Laugardagur, 22. desember 2007
Og þá er það Stenna
Litla systir mín hún Steinunn Baldursdóttir (Stennhildur Djóns) á afmæli í dag. Það vill svo skemmtilega til að hún á afmæli 11 dögum á eftir mínum eigins frumburði.
Mér þótti það ekki fyndið, tæplega nítján ára gamalli, að vera ófrísk á sama tíma og mamma mín. Fannst það fyrir neðan allar hellur. Ji hvað maður gat verið hallærislegur. Allt mömmu að kenna fannst mér, ég hins vegar leiddi aldrei hugann að því að ég væri verðandi móðir aaaaaðiens í yngri kantinum.
Nú og svo fór ég á Fæðingarheimilið. Átti Helgu Björk Laxdal þ. 11. desember, eins lög gerðu ráð fyrir agú, dada og gaman hjá mér. Þá þurftu sængurkonur að liggja í viku, minnir mig, áður en okkur var sleppt heim.
Það upphófst bið. Ég barnaleg eins og ég var, var í víðtæku rusli yfir að mamma mín kæmi til að eiga á meðan ég lægi á Fæðingarheimilinu. Ég mátti ekki heyra í sjúkrabíl þá fór ég á límingunum.
Ég alveg: Hvað á ég að gera ef hún kemur á meðan ég er hér: Alveg: Mamma, amma, systir, afi og allur pakkinn hérna. Sumir voru nefnilega jafn barnalegir og ungur aldur þeirra sagði til um.
Ég slapp heim, mamma inn og á þessum degi fyrir 37 árum fæddist litla, fallega og góða systir mín hún Steinunn, kennari og mamma hennar Kötlu Bjargar. Þær frænkurnar Helga og Stenna hafa alltaf verið góðar vinkonur og ekki verra að fólk sé samstíga í barneignum í fjölskyldunni.
Elsku Stenna mín, til hamingju með daginn þinn.
Knús og þúsund kossar frá stóru systur og við sjáumst kátar um jólin.
Falalalalalala
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Dægurmál, Vefurinn, Vinir og fjölskylda | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 21
- Frá upphafi: 2986898
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 18
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bláar eyllýar
- Bloggar
- Bækur
- danskar kjötbollur með sósu
- Dómar
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Femínistablogg
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Halloki
- Hamfarablogg
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hneyksli
- Íþróttir
- Jólafár
- Kjaramál
- kvikindiskapur og illt umtal
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Lúkas
- lygasögur
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjálfsdýrkun
- Sjónvarp
- Snúra
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Synt til sigurs
- Synt yfir sundið
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Þvagleggur
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Tenglar
Tónlist
Vinir og fjölskylda
Vinkonur
Ég les alltaf
Netmiðlar
Tónlistarspilari
Bloggvinir
- draumur
- jonaa
- hronnsig
- larahanna
- skessa
- eddaagn
- amman
- annabjo
- annambragadottir
- annaragna
- asthildurcesil
- kolgrima
- birnan
- bjarnihardar
- brjann
- brylli
- christinemarie
- danjensen
- lillagud
- disadora
- einari
- einarorneinars
- emm
- estro
- evabenz
- fifudalur
- garun
- gelgjan
- gunnarggg
- halkatla
- halo
- hildurhelgas
- heidah
- helgamagg
- hildigunnurr
- iaprag
- hlynurh
- hugarfluga
- hugsadu
- ibbasig
- katrinsnaeholm
- ingolfurasgeirjohannesson
- jogamagg
- jara
- jensgud
- katlaa
- krummasnill
- krissa1
- lehamzdr
- ktomm
- laufeywaage
- lauola
- lindalinnet
- madamhex
- maggij
- majaogco
- mariakr
- markusth
- meistarinn
- motta
- nimbus
- olinathorv
- pollyanna
- ragnarfreyr
- ragnhildur
- ringarinn
- rosa
- roslin
- saedis
- sailor
- salkaforlag
- skordalsbrynja
- skrifa
- snar
- soley
- steingerdur
- steinnhaf
- steinunnolina
- stinajohanns
- sunnadora
- svetlana
- thuridurbjorg
- tibet
- tigercopper
- toshiki
- unns
- valgerdurhalldorsdottir
- wonderwoman
- vefritid
- vest1
- bidda
- zeriaph
- killjoker
- sisvet
- gudrununa
- dora61
- possi
- gelin
- silfri
- jyderupdrottningin
- gretaulfs
- sibba
- baldvinj
- stjaniloga
- bokakaffid
- kreppukallinn
- jonerr
- gerdurpalma112
- adhdblogg
- astafeb
- snjolfur
- haddih
- brell
- reisubokkristinar
- little-miss-silly
- baldis
- olofdebont
- kikka
- jarnar
- thorolfursfinnsson
- birnast
- vrkristinn
- leifur
- astroblog
- bjarkey
- manisvans
- siggisig
- nordurljos1
- gunnaraxel
- ragnar73
- sij
- kreppu
- runirokk
- gotusmidjan
- dorje
- slembra
- skari60
- must
- fhg
- aevark
- fridaeyland
- hedinnb
- cakedecoideas
- taraji
- audurproppe
- kollakvaran
- finni
- arnaringvarsson
- samstada
- drum
- gretarogoskar
- tbs
- vistarband
- valdivest
- fingurbjorg
- gustichef
- skulablogg
- andreskrist
- fasteignir
- rognvaldurthor
- helgatho
- gullfoss
- bailey
- jennystefania
- gattin
- annaandulka
- ansy
- gumson
- berg65
- bjarnimax
- brahim
- elin
- gudlaugbjork
- dramb
- gudrunkatrin
- hvilberg
- himmalingur
- ingaragna
- naflaskodun
- kiddirokk
- sigurborgkrhannesdottir
- joklamus
- stjornlagathing
- saemi7
- unnurgkr
Athugasemdir
Til hamingju með systir þína, trúi að þetta hafi verið doldið skrítið þarna um árið, þér fannst auðvitað mamma þín halló að vera ólétt svona "gömul" þá, vona að hnéið komi til, farðu samt vel með þig.
Ásdís Sigurðardóttir, 22.12.2007 kl. 11:41
Til hamingju með systur þína !
Sunna Dóra Möller, 22.12.2007 kl. 11:46
Gaman að þessu, og til hamingju með systur þína!
Langt síðan ég hef kíkt á bloggið þitt (trúarhitinn!), loksins var ég að fatta "nýju konuna" sem ég sá í kommentum hjá Röggu
Gleðileg jól!
Greta Björg Úlfsdóttir, 22.12.2007 kl. 12:04
Til lukku með systir þína
Leiðinlegt að heyra af slysinu þínu Jenný, vonandi lagast fóturinn sem fyrst svo þú komist þó í sparikjólinn og háhæluðu skóna á gamlárskvöld!
Gleðileg jól til þín og fjölskyldu þinnar, takk fyrir skemmtileg bloggkynni á árinu
Huld S. Ringsted, 22.12.2007 kl. 12:15
Gleðileg Jól Jenný mín og fjölskylda.
Kristín Katla Árnadóttir, 22.12.2007 kl. 12:53
Ég óska þér og fjölskyldunni gleðilegra jóla.Svo langar mig að þakka þér fyrir einstaklega skemmtileg blogg:) Það er nú bara þannig að mér hlakkar alltaf til að lesa bloggið þitt á hverjum degi.Það er alveg sama hvað þú skrifar um, fjölskylduna samfélagsmál eða snúruna alltaf svo gott að kíggja til þín:)Og takk fyrir að setja myndina af þér hér inn, var að vísu búin að sjá þessa mynd í fréttablaðinu.Svo eitt enn ég kaupi bókina þína um leið og hún kemur út....bara hvenær???Innilegar jólakveðjur Sigrún
Sigrún Ásdísardóttira (IP-tala skráð) 22.12.2007 kl. 13:16
Frábært, get alveg skilið þig, hvað er hallærislegra en eldgömul kerling, þrjátíuogeitthvað, mamma þín í þokkabót, liggi inni á fæðingardeild um leið og þú. Hahahhahahha! Til hamingju með litlusystur, elsku krúttið mitt.
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 22.12.2007 kl. 13:18
Til hamingju með systur þína. Skemmtilegur pistill eins og alltaf...
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 22.12.2007 kl. 13:24
Takk kærlega fyrir kveðjurnar.
Jenný Anna Baldursdóttir, 22.12.2007 kl. 14:00
Maður bregður sér frá í smá stund og bloggvinir slasast á meðan.Susssu bara. Þegar Krumman mín fæddist var ég 6 ára.Pabbi varð afi í fyrsta sinn á sama tíma. Ég skammaðist mín svo mikið að ég sagði engum frá þessum barneignum.
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 22.12.2007 kl. 14:37
hehe. Velti því fyrir mér hvort skömmin felist í opinberun á kynlífi ''gamalla'' foreldra manns. Sem betur fer átti amma ekkert barn um leið og ég átti Gelgjuna... enda orðin 79 ára á þeim tíma.
knúsí knús. Þar sem ég geri ráð fyrir því að þú haldir á símtóli með hendi en ekki fæti þá áttu von á símtali seinna í dag
Jóna Á. Gísladóttir, 22.12.2007 kl. 15:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.