Þriðjudagur, 20. nóvember 2007
Samfarasögur af Sobbeggi afa
Langar mig að heyra nánar um kvennamál Þórbergs Þórðarsonar, einum af mínum uppáhalds rithöfundum?
Langar mig að komast að því að þessi yndislegi "naívisti" var ekki við eina fjölina felldur í ástarmálum og var að hilla stelpurnar á meðan hann var í föstu sambandi?
Já, já, auðvitað er ég til í það. Ég er mannleg og get endalaust lesið um Þórberg.
Ég bið hér með um þessa bók í jólagjöf, en hún heitir "Í fátæktarlandi: Þroskasaga Þórbergs Þórðarsonar" og er eftir Pétur Gunnarsson.
Nei annars ég kaupi hana sjálf.
Nenni ekki að bíða fram að jólum.
Annars segja sumir íslenskir bókmenntaveðurvitar að Þórbergur hafi ekki verið rithöfundur, hann hafi verið stílisti. Sumir segja líka að rass sé afturendi þegar allt eins má kalla þennan líkamspart rassgat, og þangað má líka benda ákveðnum veðurvitum að pilla sig.
En það myndi ég aldrei gera, ég er svo kurteis.
Úje.
Þórbergur ekki við eina fjölina felldur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Bækur, Lífstíll, Menning og listir | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 4
- Sl. sólarhring: 12
- Sl. viku: 73
- Frá upphafi: 2987154
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 72
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bláar eyllýar
- Bloggar
- Bækur
- danskar kjötbollur með sósu
- Dómar
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Femínistablogg
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Halloki
- Hamfarablogg
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hneyksli
- Íþróttir
- Jólafár
- Kjaramál
- kvikindiskapur og illt umtal
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Lúkas
- lygasögur
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjálfsdýrkun
- Sjónvarp
- Snúra
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Synt til sigurs
- Synt yfir sundið
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Þvagleggur
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Tenglar
Tónlist
Vinir og fjölskylda
Vinkonur
Ég les alltaf
Netmiðlar
Tónlistarspilari
Bloggvinir
- draumur
- jonaa
- hronnsig
- larahanna
- skessa
- eddaagn
- amman
- annabjo
- annambragadottir
- annaragna
- asthildurcesil
- kolgrima
- birnan
- bjarnihardar
- brjann
- brylli
- christinemarie
- danjensen
- lillagud
- disadora
- einari
- einarorneinars
- emm
- estro
- evabenz
- fifudalur
- garun
- gelgjan
- gunnarggg
- halkatla
- halo
- hildurhelgas
- heidah
- helgamagg
- hildigunnurr
- iaprag
- hlynurh
- hugarfluga
- hugsadu
- ibbasig
- katrinsnaeholm
- ingolfurasgeirjohannesson
- jogamagg
- jara
- jensgud
- katlaa
- krummasnill
- krissa1
- lehamzdr
- ktomm
- laufeywaage
- lauola
- lindalinnet
- madamhex
- maggij
- majaogco
- mariakr
- markusth
- meistarinn
- motta
- nimbus
- olinathorv
- pollyanna
- ragnarfreyr
- ragnhildur
- ringarinn
- rosa
- roslin
- saedis
- sailor
- salkaforlag
- skordalsbrynja
- skrifa
- snar
- soley
- steingerdur
- steinnhaf
- steinunnolina
- stinajohanns
- sunnadora
- svetlana
- thuridurbjorg
- tibet
- tigercopper
- toshiki
- unns
- valgerdurhalldorsdottir
- wonderwoman
- vefritid
- vest1
- bidda
- zeriaph
- killjoker
- sisvet
- gudrununa
- dora61
- possi
- gelin
- silfri
- jyderupdrottningin
- gretaulfs
- sibba
- baldvinj
- stjaniloga
- bokakaffid
- kreppukallinn
- jonerr
- gerdurpalma112
- adhdblogg
- astafeb
- snjolfur
- haddih
- brell
- reisubokkristinar
- little-miss-silly
- baldis
- olofdebont
- kikka
- jarnar
- thorolfursfinnsson
- birnast
- vrkristinn
- leifur
- astroblog
- bjarkey
- manisvans
- siggisig
- nordurljos1
- gunnaraxel
- ragnar73
- sij
- kreppu
- runirokk
- gotusmidjan
- dorje
- slembra
- skari60
- must
- fhg
- aevark
- fridaeyland
- hedinnb
- cakedecoideas
- taraji
- audurproppe
- kollakvaran
- finni
- arnaringvarsson
- samstada
- drum
- gretarogoskar
- tbs
- vistarband
- valdivest
- fingurbjorg
- gustichef
- skulablogg
- andreskrist
- fasteignir
- rognvaldurthor
- helgatho
- gullfoss
- bailey
- jennystefania
- gattin
- annaandulka
- ansy
- gumson
- berg65
- bjarnimax
- brahim
- elin
- gudlaugbjork
- dramb
- gudrunkatrin
- hvilberg
- himmalingur
- ingaragna
- naflaskodun
- kiddirokk
- sigurborgkrhannesdottir
- joklamus
- stjornlagathing
- saemi7
- unnurgkr
Athugasemdir
Hann kunni sitthvað fyrir sér í þeim málum kallinn.
Þórbergur Torfason, 20.11.2007 kl. 09:54
Hann var flottur Og mikið er ég ánægð með að þú skulir vera svona kurteis
Jónína Dúadóttir, 20.11.2007 kl. 09:55
Þórbergur: Þú ættir að vita það, af hverju skrifar þú ekki bók um þennan snilldar frænda þinn?
Jenný Anna Baldursdóttir, 20.11.2007 kl. 09:56
Jónína mín: Ég er alltaf glöð, alltaf góð og alltaf kurteis, það er meitlað í fokkings MARMARA
Jenný Anna Baldursdóttir, 20.11.2007 kl. 09:56
Ég þekkti manninn ekki nóg eða eiginleika hans til að skrifa um hann enda ekki atvinnupenni eins og Pétur. Hann er líka búinn að grúska svo mikið. Mér hentar betur að lesa eftir aðra.
Þórbergur Torfason, 20.11.2007 kl. 10:03
Annars þekki ég ágætlega Guðbjörgu dóttur hans.
Þórbergur Torfason, 20.11.2007 kl. 10:04
Hef ekki lesið allar bækur Þórbergs, en bækurnar hans voru uppáhald mömmu. Hann virðist hafa verið afar sérstakur maður, fengi eflaust einhverja "greiningu" í dag eins og svo margir snillingar.
EN ... hmmm - veit ekki hvort ég er sammála Jóninu með þessa kurteisi. Konan er ekki einu sinni búin að segja "svei þér" þó að ég bjóðist til að auglýsa jólabloggið hennar á blogginu mínu jafnvel meira en 365 auglýsir sjálft sig og fyrirtækin sín í eigin miðlum - Piff (ógisslegaspældurkarl)
En að því sögðu - Smjúts á þig hunang
Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 20.11.2007 kl. 10:14
Ha, ætlarðu að auglýsa jólabloggið mitt? OMG, þakka yður fyrir og farið þér að koma yður til kaupstaðs.
Þórbergur: Ég á auðvitað "Bréfin til Sólu"
Jenný Anna Baldursdóttir, 20.11.2007 kl. 10:20
Bréf til Sólu er mistök. Sú bók átti aldrei að koma út.
En afsakaðu afskiptasemina, þú talar um að hann hafi verið að "hilla" stelpur. Ég held að í þessari merkingu eigi að skrifa orðið með y. Hann var örugglega ekki að safna þeim í hillur.
Þórbergur Torfason, 20.11.2007 kl. 10:28
Ég hef nú ekki lesið neitt eftir Þórberg, aldrei að vita nema ég fari að byrja á því
Huld S. Ringsted, 20.11.2007 kl. 10:46
Sálmurinn um blómið er auðvita bara tær snilld,heimurinn fátækari að bókin skuli ekki hafa verið þýdd.Kvennamál ? einhvernvegin hefði ég haldið að karlinn væri náttúrulaus Obbss enn einn fordómurinn,en stend við þá hugmynd mína án þess að nenna að rökstyðja hana.
Hallgerður Pétursdóttir (IP-tala skráð) 20.11.2007 kl. 11:04
Að hilla, Þórbergur er notað yfir að fífla kvenfólk eða karlmann. Ekki að hylla eða hilluraða. Hehe. Eflaust vond íslenska en samt.
Huld: Fyrr hefurðu ekki lifað.
Hallgerður: Þórbergur var mikill kvennaljómi, það fór bara ekki hátt.
Jenný Anna Baldursdóttir, 20.11.2007 kl. 11:45
Hér er hilla um hyllu frá hyllingu til hillingar
lovjú
Jóna á vinnuvaktinni
Jóna Á. Gísladóttir, 20.11.2007 kl. 11:53
Er það ? segir það endilega að hann hafði verið með mörgum ? er mögulegt að hann hafi notið athygli vegna frægðar,því eins og við vitum finnst sumum það sexí konum/körlum.Að ég tali nú ekki um þeir karlmenn sem eiga fyrir salti í grautinn margar okkar fá viðstöðulaust í hnén eigi þeir leið fram hjá.Sexapíllinn hefur svo margar víddir.Hvað veit ég ? en skemmtilegur var hann og er.
Hallgerður Pétursdóttir (IP-tala skráð) 20.11.2007 kl. 11:54
hmm, ég hef bara aldrei heyrt þetta orð, hilla. Skemmtilegt.
Hildigunnur Rúnarsdóttir, 20.11.2007 kl. 11:54
Ég hvet alla aðdáendur okkar nafna að mæta í Þórbergssetur á bókavöku þann 2. desember.
Sjá; hornafjörður.is
Þórbergur Torfason, 20.11.2007 kl. 11:56
Jenný, ekki minnist ég þess að hafa heyrt þetta orð fyrr. Það er allavega ekki ættað úr smiðju Jónasar eða Þórbergs.
Þórbergur Torfason, 20.11.2007 kl. 11:57
Snilldar samlíkingar þarna í lokin
Guðrún Hulda, 20.11.2007 kl. 12:03
Þórbergur: Hef þetta orð frá mömmu minni, en hún er austan að fjörðum. Þeir eru svo hillaðir fyrir austan.
Hallgerður: Ég efast um að Sobbeggi hafi verið með þær í kippum, en hann var afburða sjarmör karlinn, og ég varð sleginn af sjarmanum 13 ára (platónskt að sjálfsögðu) þegar hann var að spjalla við okkur stelpurnar þegar við hittum hann á heimleið úr Hagaskóla, oft á tíðum, og hann var á sínum hefðbundnu göngutúrum. Svo má auðvitað geta þess að á Hringbraut 84, þar sem ég ólst upp, stilltum við stofuklukkuna nánast eftir honum, þegar hann var á leiðinni út í eyju, alltaf á sama tíma, upp á sekúndu, svei mér þá.
Jenný Anna Baldursdóttir, 20.11.2007 kl. 12:07
Er ekki nauðsynlegt fyrir góðan rithöfund að vera fær stílisti? Ég held að staðhæfingar margar séu nú dregnar úr umræddri holu þótt við séum kurteisar Jenný mín. Þórbergur er einn skemmtilegasti rithöfundur allra tíma og sá eini, nei, ásamt Auði Haralds reyndar, sem ég fæ magakrampa af að lesa. Bréf til Láru og Hvunndagshetjan eru bækur sem standa uppúr í þessu samhengi.
Laufey Ólafsdóttir, 20.11.2007 kl. 12:27
Mig er farið að gruna að við höfum svipaðan smekk á bókum, Jenný Anna. Ég las mína fyrstu bók eftir Þórberg þegar ég var 11 ára og það var auðvitað Sálmurinn um blómið. Síðan þá hefur Þórbergur verið í miklu uppáhaldi hjá mér og ég held að ég eigi allt sem hefur verið gefið út eftir hann og það sem meira er - ég hef lesið þetta allt saman líka! Bréf til Láru les ég um það bil annað hvert ár.
Svo fór ég í hálfgerða pílagrímsferð austur að Hala í fyrra og skoðaði Þórbergssetur - það var magnað - sjá nokkrar myndir úr ferðinni hér, þar á meðal setrið með bókarkjölunum sem er snilldarhugmynd.
Sögnin að "hilla" þýðir að daðra - "að hilla við einhvern". Mamma mín notaði þetta alltaf og hún var frá Vestfjörðum.
Lára Hanna Einarsdóttir, 20.11.2007 kl. 12:35
Jenný er ekki ekki "hilla" með sama framburði og Lilla? Ég hef heyrt það .
Annars var hann Þórbergur nágranni okkar þegar við vorum stelpur og hann sást oft því allt fór hann gangandi. Hann gekk m.a. alltaf í gegn um "bakkó"! Hef lesið lítið eftir hann, hann er ekki en orðin minn nema sem persóna. Ég er líklega með takmarkaðan húmor, þarf greinilega að fara gera eitthvað í því betra seint en aldrei.
Edda Agnarsdóttir, 20.11.2007 kl. 12:39
Þann sjarma skil ég vel og hálf öfunda þig yfir minningunni .Þú hefur verið bráðgert barn og þá meina ég að skynja karlinn. Hann var náttúrulega sagt og skrifað.
Hallgerður Pétursdóttir (IP-tala skráð) 20.11.2007 kl. 12:45
Einhvernveginn held ég að hann hafi bara verið krúttlegur karl, bækurnar hans eru þannig, skemmtilegar og mikil mannleg hlýja í þeim.
Marta B Helgadóttir, 20.11.2007 kl. 12:46
Laufey: Ég skil hvað þú meinar
Lára Hanna: Takk fyrir linkinn, þetta hús er snilld og ég verð að fara að drífa mig og skoða.
Edda: Betra er seint en aldrei, það er rétt hjá þér og hilla er borið fram eins og lilla.
Jenný Anna Baldursdóttir, 20.11.2007 kl. 12:52
Vildi bara segja takk fyrir skemmtilegar umræður . Ég hef aldrei lesið neitt eftir Þórberg en fór á safnið hans í Suðursveit í sumar, það var mjög áhugarvert ! Maður á víst margt eftir, það er alveg ljóst !
Sunna Dóra Möller, 20.11.2007 kl. 12:54
Er búin að lesa fáeinar bækur eftir hann, hann er stórkostlegur. Húmorinn skín í gegn hjá honum og hlýjan.
Margrét Össurardóttir (IP-tala skráð) 20.11.2007 kl. 13:24
Takk fyrir upplýsingarnar Jenný. Þá veit maður það.
Þórbergur Torfason, 20.11.2007 kl. 14:47
Þórbergur var frábær. Fyrsta bókin sem ég las eftir hann hét Einum kennt - öðrum bent. (minnir mig).
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 20.11.2007 kl. 18:04
Gurrí, það var kilja frá MM að mig minnir, á hana hér einhversstaðar.
Jenný Anna Baldursdóttir, 20.11.2007 kl. 18:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.