Leita í fréttum mbl.is

Munið þið eftir honum?

Munið eftir Hleifnum?  Ómægodd, hvað það var mikið stuð 197ogeitthvað.

Ég bjó í Keflavík.  Já, ég veit það, maður lætur lokka sig út í allan fjandann.  Þetta var, nánar tiltekið, vegna eins hinna mýmörgu hjónabanda minna, sem ég hafnaði suður með sjó.   Ég hef farið út um allt land, vítt og breitt í makavali, og endaði svo í Reykjavík 101 en það er önnur saga.

Í partíum í Keflavík á þessum árum var drukkinn vodki og viskí og twentyone.  Ég er nú hrædd um það.  Það fer um mig ef ég hugsa um bragð og lykt.  Bölvaður viðbjóður.

Og allir voru fullir, síendurtakandi sjálfa sig, röflandi leyndarmál, stelpur grátandi á trúnó inn á klósetti, alveg: "Mér hefur alltaf líkað ógeðslega vel við þig" og svona stöff, þið vitið.  Maskarinn niður á kinnar og allir í mígandi gleði.

Og svo spiluðu nördarnir Smokie (ég er ekki að djóka) "Living next door to Alice" en þarna voru niðurlægingartímar í músík hvað sárastir.  Og svo Meetloaf.  "Paradise by the dashboard light."

Og ég eins og allir hinir plebbarnir.  Mig minnir að ég hafi hríslast um í villtum dansi, eins og enginn væri morgundagurinn.  Fannst Hleifurinn æði. 

Svo kom hann, ég sá hann ekki og svo fór hann og mér gat ekki staðið meira á sama.

Ég fékk ógeð.  Hann minnir mig á hálftóm brennivínsglös þar sem sígóstubbar flutu og var sú sjón sem stundum blasti við manni daginn eftir partý.  Lyktin var súr og sjúskuð.

Og ég sver að það þótti engum neitt athugavert við fyrirkomulagið.  Svo er verið að tala um að heimur versnandi farið.

En fáið ykkur villtan snúning fyrir svefninn.

Meatloaf when you are out, stay out.


mbl.is Meat Loaf aldrei aftur til Íslands?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brynja Hjaltadóttir

Sama er mér þó þessi keppur komi ekki hingað aftur. Hann getur bara snýtt sér annarsstaðar mín vegna. Atttsssjú

Brynja Hjaltadóttir, 8.5.2008 kl. 23:40

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

brrrr...... um mig hríslast ógeðshrollur!!

Hrönn Sigurðardóttir, 8.5.2008 kl. 23:43

3 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

Það mætti halda að við hefðum verið í sömu partýum en sennilega hafa þau bara öll verið eins á þessum árum......twentyone

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 8.5.2008 kl. 23:45

4 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

....allir í mígandi gleði....

Jóna Á. Gísladóttir, 8.5.2008 kl. 23:47

5 Smámynd: Heiða  Þórðar

...bíddu bíddu ertu ekki aðeins örlítið eldri en ég?

Heiða Þórðar, 8.5.2008 kl. 23:50

6 identicon

Heyrðu góða mín, ertu eitthvað að dizza Keflavíkina ??  *GRENJ* minn uppáhaldsstaður a Íslandi.

Veit ekki alveg hvernig ég á að taka þessu. En þessi lög, living next door og hleifahlunkinn, tek ég reglulega í Karokee og þyki góð á því sko.. !!

Loveja.

Guðrún B. (IP-tala skráð) 8.5.2008 kl. 23:54

7 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Ég fékk nú bara létt nostalgíukast við að spila þetta lag. Ég á allt aðrar og betri minningar um það og mörg önnur lög Hleifsins. Bara tóm sæla, dans og söngur. Hitt er svo annað mál að ég hafði aldrei hugmynd um hvernig karlinn leit út og var slétt sama. Það kom svo margt gott frá honum - helvíti kröftugt rokk.

Svona er nú upplifunin misjöfn hjá fólki. 

Lára Hanna Einarsdóttir, 8.5.2008 kl. 23:56

8 Smámynd: Brynja skordal

Get nú alveg komist í stuð af þessum lögum ennþá í dag en twentyone þvílíkur ógeðisdrykkur æl og já vodki líka

Brynja skordal, 9.5.2008 kl. 00:01

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Lára Hanna: Upplifunin var flott þá, en ekki lengur.

Jenný Anna Baldursdóttir, 9.5.2008 kl. 00:07

10 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Jújú, mér finnst svona kröftugt rokk ennþá rosalega skemmtilegt. En ég hef enga sérstaka þörf á að horfa líka og hef aldrei haft - bara hlusta og dansa. 

Lára Hanna Einarsdóttir, 9.5.2008 kl. 00:11

11 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Fékk nett nostalgíukast. En í mínum partíum voru Ísland úr NATO og rauðsokkuplatan spiluð. Áfram stelpur hér er höndin tengjum saman tryggðarböndin verum ekki deigar dansinn í. Ef baráttu að baki áttu berðu höfuð hátt og láttu o.s.frv. o.s.frv.

Helga Magnúsdóttir, 9.5.2008 kl. 00:34

12 Smámynd: Tiger

Ég veit svo sem hver karlinn er, en ég er ekki hrifinn af tónlistinni hans - né honum held ég bara. Mínar ljúfustu minningar úr den eru með Bob Marley lögum sérstaklega - en það eru líka mínar verstu minningar sem tengjast honum - svo ég er í vandræðum.

En, satt og sannarlega rétt - fari kjöthleifurinn - og veri - mér og mínum að meinalausu.

Stórt knús á þig samt mín ljúfan blíða og óútreiknanlega.

Tiger, 9.5.2008 kl. 03:13

13 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Alveg missti ég af öllum svona partíum, en sýninst  á lýsingunum að ég megi bara vera fegin

Jónína Dúadóttir, 9.5.2008 kl. 06:04

14 Smámynd: Ester Júlía

Þetta er auðvitað snilldarinnar lag.  Hef þó aldrei verið aðdáandi. Sá hann ekki þegar hann kom og ekki grenja ég það að hann þoli ekki kuldann.  Takk fyrir myndbandið, rifjar ýmislegt upp..hehe..

Ester Júlía, 9.5.2008 kl. 08:17

15 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Fílaði aldrei þenna kjöthleif svo mér er slétt sama hvar hann dvelur í heiminum.  Annars man ég vel eftir svona trúnó á klóinu hehehe

Góðan dag vinkona

Ía Jóhannsdóttir, 9.5.2008 kl. 08:25

16 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Góðan daginn öll sömul.

Hallgerður: Nú er þungt yfir Gólan líka.

Allir í vegg.

DJÓK

Jenný Anna Baldursdóttir, 9.5.2008 kl. 08:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 6
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 2985795

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 43
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.