Leita í fréttum mbl.is

London þá og nú

Þar sem ég er á leiðinni til Londres, er við hæfi að ég taki smá vapp niður minningagötu.  London var borg borganna hérna í denn.  "The swinging London", Bítles, Mary Quant, tískufrömuður, klúbbarnir, allt var best í London.  Fyrir mig og systur mínar, tískufríkin, var það toppurinná tilverunni að komast til London og versla föt.  Það var ekkert til hér á þessum guðsvolaða klaka, nema Karnabær og Drengjafatavinnustofan eða hvað það nú hét sem við framúrstefnulegu fórum og létum skraddera á okkur föt.

Hér er Twiggy í einum klassískum frá MQ.  Ég hefði myrt fyrir þennan kjól, en þurfti þess ekki, átti einn svipaðan.  Og skófatnaðurinn, GMG sjáið þessa

Svo var Biba búðin sú heitasta í bænum.  Á fimm hæðum, föt og allur pakkinn.  Ein flottasta verslun sem ég hef komið í.  Við áttum allar svona bol, get ég sagt ykkur

og svona skó líka,  eða líka þessum, minnir mig alveg örugglega

Hatt átti ég líka frá umræddri verslun og hann leit út einhvernveginn svona

Nema hvað minn var svartur og honum stolið af mér af ákaflega liggilegum manni.

Ójá.  Nú er Biba minnið eitt. Var það að minnsta kosti síðast þegar ég vissi, en alltaf kemur eitthvað skemmtilegt í staðinn.

Ég hef einhver ráð með að finna mér eitthvað skemmilegt.

Ætili það sé útsala hjá Stellu Paulsdóttur?

Písandnæsklóthing.

Úje!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Stella Pauls er víst komin í fæðingarorlof og allta á útsölu. Ég var í London 1969 og komst í Carnabi Street, mamma hálf bar mig inn á þá götu svo ég gæti sagt að ég hefði komið við, ég var í hjarta aðgerð og stóð ekki undir sjálfri mér, mútta var að kaupa fermingarkápuna og fleira og það leið yfir mig í hverri búð, þetta var í fyrsta sinn sem ég lyktaði af ilmsalti, fannst það vont. Vona að þú finnir spennandi búðir, er eiginlega viss um að það verður ekkert mál.

Ásdís Sigurðardóttir, 14.1.2008 kl. 19:49

2 Smámynd: Bjarndís Helena Mitchell

Góða ferð og njóttu góðra minninga. Gaman að þessari tísku, ég man allavega vel eftir Karnabæ. Fékk einu sinni buxur keyptar á mig á útsölu, eftir jólin. Það var verst að þær voru allt of stórar og héldust ekki uppi einu sinni með belti. Stækkaði á endanum aldrei í þær, en svona er það víst að eiga skoskan pabba....

Bjarndís Helena Mitchell, 14.1.2008 kl. 20:07

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ég hef aldrei komið til Londons......

.....en mikið vona ég að þú skemmtir þér rosalega vel!

Hrönn Sigurðardóttir, 14.1.2008 kl. 20:30

4 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Ég elska þessa skó.......ég dáist að þeim reyndar úr fjarlægð þar sem að ég gæti aldrei gengið á svona skóm....(180 cm á hæð...ég er ekki að plata )...ég væri eins og Eiffel turninn gangandi um Rvk í svona hælum en mikið sem mig hefur alltaf langað til þess að geta það !

Ég væri til í að vera að fara til London.....þú ert heppin kona

Sunna Dóra Möller, 14.1.2008 kl. 21:03

5 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

Í þá gömlu góðu daga....en Guði sé lof fyrir lágbotna skó, gigt aldur og fyrri störf leyfa ekki skó með háum hælum, ja nema rétt svona til að sýnast og þá sitjandi á stól

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 14.1.2008 kl. 21:19

6 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Tímalaust. algjörlega tímalaust

Jóna Á. Gísladóttir, 14.1.2008 kl. 22:04

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Eruð þið ekki sammála því stelpur að allt fer í stöðuga hringi svona fashionwise?  Ég myndi vilja eiga hvert eitt og einasta ætem af þessu gamla dæmi.  Skórnir eru geggjaðir.  Biba var frábær.  Those were the days. OMG Nostalgíukast.

SD Vertu ekkert að pæla í lengdinni, hver aukasentimetri eykur á glæsileikann.

Jenný Anna Baldursdóttir, 14.1.2008 kl. 22:12

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ásdís, þú hefur þá væntanlega komið í Carnaby street þegar það var teppalagt.  Vá hvað manni þótti það ógó merkilegt.

Jenný Anna Baldursdóttir, 14.1.2008 kl. 22:14

9 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Algjörlega sammála, það fer allt í hringi og kemur allt aftur og aftur! Þessi síðasta mynd, grái síði bolurinn.....væri til í að eiga einn svoleiðis núna....algjört æði....!

Takk Jenný....þú veist ekki hvað ég hef oft haft stærðar komplexa hahahahahhaa...sem betur fer hef ég þroskast upp úr þeim....bara megrunarkomplexinn eftir og þá verð ég fullkomin...!

Sunna Dóra Möller, 14.1.2008 kl. 22:17

10 Smámynd: Eva Benjamínsdóttir

Oh my God, NOSTALGIA! Þetta var yndislegur tími, föt og meiri föt, litir blóm og músík. Ég var með frá byrjun í Karnabæ og keypti mikið inn og valdi fyrir verslunina. Stundum var ég kölluð Twiggy, kannski bara af því ég var mjó með stutt ljóst twiggy stílað hár, einsog maður hafi ekki haft fyrirmynd. Var líka að sýna föt og kynna MQ snyrtivörur. Ég þurfti 6-7 metra slá fyrir fötin mín og platform skór út um allt og leðurstígvél uppí klof í mörgum litum. Síðar fór ég með allt í Hjálpræðisherinn, flaug til Ameríku og gerðist Hippi.

Það fer allt í hringi, samt breytist allt! Góða ferð til London Jenný, London er skemmtileg borg   

Eva Benjamínsdóttir, 14.1.2008 kl. 23:19

11 identicon

Já London í den......er ekki viss um að stemmingin sé sú sama, en vona það þín vegna!  Hef sjálf ekki komið þangað í mörg ár, en var með "annan fótinn" í Oxford stræti frá 1970 - 76, og þekkti íslendingana hvar sem þeir fóru, Þar fór sko fólk sem var vel inni í tískustraumunum, þú hefur örugglega verið ein að þeim sem ég dáðist af Jenný Anna!

Varstu ekki bara heppin að þessi "liggilegi" stal bara einum hatti frá þér? 

Sigrún Jónsdóttir (IP-tala skráð) 14.1.2008 kl. 23:57

12 Smámynd: Eva Benjamínsdóttir

Sigrún: Hæ ég var þar fyrr, 66-67. Hefði verið gaman að rekast á þig. I travelled alone mostly. Ég lærði að syngja Clementime hjá Bjarna í enskunni og var einn vetur hjá Ævari Kvaran og þóttist fullnuma. Lífið er leikrit. Og að rekast ekki á Jenný? Ég er eldri stelpur mínar, verð að viðurkenna það. Ég var 20 1966.

Þetta máttu bara ekki gera Jenný mín, mig fer að langa í backflash leik. góða nótt

Eva Benjamínsdóttir, 15.1.2008 kl. 02:40

13 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Var aldrei svona Londonpía í denn en eftir að dóttir mín flutti þangað og bjó í átta ár fór ég að átta mig á Drottningarborginni og eins og Jóna segir hún er tímalaus.  Góða ferð Jenný mín.  Skilaðu kveðju til Betu og Kalla frá mér Góða ferð.

Ía Jóhannsdóttir, 15.1.2008 kl. 09:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.