Leita í fréttum mbl.is

Aftur innanhúserjur á kærleiksheimili - nú með einum þátttakanda

 

Hvað er það við þessa daga núna?  Kuldinn, myrkrið, langt í vorið, enn lengra í jólin (hm) páskar langt undan (mér er slétt sama) og svo þessir bolludagar og saltkjötsát (sem ekki er stundað á mínu heimili), sem er baneitrað og tilraun til sjálfsvígs, ekkert minna.  Ég er alla vega ekki glöð, alls kyns fífl að pirra mig.  Amk. eitt (ekki minn heittelskaði)

Í dag hef ég verið svo upptekin að vera í vondu skapi að ég hef gert nákvæmlega ekki neitt.  Er samt að búa mig undir að steikja fisk.  Af hverju er ég alltaf eldandi?  Er það tattúerað á ennið á mér "Eldaðu"?  Eða var ég dáleidd sem smábarn og því komið inn í kvarnirnar á mér að það væri hlutverk mitt í lífinu?  Ekki að mér finnst það leiðinlegt, en akkúrat núna á ég bágt.

Ég sparkaði í kommóðu áðan: Ástæðan, óréttlæti heimsins.

Dásamlegt að gera ekkert í heilan dag nema að taka upp rými.

Færa mig á milli stóla.

Eina ráðið við þessum febrúarbömmer er að drífa sig á AA-fund.  Ekki gott að vera alki í pirruðu skapi.  Nánast á gargstiginu.

Og þið sem mögulega ætluðuð að koma í kaffi - sleppið því, ég gæti sett eitthvað óhollt út í það.

Nú þá er að fara á fund, í sund og kaupa sér hund.

Svo sagði mætur maður.

Guð plís skenktu mér smá æðruleysi.

Amen.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Knús elsku Jenný.

Vonandi líður þér betur eftir fund.  Er ekki of kallt til að fara í sund ? Gangi þér vel að ala upp hund. !

Guðrún B. (IP-tala skráð) 5.2.2008 kl. 18:25

2 Smámynd: Sigurbjörg Sigurðardóttir

Vonandi verður hann betri á morgun.Vil fá snjóinn í burt,frostið líka brrrrrr.

Sigurbjörg Sigurðardóttir, 5.2.2008 kl. 18:35

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Fékkstu ekki upplýsingar frá mér í meili?? var að búast við miklum breytum á síðu lúkki. Farðu vel með þig og sparkaðu í eitthvað fleira dautt, það er ágætt svo lengi sem maður brýtur ekki sjálfan sig.  Grrr  Mean Whip 

Ásdís Sigurðardóttir, 5.2.2008 kl. 18:36

4 Smámynd: Tiger

Kæra bloggvinkona *stórtoghlýlegtvinarknús* !!!

Skap okkar er óútreiknanlegt, rétt eins og vegir annarra - okkar að reyna eftir fremsta megni að koma auga á létta og ljósa punkta sem ætíð eru í kringum okkur. Megi sá stóri verða á vegi þínum og leiðbeina þér og styrkja.

Kveðja frá bjartsýnisgutta á netinu.

Tiger, 5.2.2008 kl. 18:45

5 identicon

Ásdís mín, sendu mér líka svona bloggbreitingar i meili ??

Guðrún B. (IP-tala skráð) 5.2.2008 kl. 18:54

6 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

kvitt kvitt og kveðjur

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 5.2.2008 kl. 18:54

7 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Oh ég skil þig Jenný mín maður getur oft verið pirraður.

Kristín Katla Árnadóttir, 5.2.2008 kl. 19:23

8 Smámynd: Þröstur Unnar

*Úps Erill, Óspektir og Heimiliserjur, daglegt brauð Rvík.

Þröstur Unnar, 5.2.2008 kl. 19:28

9 Smámynd: Guðborg Eyjólfsdóttir

Maður hefur stundum RÉTT á því að vera pirraður

Guðborg Eyjólfsdóttir, 5.2.2008 kl. 19:56

10 Smámynd: Guðjón H Finnbogason

Æðruleisisbænin hjálpar og alltaf er AA til staðar hvar sem er í veröldin.

Guðjón H Finnbogason, 5.2.2008 kl. 19:57

11 Smámynd: Ragnheiður

Æj...ég heppin,veit að ég pirraði engan í dag nema sjálfa mig með helvítis ístöðuleysi og almennum aumingjaskap....sjæse.....

Kveðja frá hinu pirrudýrinu....

Ragnheiður , 5.2.2008 kl. 20:31

12 identicon

Ég hló allan tímann sem ég las - vorkenni þér ekki neitt - Þú ert dásamleg - svo heilbrigð og svo eðlileg - knús til þín að norðan

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 5.2.2008 kl. 20:32

13 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

Æ hvað ég skil þig vel... er sjálf hvatvís og uppstökk þessa dagana....enda á sterum það styttir þó alltaf upp að lokum, líka í sálinni.

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 5.2.2008 kl. 20:36

14 identicon

Engin samúð hér. Ég var einmitt að segja einni frá gamla fórnalambssyndruminu sem þjakaði mig í denn. Þá voru dagdraumarnir jarðafaradraumar um mína eigins jarðaför.Í þá daga vöru ALLIR Í HEIMI FÍFL.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 5.2.2008 kl. 20:57

15 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hallgerður: HVað meinar þú með hallærisleg blogg?  Ég ætlaði að kenna þér að link inn á blogg svona yfirleitt því það kemur fyrir nokkuð oft í bloggheimum að maður rekst á fróðleg og skemmtileg blogg og langar til að leyfa sem flestum að njóta þeirra.

Jenný Anna Baldursdóttir, 5.2.2008 kl. 21:04

16 identicon

Er ekki tími til að vorkenna sér minna og fara finna vinnu?

Pr. Baunabelgur (IP-tala skráð) 5.2.2008 kl. 21:05

17 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Linda mín, það er engin ástæða til að kvitta fyrir komu sinni.  Þó þú sért að lesa hér inni hjá mér,þá er algjörlega ástæðulaust að kvitta fyrir sig.  Notum athugsemdakerfið til að skeggræða í og ræða um færsluna.

Plís ekki kvitt, kvitt og kveðjur, það er ekki illa meint heldur fæ ég alltaf á tilfinninguna að fólki finnist það tilneytt til að láta vita að það hafi lesið.  Svona eins og stimpilklukka.  Það eru svo margir sem gera þetta.

En ég vona að þú haldir áfram að lesa síðuna mína og takk fyrir að kíkja alltaf við hjá mér.

Jenný Anna Baldursdóttir, 5.2.2008 kl. 21:10

18 Smámynd: Hugarfluga

Jenný, ég fær næstum BARA svoleiðis komment! Sem segir mér líklega að það sem ég segi sé frekar uninteresting og dull. En hverjum er ekki sama hvað hverjum öðrum finnst um hvað sem helst? Ha? Hvað? Hmm ...

Hugarfluga, 5.2.2008 kl. 21:20

19 Smámynd: Ragnheiður

Fluga þó, ein af þeim allra bestu. Minnir mig á að kvitta og lesa hjá þér  Ég fann eitt fífl í dag en það var ég sjálf svo það voru hæg heimatökin að taka í lurginn á fíflinu.

Hættum að fíflast bara...knús á þig Jenný mín. Sumir dagar eru bara afturábak og grjótleiðinlegir alveg

Ragnheiður , 5.2.2008 kl. 21:25

20 identicon

kvitt kvitt..

bara að láta vita að ég hafi verið hérna .

djók !

Guðrún B. (IP-tala skráð) 5.2.2008 kl. 21:55

21 Smámynd: Þröstur Unnar

Ég segi sko engum að ég hafi verið hér.

Þröstur Unnar, 5.2.2008 kl. 21:59

22 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þið eruð krútt, líka baunabelgsfíflið sem vill að ég fari og fái mér vinnu.  Ertu æstur í að ráða mig sem dyravörð slöttóflurinn þinn?  Ég er súperstarfsmaður, hef samband um leið og geðið er komið í lag

Jenný Anna Baldursdóttir, 5.2.2008 kl. 22:18

23 identicon

Jenný mig vantar konu í vinnu.  Sortera fíflin sem eru alltaf að hrúgast í kringum mig.  Það er svo mikið af þeim ég skil þetta bara ekki

Guðrún B. (IP-tala skráð) 5.2.2008 kl. 22:28

24 Smámynd: Ragnheiður

Hehe já myndin þarna uppi. Maðurinn minn saup hveljur yfir henni og hélt að geðprýðisljósið sem hann býr með væri með þetta á sinni eigins síðu. Leiðrétti hann snarlega og honum létti mikið hehehe

Ragnheiður , 5.2.2008 kl. 22:42

25 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Guð minn góður hvað þið getið verið fyndinn, og Jenný, ég er komin með krampa af innlegginu þínu og svo svörunum og þínum líka.  Þetta er eitt það skemmtilegasta sem ég hef komist í í dag.   Þú ert á við risastóra tarantúlu, þegar þessi gállin er á þér.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 5.2.2008 kl. 22:44

26 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

hva'erígangihéddna

Jóna Á. Gísladóttir, 5.2.2008 kl. 23:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 2985878

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband