Leita í fréttum mbl.is

Fremínisti og morgunpælingar

 

Var að vakna eftir að hafa sofið frá kl. 22,00 í gærkvöldi.  Úff hvað það er gott að vera komin heim, þó farangurinn af Vogi sé hér í pokum og töskum út um alla íbúð.  Hvernig getur kona farið inn á meðferðarheimili þar sem maður er á slopp, með fulla ferðartösku af fötum og finnast hún samt hafa gleymt helmingnum heima?  Það kemur seint sá dagur að það verði allt í lagi með mig. En nú verður þvegið.

Ég er búin að lesa AA-bókina og er tilbúin inn í daginn.

Jenný Una og Hrafn Óli komu í heimsókn í gær og það urðu miklir fagnaðarfundir hjá okkur nöfnunum, en hún sagði í ásökunartón við ömmu sína:  Amma þú ert búin að vera mjög, mjög lengi á spítalann, alveg þrjá daga (með áherslu á þrjá), það er það lengsta sem hún veit varðandi framtíðina.

Hrafn Óli agúaði bara og brosti framan í mig og þurfti enga áfallahjálp vegna fjarveru ömmunnar, enda bara tveggja mánaði og í þrusu góðum gír. Jössses hvað hann er fallegur.

Í gærmorgun átti eftirfarandi samtal sér stað á milli Jennýjar og mömmu hennar, þegar þær voru í bílnum á leið í leikskólann.  Þær voru að keyra fram hjá Hallgrímskirkju hvar iðnaðarmenn voru við vinnu uppi í kirkjunni.

Mamman:  Jenný sjáðu mennina sem eru að vinna svona hátt uppi í kirkjunni.

Jenný: Þa er líka kona þaddna.

Mamman: Já auðvitað, það segirðu satt elskan það getur líka verið kona að vinna þarna.  Ertu femínisti Jenný?

Jenný: Nei ég er Jenný Una Eriksdóttir. Ka err fremínisti?

Mamman: Það er þegar strákar og stelpur fá að leika með sama dótið eins og bíla og dúkkur. Og allir fá að gera jafn mikið.  Mamma er femínisti, pabbi, Helga frænka og amma líka.  Og eiginlega allir sem við þekkjum.

Jenný:  Ég leik með bleikan bíl og strákarnir með brúnan. Það er gaman. (Barn á prinsessuflippinu).

Mamman: Já eða strákarnir með bleikan og þú brúnan ef þið viljið.

Jenný: (löng þögn). Ég er FREMÍNISTI.

Auðvitað er dótturdóttir mín fremínisti, þó það nú væri.

Sé ykkur á eftir ódámarnir ykkar.  Farin að lesa færslurnar ykkar.

Dóntcræmíariver.

Úje 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Takk fyrir þetta,elsku Jenný mín,flott myndin af barnabörnunum þínumþau eru bara flottust.hafðu góðan dag og njóttu hans vel.Ástarkveðjur

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 27.2.2008 kl. 08:40

2 Smámynd: Þröstur Unnar

Æi já. Það var einmitt eitthvað svona sem ég saknaði af blogginu.

Gott að fá þig inn aftur.

Þröstur Unnar, 27.2.2008 kl. 08:41

3 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Svei mér ef ég hef ekki bara saknað þín slatta

Jónína Dúadóttir, 27.2.2008 kl. 08:55

4 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

velkomin til baka :)

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 27.2.2008 kl. 09:23

5 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Ég sé að Jenný Una fær alveg hárrétt uppeldi  og kann að taka réttar ákvarðanir að vel ígrunduðu máli. Þú átt sannarlega falleg barnabörn !

Eigðu góðan dag og það er eitthvað svo notaleg tilfinning að sjá þig aftur hér inni og nýjar færslur merktar við nafnið þitt. Þín hefur sannarlega verið saknað !

Sunna Dóra Möller, 27.2.2008 kl. 09:24

6 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Mikið lifandis skelfing er hressandi að heyra í þér aftur! 

Lára Hanna Einarsdóttir, 27.2.2008 kl. 09:58

7 identicon

Velkomin heim, flott hjá þér að skella þér bara á Vog þegar þú fannst að var að síga á ógæfuhliðina. Fínt uppeldi sem barnabarnið þitt fær, snemma beygist krókurinn. Eldri sonur minn er eiginlega upp alinn á Rauðsokkuheimilinu á Skólavörðustígnum. Er 35 ára í dag og er enn gallharður femínisti.

Helga Magnúsdóttir (IP-tala skráð) 27.2.2008 kl. 10:46

8 Smámynd: lady

Til hamingju með það sem þú ert að takast á við ,,,að lesa bókina eftir Einari Má er  mjög góð hafðu það gott elsku vinkona kv Olöf Jónsdóttir

lady, 27.2.2008 kl. 11:18

9 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Mmmm, takk fyrir þennan jenfo-skammt. Nú trúi ég því að þú sért komin aftur. Darling!!!

Guðríður Haraldsdóttir, 27.2.2008 kl. 11:32

10 Smámynd: Tiger

  an þín er æði. Svo yndislegt hve börnin geta verið sakleysislega hreinskilin og falslaus. Við hin eldri mættum oft taka þau okkur til fyrirmyndar. Sannarlega getum við lært af þeim, líkt og þau ættu að læra af okkar viskubrunni..

  

Tiger, 27.2.2008 kl. 12:46

11 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

Ég er líka freministi .....og allt mitt hyski....

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 27.2.2008 kl. 13:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 2985743

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.