Leita í fréttum mbl.is

Af krúttkastastuðli 98

Hrafn Óli var lagður inn á barnaspítalann á mánaðarafmælisdaginn með lugnabólgu, en nú er hann kominn heim, en er enn lasinn.  Úff erfitt að vera svo lítill á spítalanum.

Það er ekki eins og maður sé eitthvað heljarmenni.  Almátt í bala.

Jenný Una passar bróður sinn og segir honum að "baddnaednið" sé byrjað í sjónvarpinu!

Og þarna er Lilleman farinn að hressast og kominn í fulla vinnu með pabba í tónlistinni.  Ætli það sé ekki verið að hlusta á jazz, kæmi mér ekki á óvart.

Og hér tekur stóra systir út bað litla bróðurs og svei mér þá, ef það er ekki í lagi,

Ójá, það er allt í lagi á þessum bæ.

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Krúttstuðull 106 frekar Jenný mín, yndisleg færsla, og þau svo mikil krútt bæði tvö.  Vonandi ferður litli maðurinn fullhraustur sem fyrst. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.1.2008 kl. 09:59

2 identicon

Vona að litli krúttköggullinn fari að hressast

Þetta eru æðislegar myndir. 

Bryndís R (IP-tala skráð) 26.1.2008 kl. 10:20

3 Smámynd: Bjarndís Helena Mitchell

Yndislegar myndir. Vonandi batnar Hrafni Óla sem fyrst.

Bjarndís Helena Mitchell, 26.1.2008 kl. 10:30

4 Smámynd: Þröstur Unnar

Snilldar "brostunú" hjá Jenný Unu.

Meira að segja sturtuhengið er grænt.

Þröstur Unnar, 26.1.2008 kl. 10:42

5 Smámynd: Svanhildur Karlsdóttir

Þau eru yndisleg bæði tvö, vona að litli kall verði hress sem fyrst

Svanhildur Karlsdóttir, 26.1.2008 kl. 10:53

6 Smámynd: Ibba Sig.

Þú ert rík kona Jenný.

Ibba Sig., 26.1.2008 kl. 11:00

7 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Myndin af honum sofandi á vigtinni....

Æi ég vona að honum batni sem allra fyrst. Stóra systir er auðvitað langflottust.

Jóna Á. Gísladóttir, 26.1.2008 kl. 11:50

8 Smámynd: Hugarfluga

Elsku kallinn, heilsa og þrek til hans með hraðhugarflugi! Og amláttuvur hvað þau eru yndisleg þessi böddn. Held ég skoði myndirnar oft og reglulega til að fá ákveðna strauma til mín.

Hugarfluga, 26.1.2008 kl. 12:23

9 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Þvílíkar myndir - unaðslegar!

Hann er fjallmyndarlegur drengurinn. Getur maður fengið að kyssa þessa dúllu?

Edda Agnarsdóttir, 26.1.2008 kl. 13:00

10 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Yndislegar myndir Jenný, óskaplega eru þau falleg. 

Takk fyrir að deila

Marta B Helgadóttir, 26.1.2008 kl. 13:02

11 Smámynd: halkatla

þau eru ekkert smá lík foreldrum sínum - ótrúlega falleg börn

ástarkveðjur til ykkar

halkatla, 26.1.2008 kl. 13:24

12 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Þau eru yndislega mikil krúttý krútt og það er sko í lagi að stór krútt prufi baðið  hans lilla bró.
það er slæmt að vera lasin og þurfa á spítala, en betra er það í dag heldur en fyrir 36 árum er ég var með Millu jr. á lansanum, hún var þar í rúman mán. og ég mátti heimsækja hana tvisvar í viku á miðvikudögum og á sunnudögum, hún var  6 vikna er hún lagðist inn. Náiði þessu?
Í dag má maður vera eins og maður vill, það er mikill munur á.
                        Sendi litla manninum ljós og orkukveðjur.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 26.1.2008 kl. 13:55

13 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

OHHHHH mikið rosalega sem þetta eru falleg börn, það er alltaf svo erfitt þegar lítil ómálga  börn verða veik, vanmátturinn verður á stundum svo mikill. Vonandi batnar litla snúð sem fyrst.

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 26.1.2008 kl. 14:03

14 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Skrítið þetta sem Milla segir frá með heimsóknirnar, var reyndar búin að heyra af svona því þegar mágkona mín sem er 52 lagðist inn sem lítið barn með sýkingu í fæti, þá mátti bara heimsækja hana 1 sinni í viku, þvílíkt og annað eins.  Þau eru yndisleg þessi litlu börn þín, vona að Hrafni Óla heilsist vel, systir hans er greinilega hress og kát.

Ásdís Sigurðardóttir, 26.1.2008 kl. 14:04

15 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Þetta eru sannarlega falleg barnabörn sem þú átt ! Ég vona að litli maðurinn hressist sem allra fyrst!

Sunna Dóra Möller, 26.1.2008 kl. 19:01

16 Smámynd: Dísa Dóra

oooooooooo litli krúttböggullinn - vonandi batnar honum fljótt og vel.  Fæ alveg tár í augun við að hugsa um svona litla kroppa berjast við veikindi.

Yndislegar myndir og fyrirsæturnar auðvitað gullfallegar

Dísa Dóra, 26.1.2008 kl. 23:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 2985799

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband