Leita í fréttum mbl.is

Sömu þreyttu frasarnir

Þann dag sem Samtök atvinnulífsins koma í fjölmiðla og segja að það SÉ svigrúm fyrir almennar launahækkanir, mun ég gefa það litla sem ég á af veraldlegum eigum og gerast kaþólsk.  Nunna sko.

Þessi söngur sem er yfirleitt orðaður á sama hátt, frá orði til orðs, eða "ekki er svigrúm fyrir almennar launahækkanir" er þreytandi svo ekki sé meira sagt.  Og í honum er holur hljómur.

Það er til nóg af peningum, en það kemur kannski til af því að stór hópur fólks lifir undir fátækramörkum, ég veit það ekki.  En á þetta mas á ekki að hlusta, en mér hefur heyrst undanfarið að aðilar launþega, syngi sama söng.

Þetta er falskur söngur og lítt sannfærandi.

Það er hægt að gera allan fjárann ef viljinn er fyrir hendi.

Er ekki tímabært að hysja upp um sig þið jakkafatakarlar?

Hljómandi málmur og hvellandi bjalla hvað? 


mbl.is Almennar launahækkanir ekki réttlætanlegar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Kem þá með þér í klaustrið

Jónína Dúadóttir, 28.11.2007 kl. 14:17

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Dharma: Þarf ég að svara? Þú ert eiginlega búinn að því kallinn (ertu nokkuð Pétur Blöndal, þú ert alltaf að biðja um dæmi), þú pakkar í vörn áður en ég hef andað frá mér orði.

Tillaga: Að draga saman í bruðli annarsstaðar og láta lágmarkslaun hafa forgang.  Kann ég að reikna? Nei lítið og illa Held ég að þetta sé gerlegt? Já ekki spurning.  Svo geta aðrir séð um útreikninginn, ekki mitt vandamál.  Spurning um forgang.

Jenný Anna Baldursdóttir, 28.11.2007 kl. 15:36

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Já og eitt enn.  Eitt er að vera ósammála hinni feminisku hugmyndafræði t.d. en subbuskapurinn og óþverrahátturinn sem hefur liðist hér í bloggheimum í garð þeirra kvenna sem voga sér að benda á það sem miður má fara segir mér að það er mikil þörf á að konur eigi sér málsvara, ekki spurning.

Og hér er bannað (vúúú Vg, alltaf að banna) að tala illa um Sóleyju Tómasdóttur, Katrínu Önnu Guðmundsóttur og aðrar þær konur sem leyfa sér að hafa skoðanir.  Kapíss?

Jenný Anna Baldursdóttir, 28.11.2007 kl. 15:39

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Vá ekki ætla ég að ganga í klaustur.  Finnst alltof gaman að vera til.  Þetta GÆTI gerst, um leið og frýs í Helv...... LyklaPétur týnir lyklinum, eða sjálfstæðismenn taka upp rauða litinn í fálkanum.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.11.2007 kl. 15:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 8
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 45
  • Frá upphafi: 2985787

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 39
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband