Leita í fréttum mbl.is

Aflið fjársvelt

 

Ég bið ykkur að gefa gaum færslu sem má lesa inni hjá Jens Guð  en systursamtök Stígamóta, Aflið en samtökin eru í fjársvelti.

Samtök eins og Stígamót og Aflið eru lífgjafi fjölda þolenda kynferðislegs ofbeldis og þar fyrir utan veit ég að samtök eins og Stígamót (þekki ekki til Aflsins hvað þetta varðar)eru að vinna að fræðslu bæði fyrir faghópa sem og almenning. Það er líka ómetanlegt starf.

Þetta verður aldrei fullþakkað.

Auðvitað á samfélagið að sjá svona starfsemi fyrir rekstrarfé.  Mér skilst að  sveitafélögin fyrir norðan séu að styrkja Aflið með einhverjum þúsundköllum.  Auðvitað er það þakkarvert þegar fyrirtæki og einkaaðilar styrkja svona starfsemi en ofbeldi og afleiðingar þess er auðvitað samfélagsins að bera ábyrgð á.  Engin spurning um það að mínu mati.

Þetta gengur ekki upp.

Taka á málum.

Komasho.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Bragi Sigurðsson

Var að hlusta á þetta.

Kannske kona í neyð...

P.s. Nú er ég ekki að vera nasy eða neyðarlegur gagnvart Femínistum. Nú er ég einlægur.

http://www.youtube.com/watch?v=xVZaEUK7Jys

Jón Bragi Sigurðsson, 15.12.2007 kl. 07:01

2 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Ef það er eitthvað sem getur sett mig á hausinn í desember, þá eru það öll félagasamtökin sem eru að safna fyrir sínum málstað, af því að ég get aldrei sagt nei... Alveg sama þó það sé hringt í mig og í símaskránni er númerið mitt merkt með x... Aflið og Stígamót eru því miður hreinlega lífsnauðsynleg samtök og eru búin að bjarga ofsalega mörgum. Þau ættu að vera á fjárlögum, vegna þess, eins og þú nefnir er ekki nóg að við séum að henda einum og einum þúsundkalli í áttina til þeirra....

Jónína Dúadóttir, 15.12.2007 kl. 08:17

3 Smámynd: Jón Bragi Sigurðsson

Sjáðu litla "dýrið" Flott!

http://www.youtube.com/watch?v=cC344HYDpLU

Jón Bragi Sigurðsson, 15.12.2007 kl. 09:07

4 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Whoohoo!! Ekkert smá flott í Fréttablaðinu í dag!!!!!

Sorry... ætla ekki að trufla Afls-umræðuna, lá bara svo á að segja þér:)

Heiða B. Heiðars, 15.12.2007 kl. 09:35

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Takk Heiða mín, 

Jenný Anna Baldursdóttir, 15.12.2007 kl. 10:26

6 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Flott viðtalið við þig í Frettablaðinu í dag

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 15.12.2007 kl. 10:30

7 Smámynd: Huld S. Ringsted

Flott í Fréttablaðinu í dag! og myndin æðisleg

Í sambandi við Aflið þá er þetta hneykslanlegt hvað þær fá litla styrki, ég þekki eina af konunum sem eru í forsvari fyrir Aflið og um daginn talaði ég við einn af okkar þingmönnum fyrir hana og hann lofaði mér að gera hvað hann gæti en svo veit ég ekki hvort eitthvað hefur komið útúr því. 

Huld S. Ringsted, 15.12.2007 kl. 10:47

8 Smámynd: Þröstur Unnar

Hvað ertu annað en frábær, Jenný Anna.

Þín saga verður örugglega mörgum stuðningur.

Þröstur Unnar, 15.12.2007 kl. 11:17

9 Smámynd: Heiða  Þórðar

Sú er flott...takk fyrir góðan lestur í Fréttablaðinu í morgun sæta mín

Heiða Þórðar, 15.12.2007 kl. 11:24

10 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Ég var að lesa viðtalið og þú ert svo flott og frábær og mikil hetja! Takk fyrir mig, ég las í einum belg og biðu án þess að líta upp, þetta viðtal á vonandi eftir að hjálpa einhverjum í sömu sporum!

Takk fyrir mig !

Sunna Dóra Möller, 15.12.2007 kl. 11:35

11 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Maðurinn kom askvaðandi inn að rúmi til mín með blaðið og sagði, Edda það er vital við Jenný í blaðinu!

Ég reis upp við dogg og tók blaðið og fletti beint upp á viðtali og las í einum teig. Frábært og sæt og afslöppuð mynd af þér! Mest hissa á að það ber ekki á neinni ofvirkni í myndinni, þannig að þetta er heilun. Allir að blogga!

Edda Agnarsdóttir, 15.12.2007 kl. 11:56

12 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Svei mér þá ef flensan dró sig ekki í hlé rétt á meðan ég var að lesa þetta góða viðtal. Takk fyrir!

Ragnhildur Sverrisdóttir, 15.12.2007 kl. 12:22

13 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Æi takk krúttin mín, ég fer nú eiginlega hjá mér.  En þökkujm SÁÁ, þeir redda kjéddlum eins og mér og Gunnar Þór, algjört möstríd

Stundum geta konur ekki sofið.

Jenný Anna Baldursdóttir, 15.12.2007 kl. 13:02

14 Smámynd: Jens Guð

  Takk kærlega,  Jenný,  fyrir þessa færslu.  Ég vissi að þú myndir bregðast vel við.  Flott viðtalið við þig í Fréttablaðinu í dag.  Þú ert glæsileg á myndinni sem fylgdi viðtalinu.  Þú hefur alla mína aðdáun fyrir það hvað þú ert opinská.  Bæði í viðtalinu í Fréttablaðinu og hér á blogginu.

Jens Guð, 16.12.2007 kl. 01:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 2985866

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 53
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31