Leita í fréttum mbl.is

Farin í sólbað og smók

543

Þeir segja, fræðingarnir, að sumarið í Evrópu verði það hlýjast í 150 ár.

Halló, hvað með þessa Evrópu sem ég er stödd í?  Minni Íslands-Evrópu?

Ég vil hafa sól, og hlýtt en ég vil geta andað.  Ég vil vera laus við mergðir af geitungum því ég er ógeðslega hrædd við þá.  Geitungasumarið mikla (í hitteðfyrra minnir mig, þegar hvergi var líft fyrir þessum kvikindum) er mér enn í fersku minni.

Ég man góða veðrið í júlí í fyrra, þegar allt var að drepast úr þurrki.  Ljúft?  Ok en ekkert sérstakt.

Hvað með hinn gullna meðalveg?

Ég er að skammast í mögulegum veðrum sko, ekki veðurfræðingunum.

Ég var á Skáni, sumar eitt fyrir nokkrum árum, í algjöru Barbíhúsi, á hvítri strönd og veðrið var æði.  En svarta ljóta flugan sem herjar á allt þarna niðurfrá, var að drepa mig og húsband.  Þær voru í hópum þessi kvikindi og þær sækja í andlitið á manni.  Ég hef sagt henni Ingu-Lill vinkonu minni að þetta sé paradís í flottri neytendapakkningu en innihaldið svona lala.

Ég bið sum sé almættið um sólríkt sumar, sunnanblæ, fáar flugur, enga geitunga og köngulær sem abbast upp á mig, og ég er ekki að djóka.  Svo vil ég fá dass af rigningu amk. einu sinni í viku.

Væri möguleiki að vera mér innanhandar með þetta smáræði kæri þú þarna?

Farin í sólbað og að reykja, enda stutt til 12. maí, þegar sumir drepa í.

Æmsóexsætid.

 


mbl.is Hlýindi í kortunum í sumar?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Fyrir svosem 10 árum eða svo var ég á Kúbu í viku eða 10 daga, að mig minnir í nóvember. Þar sem ég hélt til var loftslagið fullkomið - að minnsta kosti á meðan ég staldraði við. Það rigndi í um 4 tíma yfir nóttina svo allt var ferskt og tært að morgni, svo skein sólin glatt og upp úr hádegi, þegar það var alveg að verða of heitt, kom sjávargolan með ferskan blæ þar til hitastigið fór að læka svolítið aftur.

Aldrei of, aldrei van - bara fullkomlega passlegt. Ég hef kannski bara verið svona heppin, því varla er veðrið fullkomið hjá þeim allan ársins hring, en var á meðan var og mér leið mjög vel. Varð ekki vör við nein ógeðsleg smádýr eða pöddur.

Hef verið á leiðinni þangað aftur síðan og læt verða af því einhvern tíma.

Lára Hanna Einarsdóttir, 21.4.2008 kl. 15:15

2 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Ég mundi gjarnan vilja fá sólina og hitan en ekki geitunga takk.

Kristín Katla Árnadóttir, 21.4.2008 kl. 15:29

3 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Sólin er cool!

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 21.4.2008 kl. 15:58

4 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Ég sá geitung í gær.

Sigrún Jónsdóttir, 21.4.2008 kl. 15:59

5 Smámynd: Eva Benjamínsdóttir

Jenný mín, geitungarnir koma ekki nálægt þér ef þú sættir þig við fallegu, góðu snilldarvefarana, köngulærnar. Þær gera þér heldur ekki neitt, en mundu að hafa þær í öllum hornum og bara dáðst að þeim eða slaka með lokuð augun á móti sól. Geitungarnir eru nú orðnir laglega ruglaðir í rýminu, þeir eiga ekki að vera á sveimi fyrr en eftir tvo mán. ef ég man rétt.

Gleðilegt sumar

Eva Benjamínsdóttir, 21.4.2008 kl. 16:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 9
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 46
  • Frá upphafi: 2985788

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband