Leita í fréttum mbl.is

Henda á bak við hús - já, já

Í gær var eins og ég hefði malbikað allan Laugaveginn, hjálparlaust, án matar eða kaffihlés.  Ég var  einfaldlega eins og draugur. 

Ég hressist ögn þegar þessi fallegu systkini komu í heimsókn til ömmu og Einars, enda ekki lítið fútt í fá skemmtilegt fólk í innlit.

Jenný Una: Amma, taktu jólatréð, jólin eru búin, mamma mín segirða.

Amman: Jenný mín, amma ætlar að taka niður jóladótið á morgun (á morgun segir sá lati).

Barn: Nei núna skrass, jólasveinarnir eru farnir heim til mömmu sinnar, jólin eru bönnuð. Og svo hóf hún að plokka kúlur af tré.

Þetta varð til þess að jóladót var tekið niður og raðað í kassa en við lentum í smá vanda þegar kom að því að taka gervijólatréð saman (sem við keyptum í jólatréseklunni í fyrra), því barn stóð á því fastar en fótunum að trénu ætti að henda bak við hús, "aþí pabbi minn gerðiða".  Það tók smá tíma að útskýra, að hlutir væru ekki alltaf eins, allsstaðar, en Jenný Una, var ekkert sérstaklega sátt.

Svo héldum við Einar á Hrafni Óla til skiptis, en hann var vakandi og átti 2ja vikna afmæli í gær.  Hann horfði á okkur með fallegu augunum sínum og rak stundum tunguna út úr sér og geiflaði sig í framan.

Jenný: Hann ullar stundum, aþþí hann er svo lítill barn.  Amma þú mátt halda á bróðir mín af því ég er bílstjórinn og ég ræður alveg.W00t What???

Og..

Amma farru varrlea, hann er mjög, mjög lítill.  En hún var svo sem ekkert að vanda sig neitt sérstaklega, þegar hún kom reglulega og "knústi" bróður sinn og kyssti svo það small í.

Og svo vorum við ein gamla settið og allt varð smá tómlegt. 

Við vorum farin að sofa, töluvert löngu fyrir miðnætti.

En jólin eru niðri.  Ekki kúlu að sjá, ekki dúk né kerti, sko jólakerti.

Svona er það gott að drífa sig í hlutina með aðstoðarmanni.

Hér er svo mynd af Maysunni minni og Oliver, sem þegar eru farin heim til London, ég get ekki beðið eftir að knúsa þau þ. 18. n.k.

20080106140802_12


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Alveg ómissandi að hafa svona bílstjóra sér til halds og trausts  Hver ferðu með malbikunarvélina næst... nokkuð á leið norður í land ?

Jónína Dúadóttir, 7.1.2008 kl. 08:52

2 Smámynd: Þröstur Unnar

Hún er bara dúlla þessi stelpa. Kannast við svona dugnað og ráðríki frá minni litlu, sem klæðist nákvæmlega eins bol, eins oft og hún mögulega getur. Mín sá í gær jólatré á hliðinni fyrir utan hjá okkur og skipunin " pabbi koddu að reysa tréð við" gall við í logninu.

Þetta er merkjafólk á þessum aldri.

Hello Kitty, Barbí og Princess rokka feitt.

Þröstur Unnar, 7.1.2008 kl. 08:53

3 identicon

Snilldar stúlka.Jebb jólin búin í gær.Ég búin að setja mín í skáp ekki geymslu svo jólaþjófurinn komi ekki á árinu.Og tré komið bakvið hús.Hér er allt eins og það á að vera.hahahahahaha

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 7.1.2008 kl. 08:59

4 Smámynd: Bjarndís Helena Mitchell

Ég fæ alltaf krúttkast þegar þú fjallar um þessa dömu. Hún er náttúrulega bara yndisleg, og allt er svo klippt og skorið og í réttu skipulagi. Knús frá mér.

Bjarndís Helena Mitchell, 7.1.2008 kl. 09:35

5 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Hún er algjört krútt þetta barn og með það á hreinu hver stjórnar !

Hafðu það gott í dag !

Sunna Dóra Möller, 7.1.2008 kl. 10:01

6 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Jólin koma, jólin fara, jólin koma, jólin fara... same old story!  .. Gott að unga daman veit hvað hún vill og hver stjórnar, það er ágætis veganesti út í lífið!

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 7.1.2008 kl. 10:14

7 Smámynd: Dísa Dóra

hehe  hlakka til eftir nokkur ár þegar sennilegast verður eins svona stjórnsöm (afsakið hjálpsöm) dama sem segir mömmu sinni til

Hún er algjör gullmoli þessi dama

Dísa Dóra, 7.1.2008 kl. 10:15

8 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Hvernig er þetta með þig, kona? Gastu ekki fórnað einu gervijólatré? Jenný Una er svo mikið krútt, að hún á alltaf, alltaf að ráða

Ragnhildur Sverrisdóttir, 7.1.2008 kl. 11:00

9 Smámynd: Ragnheiður

Ég hefði betur vitað þetta þegar ég reytti hár mitt og skegg við að kroppa af trénu hérna. Ég er alveg viss um að Steinar hefði sko samþykkt að henda trénu út á bakvið ef ég hefði haft heimildir fyrir því

Næstu malbikunarframkvæmdir verða heima hjá mér, planið hjá Dúu er malbikað en ekki innkeyrslan mín.

Ragnheiður , 7.1.2008 kl. 11:06

10 Smámynd: Ibba Sig.

Jenný mín, langar að benda þér á Öskjuhlíðina. Veit að hún hefur komið fullt af fólki til bjargar þegar jólatrjáaskortur gerir vart við sig í höfuðborginni! Bara senda húsbandið út með sögina.

Ibba Sig., 7.1.2008 kl. 11:08

11 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Algjör gullmoli þessi stelpu skrúfa þín.  Það verður ekki leiðinlegt fyrir þig með þau tvö næstu ár, ætli Hrafn Óli verði ekki jafn duglegur með svona góða fyrirmynd.  Hvíldu þig ef þú ert þreytt, það ætla ég að gera.

Ásdís Sigurðardóttir, 7.1.2008 kl. 11:28

12 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Barnið er hrein unun. Get eiginlega ekki beðið eftir að Hrafn Óli fari að tjá sig. Ég er viss um að samtöl á milli systkinanna verða á þann veg að gullmolarnir drjúpi af hverju strái.

Jóna Á. Gísladóttir, 7.1.2008 kl. 11:57

13 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Jenný Una verður auðvitað malbikunarstjóri íslands og fer um allt land á skafaranum og ýtir öllu á sinn stað. Jenný mín....þú þarft hressingu...hringi til þín NÚNA!!!!

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 7.1.2008 kl. 12:27

14 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Gat nú skeð..á tali

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 7.1.2008 kl. 12:28

15 identicon

Frh. af síðasta kommenti ... og svo er líka jafn dásamlegt að kíkja hér inn í hádegisbloggrúntinum (sem er mjög, mjög stuttur).

Ég er í krúttkasti eftir þennan lestur. - Knús til þín og þinna

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 7.1.2008 kl. 12:50

16 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Það er ekki einu sinni að ég geti haft nokkuð sniðugt eftir mínum barnabörnum því þau eru algjörir Svíar og tala bara sænsku! Ótrúlegt.

En það er gaman að heyra allt um Jenný Unu - gott að hafa eina stjórnsama, annars er ekkert víst að þetta hefði orðið fyrr en eftir dúk og disk!

Segi sona - það er nebbilega solleiðis hjá mér, allt gert í rólegheitunum.Og nú er ég farin að taka kúlurnar af - blessjú.

ps. geturðu hjálpað mér með myndasystemið á blogginu?

sama

Edda Agnarsdóttir, 7.1.2008 kl. 14:09

17 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hvernig aðstoð vatnar þig með myndasystem?

Jenný Anna Baldursdóttir, 7.1.2008 kl. 14:38

18 Smámynd: Hugarfluga

ARG! Krúttkast!!!!!! *svitn* 

Hugarfluga, 7.1.2008 kl. 20:19

19 Smámynd: Kolgrima

Þetta er bara yndislegt og hlýjar svo sannarlega um hjartarætur Gleðilegt ár, góran mín.

Kolgrima, 8.1.2008 kl. 01:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 2985800

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband