Leita í fréttum mbl.is

Smáa letrið

Ég skil ekki tryggingarfélög.  Er örugglega ekki ein um það, en það er sama.  Ég er ein af þeim sem nenni aldrei að lesa smáa letrið og er því þægilegur viðskiptavinur alls staðar þar sem gerðir eru samningar.

TM segir að skemmdirnar á bíl Sturlu séu ekki sitt mál.  Halló!  Bílinn stendur kyrr á löglegum stað og hann verður fyrir "óeirðum" og tryggingafélagið yppir bara öxlum.  Ísskápur springur bara eins og ekkert sé sjálfsagðara vestur í bæ og tryggingarnar borga það ekki heldur.

Þarf maður að kaupa ísskápasprengitryggingu?

Eða kjurrálöglegustæðiogbíllinnerskemmduróvartíóeirðumþannigtryggingu?

Þarf ég að liggja lárétt ef ég fæ bók í hausinn eða má ég vera standandi í báðar?

Verð ég að vera í kraftgallanum, með endurskinsmerki, lambhúshettu og eldingavara ef ég fæ loftstein í hausinn?

Ég held að ég fari og rýni í smáa letrið á tryggingarsamningnum.  Kannski þarf ég að kaupa mér óeirðatryggingu.

Helvítis óöryggi.

Gleðilegan mánudag addna.

Og Sturla var flottur á göngunni í dag.  Ætli maður verði ekki að fara að labba með manninum?

Einn fyrir alla - allir fyrir einn.

Nú brest ég á með söng.  Maístjarnan er vel við hæfi.


mbl.is Sturla: Ég berst fyrir ykkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Já, Jenný það er þetta með smáa letrið hjá tryggingafélögunum, og ef það stendur ekki í smáa letrinu sem þeir vitna stöðugt í , þá er nýjasta skýringin að þetta sé "þeirra vinnuregla"!

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 27.4.2008 kl. 22:41

2 Smámynd: Heiður Þórunn Sverrisdóttir

Ég er ein af þeim sem er afskaplega löt að lesa smáletrið maður verður að fara aðtaka sig á sínist mér.

Sturla var flottur í göngunni í dag... 

Heiður Þórunn Sverrisdóttir, 27.4.2008 kl. 22:47

3 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

æ, þetta var heldur einmanaleg þrautaganga hjá honum í dag. hel eigi betur við að segja; einn fyrir báða - báðir fyrir einn

Brjánn Guðjónsson, 27.4.2008 kl. 22:54

4 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Ó hve létt er þitt skóhljóð ......bonna notte !

Sunna Dóra Möller, 27.4.2008 kl. 22:59

5 Smámynd: Þuríður Björg Þorgrímsdóttir

Þess vegna þráast ég við að kaupa líf-, sjúkdóma-, launa- og allskonarvitleysistryggingar. Það er ekkert sem tryggir það að maður fái neitt útborgað úr þeim þegar á reynir. Auk þess finnst mér að ríkið eigi að sjá um þessa hluti, en ekki að þeir efnameiri hafi meiri möguleika á að vera öruggir í lífinu (eða dauðanum) en þeir sem ekki hafa efni á að kaupa sér tryggingar

Þuríður Björg Þorgrímsdóttir, 27.4.2008 kl. 22:59

6 identicon

Þetta með smáaletrið. Vissuð þið að ef þið eruð með þekktann sjúkdóm (segjum lugnaþembu, MS) og kaupið ferð til útlanda. Svo verðið þið fyrir því að þið fáið "kast" og komist ekki í ferðina. Þá skiptir engu máli hvernig tryggingu þið eruð með, hvaða/hvernig kort var notað eða hvað, þið fáið ekki ferðina endurgreidda!

Spáið í þessu og spyrjist fyrir. 

Árni B. (IP-tala skráð) 27.4.2008 kl. 23:59

7 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

hahaha snilldarfærsla. Ísskápsfólkið var með mér á árshátíð í gær. Maðurinn var látinn segja söguna í míkrafóninn. hehe

Jóna Á. Gísladóttir, 28.4.2008 kl. 00:03

8 Smámynd: Heiða  Þórðar

Gleðilegan mánudag addna sjálf.

Heiða Þórðar, 28.4.2008 kl. 00:11

9 Smámynd: Tiger

Ef blessaður ísskápurinn hefði sprungið inni hjá mér þá hefði ég fengið tjónið bætt - enda er ég með Kaskó tryggingu á innbú og þó mynd detti á gólfið og brotnar - þá fæ ég hana bætta. Nauðsynlegt að vera tryggður í bak og fyrir. Veit samt ekki hvernig það er með svona "hriðjuverkaárásatryggingar" - veit ekki hvort hægt sé að plokka tryggingar einhvers staðar út í að strykja okkur þar. En ég hélt að maður fengi flugferð endurgreidda ef maður kaupir sér forfallatryggingu hjá flugfélagi því er maður kaupir farmiða hjá...

Annars er smáa letrið eitthvað sem fólk á að kynna sér skilyrðislaust - eða spyrja þann sem selur okkur eitthvað um það hvort það sé öruggt að ekkert sé í smáa letrinu sem við þurfum að vita um. Eigðu góðan mánudag Jenný mín, sem og alla vikuna auðvitað..

Tiger, 28.4.2008 kl. 00:28

10 identicon

Varðandi bílinn hans Sturlu að þá hafði hann verið notaður við ólöglegar aðgerðir áður, þ.e stöðva og hægja á umferð í þann tíma sem mótmæla bílstjóranna hafa staðið og því ákvað lögreglan að taka bílinn.

Lögreglan má fjarlægja bíla sem hafa verið notaðir á ólöglegan hátt þótt þeir standi í löglegu bílastæði þegar lögreglan ákveður að fjarlægja þá.

Guðrún (IP-tala skráð) 28.4.2008 kl. 00:52

11 Smámynd: Emma Vilhjálmsdóttir

Það er einmitt málið, þessi helv... tryggingafélög eru að gera okkur að fíflum.  Maður er sjaldnast tryggður rétt þegar á reynir, eða öllu heldur gera tryggingafélögin allt til að forðast það að bæta fólki það sem það hefur tryggt í gegnum árin.  Þau fara ótrúlegustu leiðir til að segja að því miður taki tryggingarnar ekki yfir þetta tiltekna tjón...  Spurning um að hætta bara að tryggja, þannig væri maður sennilega mun ríkari og öruggari þegar uppi er staðið.

Emma Vilhjálmsdóttir, 28.4.2008 kl. 01:12

12 Smámynd: Jens Guð

  Ég er kominn nokkuð vel á sextugsaldur.  Ég hef aldrei keypt nema skyldutryggingu á bíl.  Tölfræðin sýnir að ég er betur settur án þess að' kaupa aðrar tryggingar.  Munurinn mér í hag er töluverður.  En vissulega er áhættuþáttur í dæminu.  En hann er mér líka í hag.

Jens Guð, 28.4.2008 kl. 01:37

13 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Einu sinni var ég með hestaleigu og kona datt af baki og handleggsbrotnaði, en fékk ekkert út úr tryggingunum af því að hún datt af baki. Seinna um sumarið hnaut hestur með aðra konu og hún fékk slæman hnykk á bak og háls, en hún fékk ekkert út úr tryggingunum af því að hún datt ekki af baki..... Sama trygging, sama tryggingarfélag í bæði skiptin

Jónína Dúadóttir, 28.4.2008 kl. 06:31

14 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hallgerður: Ég á lítinn krúttfrænda sem verður árs gamall 1. maí.  Gömul vinkona mín og mikil baráttukona á afmæli þennan dag.  Flott fólk.

Jónína: Týpiskt.´

Góðan daginn öll.

Jenný Anna Baldursdóttir, 28.4.2008 kl. 08:34

15 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Mig vantar tryggingu til að tryggja mig fyrir  tryggingafélögunum. Að ef þau vilja ekki bæta mér tjón sem þau eiga réttilega að bæta þá fái ég það bætt. En þetta er náttla súrealískur draumur um réttlæti í apalandi.

Knúsíkveðja

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 28.4.2008 kl. 10:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 2985766

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.