Leita í fréttum mbl.is

Ég er ekki gay

5249_middle_aged_african_american_diva_singer_woman_-_music 

Eurovison er dásamlegt fyrirbrigði.  Það bjargar t.d. lífi mínu á hverju vori.  Hefur gert svo lengi sem ég man, fyrir utan árið sem Gleðibankinn fór, þá var ég alvarlega "in to it" og hélt að við myndum taka þetta.  Ómæ, hvað ég hafði sextán sinnum rangt fyrir mér þá.

Eurovision er sum sé aðal pirringsaflgjafi minn ár hvert.  Það er gullnáma í viðkvæmt taugakerfi undirritaðrar og gefur henni færi á að fara offari í samtölum, bréfaskrifum (ok ekki alveg) og svo á blogginu núna.  Endalaus tækifæri af dásamlegu taugabrjálæði af öllum stærðum og gerðum.

Ég er greinilega ekki gay, hafi ég einhvern tímann haldið það.  Samkvæmt beturvitrungum þarf samkynhneigð til að fíla Eurovision eða kerlingarelement, sem ég veit ekki hvað er.

Ég er ekki með kerlingarelementið (held ég) og ég er "definately" ekki gay, og ég þoli ekki Euro.  Það er aðallega vegna íslenskra framlaga undanfarin öll ár sem við höfum tekið þátt, með nokkrum örfáum undantekningum.

Mér hefur ekki tekist að hlaða þessu myndbandi af herlegheitunum inn á tölvuna mína.  Og ég er ekki í víðtæku rusli.  Önnu vinkonu minn fyrir norðan finnst það flott, Heiðunni finnst það glatað.

Ég trúi þeim báðum.

Nú er búið að gera myndband af myndbandinu og á morgun verður gerð heimildarmynd um búningahönnuð myndbandsins og sögu rykkústsins sem leikarinn heldur á, síðan verður gerð heimildarmynd með haustinu sem fjallar um flutninga foreldra skriptunnar úr bæ í sveit.

Framundan eru bjartir dagar í eílífu andskotans urli taugakerfissins.

Lífið er stórkostlegur unaður.

Og framlag Svíðjóðar er hér, Charlotta vinkona Eika Hauks.

Svíþjóð: Hoppið inn í nútímann og fleygið þessari þreyttu vindvél.  Carola er búin með skammtinn.


mbl.is Myndband um myndbandið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hjartanlega sammála þér í einu og öllu þarna... Og er verið að grínast  þessa vindvél einn ganginn enn. Fyrir utan að ég fatta ekki þetta fremur dapra lag. Einhvernveginn er allaf abba og carolulykt af lögum Svía síðustu árin.. Tala nú ekki um ef fólk hefur horft á undankeppnina hjá þeim þá er þetta meira svona eins og eftirhermukeppni. Í ár var t.d MIKA, ABBA, og jú hún Carola sem betur fer komst ekki áfram.

inga (IP-tala skráð) 18.4.2008 kl. 11:17

2 identicon

Af einhverjum ástæðum henti ég mér í vegg heilar þrjár mínútur á meðan myndbandið spilaðist.

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 18.4.2008 kl. 11:26

3 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Ég meikaði 31 sekúndu af Charlottu. Ég er greinilega hvorki hommi né kelling. Held ég skelli mér bara aftur inn í skápinn minn og fái mér coctail af lucky charms og kókópöffsi.  

Laufey Ólafsdóttir, 18.4.2008 kl. 11:32

4 Smámynd: halkatla

tekur 100% undir með lokaorðunum þínum - ég er alltaf gay meðan eurovision er, annað er ekki hægt!

halkatla, 18.4.2008 kl. 11:45

5 Smámynd: lady

ég hlustaði á Olsen bræður og Charlottu flott lög ,,takk Jenný

lady, 18.4.2008 kl. 12:07

6 Smámynd: Júlíana

Ég á minn innri júrónörd, hann er örugglega hommi. En þrátt fyrir þennan innri homma minn þá hef ég aldrei komist í gegnum þetta lag svía fyrr. Nú sit ég hérna uppfull af pirringi út í Charlotte sem ég hef aldrei getað fyrirgefið fyrir að stela af okkur sigrinum með ömurlegu jólalegu ABBAlagi (hver setur klukknahljóm í venjulegt popplag). Ég er ekki viss hvort þetta lag er betra eða verra, eina sem ég hugsa er "afhverju er hún aftur orðin eins og barbí?". Hún náði aðeins að hrista það af sér þegar hún var dökkhærð en núna eyðilagði hún alveg byrjandi fyrirgefningu mína með ljósu hári, barbíkjól, milljón cm hælum og hallærislegum dansi.

jiiii og ég sem hef alltaf getað hlegið að svona

Júlíana , 18.4.2008 kl. 12:37

7 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

   Eftir Gleðibankann og Selmu Björns, hefur enginn komist með tærnar þar sem Sylvía Nótt hefur hælana, hvorki hér heima né erlendis,  hún var "toppurinn" á úrkynjuninni, og öllum þeim herlegheitum sem því fylgja

 Ég vil Sylvíu Nótt aftur og aftur þar til við vinnum, það þýðir ekkert að senda út lélega eftirlíkingu af Sylvíu Nótt!

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 18.4.2008 kl. 14:24

8 identicon

 Okkar er flott við hliðina á þessu

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 18.4.2008 kl. 16:14

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Svo merkilegt sem það nú er, er sænska laginu spáð sirgri sumstaðar.

Lilja Guðrún, ég elskaði Silvíu Nótt og það var verulega skemmtilegt að fylgjast með þessari stelpu.  Arg, hvað það var gaman.

Jenný Anna Baldursdóttir, 18.4.2008 kl. 16:46

10 identicon

Er ekki alveg að skilja íslendinga sem hata allt sem Svíar gera. Getur það verið einver minnimáttar kennd eða eru þeir svona slæmir?

Halla (IP-tala skráð) 18.4.2008 kl. 18:02

11 Smámynd: Sædís Ósk Harðardóttir

Sammála þér í þessu Jenný, ég elskaði Silvíu Nótt líka, minn áhugi á þessari keppni dó með hennar falli.

Sædís Ósk Harðardóttir, 18.4.2008 kl. 20:17

12 identicon

Bíddu....Af hverju þarf að kalla aumingja drenginn þessu nafni??*feitusófahommakústsleikju* Ertu hommahatari eða feitabolluhatari eða sleikjuhatari. Ég veit ekki einu sinni hvað þetta orð þýðir!! Þú myndir semsagt vilja hafa gagkynhneigðann mjóann mann þarna frekar??? Ég skil ekki alveg svona commenta hjá fullorðnum manni sem ætti þó að vera með meiri þroska en óharðnaður unglingur sem lætur oft orð falla en meinar lítið með ´því... Góða nótt (vonandi)

inga (IP-tala skráð) 19.4.2008 kl. 02:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 2985883

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 52
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.