Föstudagur, 16. maí 2008
Að myrða í matinn
Skjálftinn í Kína er harmleikur, svo skelfilegur harmleikur að manni fallast hendur.
Sama gildir um ástandið á Búrma.
Þolendur Róberts Árna Hreiðarsonar, kynferðisafbrotamanns og Guðmundar í Bryginu, kollega hans, eru að ganga í gegnum harmleik. Það er sorglegt og satt.
Hungur, sjúkdómar, mansal og ofbeldi á konum og börnum eru harmleikir, svo stórir að það er erfitt að leiða hugann að þeim, það hreinlega nístir í sálina.
Svo er það náttúran. Fæðupíramídinn. Þar eru engir harmleikir í gangi hvað mig varðar. Hver þrífst á öðrum, allir þurfa að borða.
Mér finnst þessi taugaveiklunarfrétt um harmleik svananna á Álftanesi sem misstu eggin sín í kjaftinn á mávi ekki nálgast þá merkingu sem ég legg í harmleik. Hún er allt að því fyndin þegar hún er sett svona upp.
Ég hélt að alvarlegt slys hefði orðið við Bakkatjörn þegar ég sá þessa frétt.
Auðvitað eru svanir krúttlegir og mávar asnalega uppáþrengjandi og óheflaðir andskotar.
En vó, á ekki að efna til minningarathafnar í kirkjunni á nesinu bara, til að minnast eggjanna sem mávarnir úðuðu í sig?
Veita álftunum áfallahjálp?
Hefja söfnun til handa eggjalausu foreldrunum?
Ég get svarið það, hvernig væri að hemja dramatíkina? Náttúrulögmálin eru ekki harmleikur. Fjandinn fjarri mér.
Stundum er eins og maður sé staddur í bíómynd eftir Fellini.
Farin að murka lífið úr litlu lambi sem á slatta af systkinum og foreldra á besta aldri.
Muhahaha
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Halloki, Lífstíll, Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:00 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 21
- Frá upphafi: 2986898
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 18
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bláar eyllýar
- Bloggar
- Bækur
- danskar kjötbollur með sósu
- Dómar
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Femínistablogg
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Halloki
- Hamfarablogg
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hneyksli
- Íþróttir
- Jólafár
- Kjaramál
- kvikindiskapur og illt umtal
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Lúkas
- lygasögur
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjálfsdýrkun
- Sjónvarp
- Snúra
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Synt til sigurs
- Synt yfir sundið
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Þvagleggur
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Tenglar
Tónlist
Vinir og fjölskylda
Vinkonur
Ég les alltaf
Netmiðlar
Tónlistarspilari
Bloggvinir
- draumur
- jonaa
- hronnsig
- larahanna
- skessa
- eddaagn
- amman
- annabjo
- annambragadottir
- annaragna
- asthildurcesil
- kolgrima
- birnan
- bjarnihardar
- brjann
- brylli
- christinemarie
- danjensen
- lillagud
- disadora
- einari
- einarorneinars
- emm
- estro
- evabenz
- fifudalur
- garun
- gelgjan
- gunnarggg
- halkatla
- halo
- hildurhelgas
- heidah
- helgamagg
- hildigunnurr
- iaprag
- hlynurh
- hugarfluga
- hugsadu
- ibbasig
- katrinsnaeholm
- ingolfurasgeirjohannesson
- jogamagg
- jara
- jensgud
- katlaa
- krummasnill
- krissa1
- lehamzdr
- ktomm
- laufeywaage
- lauola
- lindalinnet
- madamhex
- maggij
- majaogco
- mariakr
- markusth
- meistarinn
- motta
- nimbus
- olinathorv
- pollyanna
- ragnarfreyr
- ragnhildur
- ringarinn
- rosa
- roslin
- saedis
- sailor
- salkaforlag
- skordalsbrynja
- skrifa
- snar
- soley
- steingerdur
- steinnhaf
- steinunnolina
- stinajohanns
- sunnadora
- svetlana
- thuridurbjorg
- tibet
- tigercopper
- toshiki
- unns
- valgerdurhalldorsdottir
- wonderwoman
- vefritid
- vest1
- bidda
- zeriaph
- killjoker
- sisvet
- gudrununa
- dora61
- possi
- gelin
- silfri
- jyderupdrottningin
- gretaulfs
- sibba
- baldvinj
- stjaniloga
- bokakaffid
- kreppukallinn
- jonerr
- gerdurpalma112
- adhdblogg
- astafeb
- snjolfur
- haddih
- brell
- reisubokkristinar
- little-miss-silly
- baldis
- olofdebont
- kikka
- jarnar
- thorolfursfinnsson
- birnast
- vrkristinn
- leifur
- astroblog
- bjarkey
- manisvans
- siggisig
- nordurljos1
- gunnaraxel
- ragnar73
- sij
- kreppu
- runirokk
- gotusmidjan
- dorje
- slembra
- skari60
- must
- fhg
- aevark
- fridaeyland
- hedinnb
- cakedecoideas
- taraji
- audurproppe
- kollakvaran
- finni
- arnaringvarsson
- samstada
- drum
- gretarogoskar
- tbs
- vistarband
- valdivest
- fingurbjorg
- gustichef
- skulablogg
- andreskrist
- fasteignir
- rognvaldurthor
- helgatho
- gullfoss
- bailey
- jennystefania
- gattin
- annaandulka
- ansy
- gumson
- berg65
- bjarnimax
- brahim
- elin
- gudlaugbjork
- dramb
- gudrunkatrin
- hvilberg
- himmalingur
- ingaragna
- naflaskodun
- kiddirokk
- sigurborgkrhannesdottir
- joklamus
- stjornlagathing
- saemi7
- unnurgkr
Athugasemdir
Og hvað ætlar þú að myrða þér í matinn í dag heillin góð ?
Jónína Dúadóttir, 16.5.2008 kl. 09:52
Jamm - væri ekki rétt að taka smá Lúkas á þetta?
Hrönn Sigurðardóttir, 16.5.2008 kl. 10:17
Málið er bara að það er ekkert svæsið að gerast á Íslandi, af hverju þá ekki setja eina sorgarfrétt af eggjamorðunum í Bakkatjörn.... HEY. Góð hugmynd af nafni á morðsögu "eggjamorðin í Bakkatjörn"
Hafðu það gott snúllí og góða helgi.
Linda litla, 16.5.2008 kl. 10:40
Hahahaha nú skellti ég uppúr heldur betur. Ferlega skemmtileg lesning. Ég hélt einmitt líka að að það hefði eitthvað alvarlegt komið fyrir þegar ég sá fyrirsögnina. En já .. svona er fólki misjafnlega gáfum gætt
Megaknús á þig Jennsla.. hafðu það gott um helgina.
Guðrún B. (IP-tala skráð) 16.5.2008 kl. 11:35
Þessi fyrirsögn þýddi eitthvað allt annað fyrir mig og örugglega marga fleiri. Þegar ég var barn og bjó út á Nesi þá drukknuðu tveir jafnaldrar mínir í Bakkatjörn. Það var það fyrsta sem mér datt í hug og það var ekki notaleg tilfinning.
Þórdís Guðmundsdóttir, 16.5.2008 kl. 11:50
Ég myndi trúa samlöndum mínum til þess að fjölmenna í kertafleytingar eins og gert var í svokallaða lúkas máli.....en að hjálpa flóttafólki..neeeeei
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 16.5.2008 kl. 12:16
Þórdís: Ég er sammála þér og ykkur öllum. Ég var viss um að einhver hefði druknað í tjörninni. Harmleikir þýða yfirleitt skelfileg slys.
Takk fyrir komment.
Jenný Anna Baldursdóttir, 16.5.2008 kl. 12:17
Krumma: Sammála. Ég get ekki annað en hlegið. Sé liðið í anda við kertafleytingu á Bakkatjörn.
Jenný Anna Baldursdóttir, 16.5.2008 kl. 12:34
Á maður ekki að deyja úr samviskubiti yfir öllum eggjunum sem maður hefur borðað frá elsku hjartans hænukrúttunum?
Laufey B Waage, 16.5.2008 kl. 14:33
Laufey: Segðu, eða öllum eggjunum sem maður myrðir við baksturinn?
Jenný Anna Baldursdóttir, 16.5.2008 kl. 16:17
sammála
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 16.5.2008 kl. 16:33
Ójá, sammála því að oft á tíðum er mjög yfirdrifin dramatík í fréttafluttningi af hinum undarlegustu smáatriðum, svei mér þá.
Tiger, 16.5.2008 kl. 17:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.