmidjan
- dorje
- slembra
- skari60
- must
- fhg
- aevark
- fridaeyland
- hedinnb
- cakedecoideas
- taraji
- audurproppe
- kollakvaran
- finni
- arnaringvarsson
- samstada
- drum
- gretarogoskar
- tbs
- vistarband
- valdivest
- fingurbjorg
- gustichef
- skulablogg
- andreskrist
- fasteignir
- rognvaldurthor
- helgatho
- gullfoss
- bailey
- jennystefania
- gattin
- annaandulka
- ansy
- gumson
- berg65
- bjarnimax
- brahim
- elin
- gudlaugbjork
- dramb
- gudrunkatrin
- hvilberg
- himmalingur
- ingaragna
- naflaskodun
- kiddirokk
- sigurborgkrhannesdottir
- joklamus
- stjornlagathing
- saemi7
- unnurgkr
Athugasemdir
Frá og með þessari mínútu er ég farinn í megrun.
Númi (IP-tala skráð) 16.5.2008 kl. 16:43
Númi: Nú fékk ég hláturskast. Ætlaði ekki að hræða þig
Jenný Anna Baldursdóttir, 16.5.2008 kl. 16:53
Iss ég vildi fá eitthvað af þessari fitu.
Kristín Katla Árnadóttir, 16.5.2008 kl. 17:00
HAHAHA!... bældir og gátu ekki kúkað...ahh sji.. Þetta bjargaði deginum!
En, verður maður ekki að finna einhvern til að kenna um allt? Er ekki feitabollur alveg jafn góðir kandídatar og hver annar?
Signý, 16.5.2008 kl. 17:06
vel ad ordi komist eins og alltaf .. ég hlýt ad menga thá eitthvad adeins..thótt ég taki ekki hektara undir rakkatid á mér..en alveg ørugglega eitthvad yfir fjandans "studlinum" ef farid er eftir thvi
María Guðmundsdóttir, 16.5.2008 kl. 17:10
Það á að banna konur yfir 70 kg.
Þröstur Unnar, 16.5.2008 kl. 17:11
Þröstur: Það á að banna fordómapoka eins og þig.
María: Góð!
Signý: Hehe, þú veist hvað ég meina.
Katla: Nú er bara að ná heilsu.
Jenný Anna Baldursdóttir, 16.5.2008 kl. 18:07
OMG .. dásamleg ofurfiddubollerían þín þarna uppi! Skemmtileg færsla Jenný, like always. Gruna að ég þurfi að borga sekt fyrir að draga í mig mengun hinna þar sem ég er ekki feiddabolli. Ég er sammála þér að svona lagað er hálfgert einelti, ef ekki bara margfallt elti.
Samt spurning um hvort þeir fari ekki bráðum að finna eitthvað að okkur hinum "æskilega" þungu og einelta okkur líka.. hvað þá með hina "óæskilega" grönnu/horuðu? Sumir vita aldrei hvar strikið er sko .. Knús í helgina þína mín kæra og hafðu það ljúft!
Tiger, 16.5.2008 kl. 18:16
Snilldar færsla.
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 16.5.2008 kl. 18:59
Þetta er bein þýðing á frétt sem var áðan á forsíðu BBC. Þetta er mjög stuðandi fréttamennska. Þetta sýnir líka í hnotskurn hve pólitísk vísindi eru - sú rannsóknarspurning sem vísindamenn leggja upp með litar allt þeirra starf. Ef útreikningafræðingar fara að reikna út kolefnajöfnunargetu fólks eftir yfirborðsmassa og orkuþörf þá er það spurning sem svarar sér sjálf um leið og hún er orðuð.
Það eru gríðarlegir fordómar gagnvart feitu fólki og heimurinn er svo gegnsýrður að BBC hikar ekki við að koma með svona frétt og vísindamenn finnst það ekki varða við vísindasiðferði að setja rannsókn sína svona fram. Mogginn bara endursegir svo BBC og Stebbifr endursegir svo bara Moggann.
En mér finnst vænt um að heyra að það hafi fleiri en mér blöskrað þessi frétt og þeir fordómar sem í henni fólust.
Salvör Kristjana Gissurardóttir, 16.5.2008 kl. 19:30
....en hver endursegir Stebbafr?
Hrönn Sigurðardóttir, 16.5.2008 kl. 19:37
bestu óskir um góða helgi
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 16.5.2008 kl. 20:55
Vó, nýtt lúkk Dúa. Ertu að fara í partý?
Þröstur Unnar, 16.5.2008 kl. 22:15
Þú fitubolla, það get ég ekki ímyndað mér. - En hin fræðilega úttekt þín á þessum tveim Bresku sérfræðingum,er algjör snilld, og hin mikilfenglega myndræna lýsing þín á eymdarlífi æskuára þeirra, mun ég aldrei gleyma. Þeir eiga alla mína samúð. Þakka þér fyrir að, fræða mig um þetta.
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 16.5.2008 kl. 22:25
ég minnist ekki að hafa seð þig feita ,,alltaf svo pen kona,,en ætli maður passi sig ekki á þessu blessaði nammi ,
lady, 16.5.2008 kl. 23:25
Það ætti að fita Þröst. Dúa er bara mega babe á myndinni hér að ofan, þú ert bara smávaxin held ég, hef ekki séð þig, þú ættir að sjá mig 1.85 cm og 90 kíló, hvenmaður í lagi þar á ferð og læt engan segja mér að ég mengi heiminn. Það er algjörlega mér að þakka að sólin nennir að skína
Ásdís Sigurðardóttir, 17.5.2008 kl. 00:28
Hahahahaha ég er í hláturskasti....bældir í æsku og gátu ekki kúkað..... vó ég er með svo þroskaðan húmor er að kafna yfir kúkabrandara haha
frábær færsla....
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 17.5.2008 kl. 01:20
Bjarndís Helena Mitchell, 17.5.2008 kl. 09:33
Ég hebbði nú haldið að vandamál offitusjúklinga fælust í öðru og meiru en aukinni eldsneytisnotkun. Úr öllu má nú búa til áhyggjuefni.
Laufey B Waage, 17.5.2008 kl. 17:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.