Leita í fréttum mbl.is

Elvis Karlson og fleiri hetjur

Nú er hér frétt um hversu margar mæður í nýjum sænskum barnabókum eru alkar, veikar á geði, uppteknar af sjálfum sér eða dauðar.

Pabbarnir eru að hverfa.

Halló, mina svenska vänner, þetta heitir að sofna á verðinum og vakna seint og illa upp af martröðinni.

Próblemin með foreldra hafa lengi verið einkenni sænskra barnabóka.

Þetta byrjaði í raun með Línu Langsokk (kannski fyrr) þar sem fullorðnir eru meira og minna stórbilað lið, nema pabbi hennar Línu, sem var skrýtinn eins og hún.  Löggan, foreldrar Tomma og Önnu og flestir aðrir, er allt meira og minna illa gefið lið, barnslega saklaust og auðvelt að blekkja.

Svo dettur mér í hug Elvis Karlson, drengurinn sem á drykkfelda og sjálfsupptekna mömmu sem klínir nafni uppáhalds söngvarans á blessað barnið og veldur því að honum er strítt ferlega.  Mig minnir, bara minnir, að pabbi Elvisar hafi verið að heiman eða svo mikill velúrmaður að ég hafi gleymt honum.  Eina fullorðna manneskjan sem fútt er í er afi Elvisar.

Og ég tek annað dæmi.  Uprreisnin á barnaheimilinu sem Olga Guðrún Árnadóttir las, svo eftirminnilega, í útvarpið 197tíuog eitthvað.

Það varð allt vitlaust í þjóðfélaginu.  Þarna var verið að hvetja til uppreisnar.  Börnin í sögunni tóku fóstrurnar gíslingu og heimtuðu að réttindi þeirra væru virt.

Stórhættulegar bækur.Whistling

Hm...

Svíar eru raunsæir en þeir mættu stundum hafa meiri húmor.  Samkvæmt þessum bókum sem greinin fjallar um er ekki gaman að vera barn í Svíþjóð.

Hvað er nýtt spyr ég?

En sem betur fer eru sænskir krakkar eins og önnur börn.  Þau gefa litteratúrnum einfaldlega langt nef og skemmta sér konunglega. 

Kom igen!

Úje


mbl.is Hættulegt líf mæðra í barnabókum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Ég las einu sinni sænska unglingabók um tvo drengi sem þráðu tvíbytnu svo heitt að þeir seldu sig einhverjum subbukarli til að eiga fyrir bátskriflinu. Ég lét bókasafnskonurnar vita og þær settu bókina í fullorðinsdeildina ... með töngum. Hef samt aldrei hugsað út í þessa óskemmtilegu móðurmynd sem dregin er upp í sænskum bókum. Skrýtið! Svíar eru svo meðvitaðir eitthvað og maður hefur heyrt að börnin séu einstaklega vel ræktuð þar. Veit ekki hvort sagan um íslensku foreldrana í Svíþjóð er sönn en þar átti víst að taka barn þeirra af þeim og koma í fóstur þar sem barnið var ekki talið í nógu góðu augnsambandi við þau hjónin sem áttu víst að hafa flutt til Íslands aftur.

Guðríður Haraldsdóttir, 11.3.2008 kl. 17:41

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Svíar eru stundum alveg ótrúlegir.  HVer hefur ekki lent í að horfa á sænska löggumynd, þar sem löggan byrjar á að ganga um ber að neðan, prumpa eða ropa.  Þeir elska bæði líkamsmál og kynfæri.  Gleymi aldrei Bergman og ógeðslegu myndunum hans, Ó sorrý það voru víst listaverk.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 11.3.2008 kl. 18:26

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Gurrí: Man eftir Tvíbytnunni.  Sérstök bók, það verður að segjast.  Sögur af sænskri barnaverndarnefnd eru ýktar en þetta var ansi slæmt 1980-1990 amk.  Annars fannst mér yndislegt að ala upp börnin mín í Svíþjóð.  Svolítið glúmí þessar bækur en samt skemmtilegar.

Ásthildur: Ég elska Bergmann.  Svona er lífið.

Jenný Anna Baldursdóttir, 11.3.2008 kl. 19:17

4 Smámynd: Ragnheiður

Mér leiðast sænskar bækur

Mér leiðast sænskar myndir

Annars góð, takk fyrir pistil

Ragnheiður , 11.3.2008 kl. 19:56

5 Smámynd: Þröstur Unnar

Tek undir með Röggu.

Held bara að allt sænskt sé leiðinlegt, guli liturinn, Volvó,, æi já bara allt.

Þröstur Unnar, 11.3.2008 kl. 20:05

6 Smámynd: M

Fannst sænskar myndir oft svo niðurdrepandi og þá sérstaklega ef Liv Ulman lék í  þeim   

En Lína, Emil og félagar, ekkert að því og bara skemmtilegt 

M, 11.3.2008 kl. 20:12

7 Smámynd: Huld S. Ringsted

Tek líka undir með Röggu.

Huld S. Ringsted, 11.3.2008 kl. 21:00

8 Smámynd: Nanna Rögnvaldardóttir

Tvíbytnan er reyndar danskur sósíalrealismi en ekki sænskur, verðlaunabók eftir Bent Haller, sem skrifaði líka Fuglastríðið í Lumbruskógi og eins og fimmtíu aðrar barna- og unglingabækur. Óþarfi að kenna Svíum um allt.

Nanna Rögnvaldardóttir, 11.3.2008 kl. 21:58

9 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Ótrúlegt en satt,þá er ég alveg á sömu skoðun og Huld,Þröstur og Ragnheiðurkv.Linda

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 11.3.2008 kl. 22:01

10 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Nanna: Takk, hehe, en það er næsti bær við.

Jenný Anna Baldursdóttir, 11.3.2008 kl. 22:46

11 identicon

Hvernig ætli standi á þessu með húmorsleysið? - Hef oft velt því fyrir mér.

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 11.3.2008 kl. 23:23

12 Smámynd: Tiger

Ég verð nú bara að viðurkenna að ég hef lítið séð af sænskum myndum og ekkert lesið af sænskum bókum en kannast þó auðvitað við einhver barnaævintýri þaðan - sem mér finnst fín. Kannski maður ætti að bæta úr þessu og lesa eins og eina sænska bók til að vita um hvað málið snýst... Knús í nóttina - á sænsku. BraBra..

Tiger, 12.3.2008 kl. 04:15

13 Smámynd: Bjarndís Helena Mitchell

Æ, ég tek undir með Röggu, Huld, Þresti og Lindu. Knús á þig skvís.

Bjarndís Helena Mitchell, 12.3.2008 kl. 04:17

14 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

Ekki gleyma Einari Áskeli, engin mamma þar.

Snilldarbækur samt og í miklu uppáhaldi hjá krökkunum mínum.

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 12.3.2008 kl. 10:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 2985766

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband