Leita í fréttum mbl.is

Ég myndi skilja á spottinu

 

Segjum, ef mínum heittelskaða dytti í hug að ráða þessa söngvara hérna, þá Davíð Ólafsson og Stefán Helga Stefánsson, til að koma að syngja fyrir mig yrði ég illa pirruð.  Ég myndi hrynja úr kjánahrolli.  Hef ekkert á móti þessum mönnum sko, en ég er svo smáborgaraleg að ég myndi hníga til jarðar og ekki standa upp aftur.

Eða segja þeim að stein halda júnó.

Ég er ekki hrifin af "söppræsum", það fýkur yfirleitt í mig ef mér er komið á óvart.  Vill ekki óvissu í lífi mínu.

En...

Kæmi hann heim með bók, eins og Rimlar Hugans eða Bókina hans Hrafns Jökuls þá myndi ég knúsa hann í klessu og vera lengi að því.

Svo mætti hann spila eitt af sínum undurfallegu lögum fyrir mig yfir kertaljósi, sem oftast.

En..

Ég er algjörlega hugmyndasnauð, vegna margs sem hvílir í kollinum á mér þessa dagana og ég læt mér nægja að hoppa í fangið á honum og gefa honum megaknús alala Jenfo alveg einstök upplifun.

Æi við sjáum nú til.

Lovejúgæs.


mbl.is Syngja ástarjátningar til kvenna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðborg Eyjólfsdóttir

Já ætli maður myndi ekki sökkva ofan í jörðina býst við því, en þetta er samt góð hugmynd sérstaklega þegar maður er ný byrjaður með sínum heittelskaða :)

Guðborg Eyjólfsdóttir, 14.2.2008 kl. 15:27

2 Smámynd: Þröstur Unnar

Ég syng ástarjátningu til stúlku minnst einu sinni í viku.

En óvissa um stund, eykur adrenalínflæðið og það er hressandi.

Þröstur Unnar, 14.2.2008 kl. 15:32

3 Smámynd: Brynja skordal

Æ já læt mér nægja bara að syngja minn í svefn með minni fögru rödd eða kannski verður hann andvaka spurning sko

Brynja skordal, 14.2.2008 kl. 15:38

4 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Aldrei  syngur nokkur maður fyrir mig sem er bara ágætt.

Kristín Katla Árnadóttir, 14.2.2008 kl. 16:05

5 identicon

Ég veit að þetta komment er dálítði út úr kú en þetta skiptir máli. 

Hjálpum Villa að ákveða sig.

Hvetjum hann til að hætta.

http://www.petitiononline.com/villbles

Sendið slóðina á alla. 

Siggi (IP-tala skráð) 14.2.2008 kl. 16:08

6 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Guð....ég myndi gjörsamlega deyja ef að minn eiginmaður myndi koma mér svona á óvart.......svo ég tala nú ekki um á opinberum vettvangi einvers staðar!  Ég myndi ekki höndla það !

Sunna Dóra Möller, 14.2.2008 kl. 16:13

7 identicon

1002496!!  það eru víst ekki verðlaun fyrir það?

en til hamingju með milluna, ég brá mér í bæinn og svona fór þetta.  En ég vildi samt kvitta því þú ert svo endalaust frábær!

Birgitta (IP-tala skráð) 14.2.2008 kl. 16:22

8 Smámynd: M

Veit um vinnustað í Bretlandi þar sem konurnar voru að fá blómasendingar frá eiginmönnunum og eða kærustunum í dag. Æ, finnst þetta jaðra við sýndarmennsku en auðv. svo sem falleg hugsun þar að baki.

M, 14.2.2008 kl. 16:48

9 Smámynd: Ragnheiður

Minn spurði í morgun hvað ætti að gera þennan dag, ég ansaði honum ekki. Ekki vil ég að hann komi stökkvandi með súkkulaði, ég á ársbirgðir af svoleiðis.

Blómabændur verða að stóla á aðra en okkur til að halda rekstrinum réttum.

Ef hann syngur þá er ég farin í bíltúr, ein.

Ragnheiður , 14.2.2008 kl. 16:56

10 Smámynd: Tiger

Ég myndi hoppa af kátínu ef mér væri komið á óvart á þennan máta. Ég elska uppákomur, surprise or not. Ég fæ einmitt hrikalegt endorfin kikk þegar einhver poppar upp og galar "Surprise" og lætur svo einhver ósköp dynja á mér sem ég ekki átti von á.

Þó ég sé hrifinn af því að hafa control á öllum hlutum og aðstæðum - þá eru óvæntar uppákomur til mikilla gleði í mínum bókum - því vandræðalegri því skemmtilegra og þar af leiðandi meira endorfin og adrenalinið flæðir...

Tiger, 14.2.2008 kl. 16:57

11 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

En það kæmi á óvart ef Einar læsi þetta nú og kæmi með "Hrafninn" til dæmis ekki satt og hvað þá?

Kossar eða kjaftshögg!?

En karlinn er jú sem kunnugt er annálaður söngvari, því syngur hann að sjáflsögðu sjálfur fyrir þig. En allt þetta Valentínusarvafstur er alveg yfirþyrmandi leiðindaandskoti!

Magnús Geir Guðmundsson, 14.2.2008 kl. 18:01

12 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Mætti ég þá frekar biðja um að minn tæki upp klarinettinn og spilaði fyir mig eins og eitt lag, smoke on the river eða eitthvað álíka.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 14.2.2008 kl. 19:28

13 Smámynd: Eva Benjamínsdóttir

Ég sendi þér reyklausar  kveðjur Jenný mín og það er hóstalaust.

Á ekki von á neinum Prins Valiant sjálf en annars, hver veit 'surprice'

Eva Benjamínsdóttir, 14.2.2008 kl. 22:10

14 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

Æ, þeir Davíð og Stefán eru voða sætir og fyndnir og syngja vel...

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 15.2.2008 kl. 09:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 2985743

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband