Leita í fréttum mbl.is

Magga Pála og börnin

Magga Pála, höfundur Hjallastefnunnar er að fá barnamenningarverðlaunin.

Mikið rosalega er þessi töffari, sem mér þykir reyndar persónulega ákaflega vænt um, vel að þessum verðlaunum komin.

Ég er á því að Magga Pála hafi fundið þá bestu uppeldisstefnu sem völ er á, fram að þessu.

Ég sé ekki marga toppa kjéddlluna.

Og í vor fer hún Jenný Una Eriksdóttir á einn af leikskólunum þessarar frábæru konu.

Engum treysti ég betur til að sjá um afkomendur mína.

Til hamingju Magga Pála!

Úje.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Mér finnst þessi kona alveg ofsalega flott, hlustaði á hana í Ísland í dag í gær og hún er með þeim klárari sem að maður hlustar á. Það er allt málefnalegt sem að hún lætur frá sér fara.

Systir mín vinnur á Hjallastefnuleikskóla og hún er alveg ofsalega ánægð ...hún segir að það sé allt til fyrirmyndar í þessari starfsemi alveg frá a-ö!

Magga Pála er vel að þessum verðlaunum komin!

Sunna Dóra Möller, 1.12.2007 kl. 12:32

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Magga Pála er hreinræktaður snillingur, hef oft heyrt erindi hennar um stefnuna og hlustað á hana í sjónvarpi og talað lítillega við hana, vildi að þessi Hjallastefna væri viðhöfð í öllum sveitarfélögum.  Eigðu góða helgi Jenný min, vona að pestin sé á undanhaldi.

Ásdís Sigurðardóttir, 1.12.2007 kl. 12:34

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Satt Sunna Dóra, við erum ekki lítið heppin að hafa fólk eins og Möggu Pálu, sem reyndar ætti að vera til í fleiri eintökum.

Jenný Anna Baldursdóttir, 1.12.2007 kl. 12:35

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ásdís: Mér kæmi ekki á óvart þó stefnan hennar Möggu endaði í öllum skólum.  Ekki verra.

Jenný Anna Baldursdóttir, 1.12.2007 kl. 12:36

5 identicon

"Ég er á því að Magga Pála hafi fundið þá bestu uppeldisstefnu sem völ er á, fram að þessu."

Já, hver er betur til þess fallin að ala upp börn í þessu þjóðfélagi en einhver stofnun útí bæ, skelfilegt ef foreldrar færu að ala upp börnin sín. Allir blautir draumar forræðishyggjufasistanna í VG rætast í Möggu Pálu. 

Bjarni (IP-tala skráð) 1.12.2007 kl. 12:55

6 Smámynd: Signý

Það er nú varla hægt að kalla það biðlista, ekki verð ég vör við það á mínum leikskóla allavega

En hins vegar er þetta snilldar stefna, og rosalega gaman að vinna eftir þessum hugmyndum, en það segir það ekki að þetta sé endilega sú besta hentar als ekki öllum og svo eru til alveg aragrúi af rosalega skemmtilegum stefnum sem notast er við á leikskólum þessa lands. 

Signý, 1.12.2007 kl. 13:59

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Signý: Þetta er sú besta að mínu mati, en auðvitað er verið að gera fullt af góðum hlutum út um allt.  Sem betur fer hefur fólk val, þannig á það líka að vera.

Hallgerður: MP á helling í breyttu hugarfari í skólamálum.

Jenný Anna Baldursdóttir, 1.12.2007 kl. 14:58

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég er sammála ykkur um Möggu Pálu, hún er kjarnakona, og fyrirgefið mér að segja það.  Eitthvað annað en einhverjar hausatalningar og óskapast yfir bleiku og bláu.  Hún er bara hrein og bein.  Þess vegna vekur hún líka virðingu bæði karla og kvenna.  Hún er vel að þessum verðlaunum komin. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 1.12.2007 kl. 16:15

9 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

Hmm, ég er ekki viss um að ég vilji að krakkarnir mínir kynnist því ekki að umgangast hitt kynið. Valdi ekki að mín færu í Hjallaleikskóla. En MP er mjög merkileg og vel að verðlaununum komin.

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 1.12.2007 kl. 18:36

10 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hildigunnur: Þau umgangast, kynin sko, það er ekki algjör aðskilnaður. 

Magga rúlar, Ásthildur.

Jenný Anna Baldursdóttir, 1.12.2007 kl. 21:14

11 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Og einu sinni var hún Margrét pála gift karli og átti heima í fögrum bæ við Fjörðinn!

Eignaðist með honum allavega eina dóttur!

Magnús Geir Guðmundsson, 1.12.2007 kl. 23:11

12 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Magnús Geir: Hjúpskaparstaða MP er mér ágætlega kunn, en ég skil ekki alveg hvað hún kemur uppeldismálum við.

Jenný Anna Baldursdóttir, 1.12.2007 kl. 23:14

13 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

Jenný, nei, ekki núna. Litla systir bekkjarfélaga Finns er á Laufásborg og þau umgangast barasta ekkert. Það finnst mér of langt gengið.

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 2.12.2007 kl. 13:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 54
  • Frá upphafi: 2985885

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband