Leita í fréttum mbl.is

Mér krossbrá og er enn í rusli..

..en á vísi.is er fjallað um að Þórarinn Tyrfingsson sé að hætta hjá SÁÁ. 

Auðvitað eru fleiri frábærir læknar hjá SÁÁ og alltaf kemur maður í manns stað, en ég sé einhvern veginn ekki fyrir mér Vog og allt þetta hjálparbatterí, án Þórarins.

Þar sem mér er málið skylt, á líf mitt SÁÁ að launa, eins og þúsundir annarra Íslendinga, þá var ég fljót að klikka á meðfylgjandi myndband

Ég er engu nær.

Er maðurinn að hætta eða ekki?

Þessi alki er eitt spurningamerki,

æi afhverju þarf allt að vera breytingum háð?

Hm...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

já segðu...af hverju þarft allt að vera breytingum háð???

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 19.3.2008 kl. 15:09

2 Smámynd: Guðjón H Finnbogason

Það kemur alltaf maður í mansstað.Það er eingin ómissandi,hann hefur unnið gott starf en hann hefur líka verið með gott fólk með sér og við skulum ekki gleyma öllum sjálfboðaliðum sem hafa hjálpað til í þessu starfi,ég hef bæði verið launalega starfsmaður hjá SÁÁ og hjálparstarfi og er einn úr upphafsliðinu var með Hilmari Helgasyni í því að koma þessu af stað.

Guðjón H Finnbogason, 19.3.2008 kl. 15:42

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Auðvitað kemur maður í manns stað en ég fer ekki ofan af því að það verður eftirsjá að Þórarni. 

Það mætti minnast oftar á Hilmar Helgason en gert er.  Er einhver þöggun í gangi þar?

Jenný Anna Baldursdóttir, 19.3.2008 kl. 16:07

4 identicon

Þórarinn er búinn að gera góða hluti en mín skoðun er sú að það sé kominn tími á nýjann mann þarna .Það er engum holt að vera of lebgi við stjórn.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 19.3.2008 kl. 17:08

5 Smámynd: Guðjón H Finnbogason

Ég er sammála Birnu það er engum holt að vera svona lengi.Nafn Hilmars Helgasonar er ekki haft uppi við held ég vegna Þórarins við vitum það að hann vill hafa athyglina.En þetta eiga þeir Hilmar,Björgúlfur.Binni og Tómas.Síðan komum við sem hjálpuðum við þetta.

Guðjón H Finnbogason, 19.3.2008 kl. 21:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.12.): 9
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 78
  • Frá upphafi: 2987159

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 76
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Des. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.