Leita í fréttum mbl.is

Orðatilgerð

Ef ég ætti barn í Viðisstaða- eða Setbergsskóla, væri ég u.þ.b. tilbúin að gera byltingu.  Ekki minna en það og jafnvel meira.

Það er ekkert minna en mannréttindabrot að hafa þenna fingrafaralesara við við afgreiðslu máltíða í mötuneytum skólanna.

Persónuvernd hefur kveðið upp úr með að þetta sé í lagi.

Það er eitthvað svo óhugnanleg tilhugsun að börnin þurfi að rétta fram fingur til að láta lesa af honum og mér þætti ákaflega fróðlegt að vita hvað kemur upp á skjáinn þegar það er gert.

Hvort foreldrar eru búnir að borga?

Eitthvað fleira kannski?

Ég er satt að segja komin með upp í háls á þessum stöðugu árásum í einkalíf venjulegs fólks og einkum og sérílagi fer það í mig þegar svona beinist að börnum. 

Í tilkynningu persónuverndar koma fram eftirtalin orð:

Einkvæmar talnarunnurW00t (ekki runur?)

Að staðreyna

Valkvæð notkun

Halló; hvað varð um venjuleg heiðarleg íslensk orð sem skiljast umbúðalaust?  Er verið að setja sig á háan hest hérna eða á textinn að vera trúverðugri með þessari orðatilgerð?

Orðasalat hvað?

Arg.


mbl.is Fingrafaralesarar í lagi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Er ekki verið að byrja á total information awareness - hver veit hvar leynist lítill hryðjuverkamaður!!!!

Hrönn Sigurðardóttir, 4.12.2007 kl. 13:17

2 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Þetta er allavega í meira lagi sérkennilegt!

Edda Agnarsdóttir, 4.12.2007 kl. 13:52

3 Smámynd: Einar Indriðason

Þeir foreldrar (og/eða börn) sem ekki vilja nota fingrafaraskannann hafa möguleika á að framvísa matarmiðum.

En, já, þetta er ekki sú þróun sem maður vildi endilega sjá.

Einar Indriðason, 4.12.2007 kl. 14:46

4 identicon

Sonur minn er í grunnskóla í Hafnarfirði og það kemur ekki til greina að hann verði gerður að talnarunu í því starfi sem þar fer fram. Ef að skólarnir eru orðnir það stórir og ópersónulegir að börn þurfi að vera allt að því strikamerkt til að þekkjast, þá erum við sem þjóð komin í mikil vandræði. Fyrir mér snýst þetta um að virðingu fyrir einstaklingnum, sonur minn er ekki strikamerkt söluvara heldur yndisleg persóna af holdi og blóði og ég krefst þess að hann fái að halda áfram sínu lífi sem manneskja, ekki talnaruna.

Júlíus Freyr Theodórsson (IP-tala skráð) 4.12.2007 kl. 15:00

5 Smámynd: Þarfagreinir

Einkvæmar talnarunur segiði ... hvað er kennitala annað en einkvæm talnaruna (það er að segja; runa af tölum þar sem ein runa er tengd við hvern einstakling)?

Íslendingar eru það samdauna þessu kennitölukerfi að þeir sjá nákvæmlega ekkert athugavert við hvernig kennitölur eru notaðar, né heldur eru þeir feimnir við að gefa þær upp. Sjaldan hugsum við um þá staðreynd að áþekkt kerfi er hvergi við líði annars staðar í heiminum.

En þegar talað er um einkvæmar talnarunur í einhverju öðru samhengi sjá margir allt í einu ástæðu til að staldra við.

Hér er útskýring á mannamáli á því hvað er hér á ferðinni:

1) Fingrafar er lesið.

2) Fingrafarinu er breytt í talnarunu sem er einkennandi fyrir það tiltekna fingrafar (sumsé; fyrir hvert fingrafar er reiknuð út talnaruna sem ekki getur ruglast við þá talnarunu sem er reiknuð út fyrir eitthvað annað fingrafar).

3) Talnarunan sem fékkst í skrefi 2) er tengd við kennitölu barnsins ... í rauninni ekkert annað en uppfletting þar sem eitt sett er tengt við annað sett. Svipað og að fletta upp í þjóðskrá, nema hér eru það fingrafaratölurnar en ekki nöfnin sem eru tengd við kennitölurnar.

4) Kennitalan er notuð til að fletta upp upplýsingum í tölvukerfi.

Af þessu má klárlega sjá að það eina 'nýja' í þessu ferli er notkun fingrafarsins til að tengja við kennitöluna. Ef börnin væru beðin um kennitöluna beint væri einfaldlega farið beint í skref 4), og fletta mætti upp hverju sem fólk vill skrá í þetta tölvukerfi. Spurningar þínar, Jenný, um hvað sé skráð í kerfinu, eiga þá jafn vel við um öll tölvukerfi sem geyma persónuupplýsingar sem eru tengdar við kennitölur ... og þau eru sko æði víða í íslensku samfélagi fyrir.

Þannig að mér þykir, með fullri virðingu, fullseint í rassinn gripið til dæmis hjá þér, Júlíus, þegar þú segir að sonur þinn eigi ekki að vera gerður að talnarunu í skólastarfinu - því hann er nú þegar talnaruna (kennitala) í tölvukerfi skólans, sem og öllum tölvukerfum þar sem upplýsingar um hann eru skráðar. 

Reyndar má setja spurningamerki við aðferðir á borð við fingrafaraskönnun, sem bjóða upp á að kennitalan sé lesin af fólki nánast sjálfkrafa, en þarna er um stigsmun að ræða, ekki eðlismun. Kennitalan er hin upphaflega íslenska einkvæma talnaruna.

Munið það bara næst þegar þið farið í videoleigu og gefið upp kennitölu - þið eruð öll einkvæmar talnarunur nú þegar!

Total Information Awareness minn rass. Íslendingar eru langt á undan því.

Þarfagreinir, 4.12.2007 kl. 16:24

6 Smámynd: Þarfagreinir

En já, svo ég bæti við þessa langloku, þá á þetta auðvitað að vera talnarunur í fréttinni, ekki talnarunnur - rétt til getið hjá þér, Jenný.

Þarfagreinir, 4.12.2007 kl. 16:26

7 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Í World Class/Laugum er augnskanni sem þekkir augasteininn í mér og hleypir mér inn um hlið ..  Þetta er svolítið scary.  Heyrði kjaftasögu um að eini maðurinn sem neitaði að nota þetta væri Kári í Decode. Sel það þó ekki dýrarara en ég keypti það!  .. og eflaust er þetta bull og þvæla!

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 4.12.2007 kl. 17:16

8 identicon

Það er satt með kennitöluna, hún er miklu meira 'scary' heldur en þær runur sem þessir skannar skila af sér, og það er hún sem mun gera það kleyft að fylgjast með tiltölulega einföldum hætti með hreyfngum og gerðum allra íslendinga.  Mönnum er tíðrætt um augnskanna hjá WC, en svo vill til að augun okkar (fyrir utan fingraskanna) eru auðveldasta leiðin til að aðgreina einstaklinga vélrænt, og þessvegna einstaklega vel til fallin að nýta við að flýta fyrir afgreiðslu.

Í jafn stórri stöð og WC, væri það afskaplega leiðingjarnt að fara í afgreiðslu og rétta fram fingur (eða skilríki) til að fá staðfestan aðgang....líklega yrði röðin löng, auk þess sem aðgangurinn yrði líklega mun dýrari til að greiða fyrir allt starfsfólkið til að sinna þessu.

Ekki veit ég sannleikann um Kára, en ég veit ekki betur nema að hann sé með nákvæmlega samskonar kerfi upp í DeCode fyrir aðgangsstýringar þar.  En kæmi mér ekki óvart að hann hefði verið með uppistand, bara svona til að minna á sig.

Persónuvernd og þessar talnarunur eða notkun skanna við að flýta eða auðvelda þjónustu er ekkert sem fólk þarf að hafa áhyggjur af.  Aftur á móti frekar hvað stóri bróðir mun aðhafast til að komast yfir gögn og tengja þau saman.....með kennitölunni.

kv,

E.

e (IP-tala skráð) 4.12.2007 kl. 17:40

9 identicon

Aftur á móti er spurning hvort að það þurfi svona kerfi í skólum yfirleitt...auðvitað ætti þetta að vera frítt og trygging fyrir að öll börn fengju allavega eina næringarríka máltíð á dag...burtséð frá tekjustöðu foreldra.

Hvernig væri að vera með einn "risa hátekjuskatt" af tekjum yfir 100 milljarða sem væri settur í þetta.  Eða sérstakan söluskatt á Hvíta Range Rovera.

E.

E (IP-tala skráð) 4.12.2007 kl. 17:52

10 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

E: Heyr, heyr, að sjálfsögu eiga skólamáltíðar að vera fríar.  Það á ekki að þurfa að ræða það einu sinni.  Takk annars fyrir þitt innlegg í umræðuna.

Þarfagreinir: Takk líka, fróðlegt þetta.

Jóhanna: Þetta dugir til að halda mér frá WC það sem ég á eftir ólifað og í næsta lífi líka. (þvílík skammstöfun á fyrirækinu ÓMG!)

Júlíus Freyr: Hjartanlega sammála.  Þarna set ég eiginlega mörkin.

Ólafur: Þetta er skelfileg framtíðarsýn.

Einar: Það á að finna annað fyrirkomulag en þetta.  Svo einfalt er það.

Hrönn: Góð.

Edda: Segðu.

Jenný Anna Baldursdóttir, 4.12.2007 kl. 22:14

11 identicon

Ég persónulega held að þetta sé ekkert svo vitlaus hugmynd. börn eru gjörn á að tína hlutum (reyndar fullorðnir líka ef út það er farið) en er ekki betra að vita til þess að barnið þitt fái nú pottþétt að borða, sér í lagi ef að þú borgar fyrir matinn, en að það fái ekki að borða því að það týndi eða gleymdi matarmiða/kortinu? Ef ég ætti börn þá væri ég hlynt þessu kerfi. Þú svarar Einari svo að það eigi að finna annð fyrikomulag en þetta "svo einfalt sé það" e-n vegin hugsa ég að fingraför barnanna hafi ekki verið fyrsti kostur SS.

Tanja (IP-tala skráð) 5.12.2007 kl. 10:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.