Leita í fréttum mbl.is

Kimminn og fleira

Kim Larsen klikkar ekki, ég veit það þó ég hafi ekki farið að sjá hann í gær.  Ég nennti því ekki, var í öðru meira akút, þ.e. að setja upp jólagardínur.

Við eigum a.m.k. tvenn sameiginlegt við Kim Larsen, en við höfum bæði búið á Sofiegården á Christianshavn.  Ójá.  Hann, meðan það var hálfgert hreysi fyrir útigangsmenn og töffara, ég þegar það var orðinn flottur stúdentagarður fyrir nerði.

Við eigum líka Dalles Varehus, sameiginlegt, ég og Kimminn.  Ég hef verslað þar margoft.  Hann hefur sungið um það.

Ég var að lesa í fréttablaðinu, um könnun sem gerð var í Bretlandi, um hvaða látinn einstakling fólk vildi helst sjá snúa aftur og viti menn, Bretarnir settu Díönu í fyrsta sæti (frumlegir) en Jesú í sjötta.  Ef ég fengi að óska mér, myndi ég setja Jesú í fyrsta og segja honum að fara og tala við Jón Val og útskýra fyrir honum inntak kristindómsins.

En ég myndi setja John Lennon til vara.

Ég er knock out. 

Úje og farin að leggja mig.


mbl.is Kim Larsen hélt uppi fjöri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Jón Valur hefði mjög gott af því að hitta "aðalmanninn"

Jónína Dúadóttir, 25.11.2007 kl. 14:39

2 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Ég efast reyndar um að Jón Valur myndi hlusta á Jesú. Hann er búinn að búa til sinn eigin sannleika og það bítur ekkert á slíku fólki. Ekkert.

Lára Hanna Einarsdóttir, 25.11.2007 kl. 14:50

3 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Ég myndi vilja fá afa tilbaka. Skyldi ekki fyrr en löngu eftir að hann var farinn hversu lík við vorum. Ég þarf að tala við hann.

Jóna Á. Gísladóttir, 25.11.2007 kl. 15:03

4 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Það eru svo margir/ar sem mig langar til að eiga við orð, ég veit ekki hvar ég ætti að byrja, fyrir utan nána ættingja sem eru farnir!

Annars held ég að ég hafi margt að spyrja Jesú..sko, vegna námsins og svo María mín Magdalena...hef ansi margt að spyrja hana að !

bkv í rokinu...

Sunna Dóra Möller, 25.11.2007 kl. 15:53

5 Smámynd: Þröstur Unnar

Væri alveg til í að hitta Jesú kallinn. Þyrfti að spyrja hann t.d af hverju hann tók systir mína eins árs mömmu mína 6 tuga, og marga vini mína líka.

Reyndi einu sinni að spyrja Davíð, en hann strauk í Seðlabankann.

Þröstur Unnar, 25.11.2007 kl. 16:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 2985882

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband