Leita í fréttum mbl.is

Aumustu réttlætinguna á valdaráninu í borginni á...

 

Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, en hún segir í visi.is að Björn Ingi hafi gefið tóninn, um svona vinnubrögð í pólitík.  Þess vegna er þetta auðvitað í lagi.  Reyndar tel ég að Bingi, hafi ekki komast nálægt þeim subbuvinnubrögðum sem viðhöfð voru að þessu sinni, svo þetta er ekki einu sinni í námunda við að vera réttmætt hjá konunni.  Sjálfstæðismenn stóðu einfaldlega ekki saman og því fór sem fór.

En Bingi gerðiða og þá megum viða skolíga.

Og hvað sagði ég í gær?

Um stuðninginn við valdaránsborgarstjórnarmeirihlutann og Ólaf F, borgarstjóra?

Jú, ég sagði að hann fyllti varla strætisvagn, nema rétt svo.

Skv. viðtengdri frétt þá stemmir það svona sirka hjá mér.

Djö.. sem ég er glögg.

Búin að skrifa á listann, ætla rétt að vona að fólk hafi fyrir því að skrifa sig á hann.  Öll þessi 70% eða svo, sem eru ekki happí með þróun mála hér í litlu Kreml.

Ætlum við að sæta þessu?

Njet, njet, njet.

Újé.


mbl.is 25,9% Reykvíkinga styðja nýjan meirihluta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: María Kristjánsdóttir

Hugskeyti heitir þetta.

María Kristjánsdóttir, 24.1.2008 kl. 08:13

2 identicon

Jenný- er ekki kominn tími á þig í pólitíkina ?  Ég meina bara á þing hreinlega ?  Held að Reykvíkingum veitti ekki af einni þér þarna inn.

Sveimér þá.  

Guðrún B. (IP-tala skráð) 24.1.2008 kl. 08:53

3 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Ég viðurkenni líka, að mér fannst þetta viðtal við hana Þorbjörgu með því undarlegra sem að ég hef lesið í þessum borgarfarsa síðustu daga! Merkilegt að finna ekki betri réttlætingu á þessum skrípaleik en fyrst að einhver byrjaði þá er allt í lagi að aðrir geri eins! Minnir mig á sandkassann einhverra hluta vegna !

Sunna Dóra Möller, 24.1.2008 kl. 08:57

4 identicon

Komandi formaður leikskólaráðs segir: Þú ullaðir á mig þá má ég ulla á þig, nönönö... Er hún ekki komin upp úr sandkassanum? Þarf ekki stundum að rassskella?

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 24.1.2008 kl. 09:33

5 identicon

þetta er alveg rétt hjá henni, Bíngó gerði nákvæmlega það sama og nú er að gerst s.s. einn maður sprengir meirihluta, nú grenjar fyrrverandi meirihluti yfir hvað Sjálfstæðisflokkur og Frjálsl. eru vondir við þá, mikið er gott að fá Sjálfstæðisf. aftur

Arnbjörn (IP-tala skráð) 24.1.2008 kl. 09:37

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Takk fyrir skemmtilegar umræður.  Guðrún: Ég er tilfinningamanneskja, þær hafa ekkert í seigfljótandi býrókratíu stjórnmálanna að gera, fullt að vel frambærilegu fólki sem vinnur þá vinnu vel.  Ég er einfaldlega og hvatvís fyrir pólitík.

Arnbjörn: Hvaða armur Sjálfstæðisflokksins gleður þig svona? Villi (1) eða dvergarnir 6?

Dúa: Þetta er með svo miklum ólíkindum að ég hélt að ég hefði á tímabili lent á fremsta bekk í leikhúsi fáránleikans.

Jenný Anna Baldursdóttir, 24.1.2008 kl. 09:50

7 identicon

Nei Villi vinstrimaður gleður mig ekki,  en það gleður mig að D sé komin til valda aftur, s.s. "dverganir 6" allt er betra en VG og Framsókn,

Arnbjörn (IP-tala skráð) 24.1.2008 kl. 10:00

8 identicon

Hmmm...hvað ætli að kosti....? segjum 100 millur þetta eru þá sirka 1000 kall á hvern Reykvíking, alveg tilbúinn að borga það til að fá VG og co. út, ekki veit ég hvað þú kallar að "vaða á drullugum skóm" var það ekki líka gerð af honum Bingó, í fyrra þegar hann sprengdi meirihlutann? Eða var sú stjórnarskipti bara í lagi? Það má kannski benda á það að það var Ólafur F. sem kom til Villa en ekki öfugt 

Arnbjörn (IP-tala skráð) 24.1.2008 kl. 12:17

9 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Fólk er alltaf að tala um hvað lýðræðið kostar. Eigum við ekki bara að hætta við það og beita einhverjum öðrum aðferðum sem kosta minna? Bara pæling.

Markús frá Djúpalæk, 24.1.2008 kl. 12:23

10 identicon

Ár rottunnar byrjar 7 febrúar næstkomandi.  Áhrif þess er farið að gæta nú þegar, eins og sjá má í borgarstjórnarmálum Reykjavíkurborgar.

 

Svona vill maður ekki sjá.

Guðbjörg (IP-tala skráð) 24.1.2008 kl. 12:55

11 identicon

Ég er svo fegin að fretkjaftarnir Svandís og Dagur séu ekki lengur í meirhluta.

Já er ekki best að leggja þetta batrí niður og við ráðum bara fólk í þessar stöður, engar kosningar. Ef við erum ósátt þá rekum við það og ef við erum sátt þá hækkum við launin svo þau vilji vinna lengur. Ég hef enga trú á því að kjósa eitthverja bavíana eins og Dag eða Villa til að ráða borginni. Ég myndi vilja ráða eitthvern hæfan, jafvel útlendskan, eitthvern stórlax úr einkageiranum.  

Bjöggi (IP-tala skráð) 24.1.2008 kl. 20:47

12 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Markús: Sammála þér, eilíflega verið að ræða gildi lýðræðis í krónum og aurum.  Er ekki einræði bara málið.  Hundbillegt.  Meiri asnagangurinn í fólki.  Allt metið í peningum.

Ár rottunnar, Guðbjörg, geturðu sagt mér nánar frá því?

Jenný Anna Baldursdóttir, 24.1.2008 kl. 22:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 7
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 44
  • Frá upphafi: 2985786

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.