Leita í fréttum mbl.is

Að kafna úr frekju

Bandaríkjamenn eru að kafna úr frekju.  Þeir minna mig á ofdekrað barn sem tekur ekki tali, nema hvað börn hafa sjarma, þau eru krútt.

Ef eitthvað er ekki að skapi þessarra kjánaprika þá reyna þeir að snúa upp á hendur fólks og neyða það til hlýðni eins og í þessu tilfelli þar sem þeir þrýsta á flugvélaframleiðandann Boeing um að stunda ekki viðskipti við Iclenadair Group vegna Kúbuferða íslenska fyrirtækisins.

Með góðu eða illu skulu þeir hafa sitt fram.

Vonandi verður þeim ekki að ósk sinni.

Svo lýðræðiselskandi eitthvað Kanarnir.

Vá hvað þeir mega fara að skoða sinn gang.

Ójá.


mbl.is Finna að Kúbu-flugi íslenskra flugfélaga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Það er versta er að það er nánast ómögulegt að setja ofdekruðu barni mörk !

Sunna Dóra Möller, 19.11.2007 kl. 12:18

2 Smámynd: Jón Þór Ólafsson

Sérstaklega þegar það á hættulegustu leikföngin

Jón Þór Ólafsson, 19.11.2007 kl. 12:23

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þið eruð góð.  Hahahaha

Jenný Anna Baldursdóttir, 19.11.2007 kl. 12:28

4 Smámynd: Jón Þór Ólafsson

Hvenær ætla stjórnvöld í Washington að hætta að refsa Kúbversku þjóðinni fyrir að sitja upp með sjálfskipaðan einræðisherra?

Jón Þór Ólafsson, 19.11.2007 kl. 12:50

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jón Þór: Þeir hætta aldrei á meðan Kastró lifir.  Og karlinn hangir endalaust.

G.L.F. Stjórnvöld, maður, stjórnvöld.  Hvað stendur skammstöfunin annars fyrir: Glataður Leiðindapúki Fáviskunnar?

Jenný Anna Baldursdóttir, 19.11.2007 kl. 13:06

6 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Flugvélar hafa íslensku fyrirtækin keypt á kaupleigu sem kallað er. Þannig eru þær ennþá ekki komnar í eigu félagsins. Annað hvort er þá eitthvert kaupleigufyrirtæki í bandaríkjum Ameríku, eða Boeing sjálft, sem er í raun formlegur eigandi vélanna. Þar með er Boeing óheimilt að eiga viðskipti við Kúbu í gegn um þessar vélar, að viðlögðum refsingum, þó svo að um visst eignarhald íslenska félagsins sé að ræða á vélunum. Þannig fellur eignarhald bandarísks félags á flugvélunum undir lög sem banna bandarískum fyrirtækjum að eiga viðskipti við Kúbu.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 19.11.2007 kl. 13:55

7 identicon

Skellihlátur hér með þessa skammstöfun.Jenni þú ert .....

Hallgerður Pétursdóttir (IP-tala skráð) 19.11.2007 kl. 13:58

8 identicon

Vonandi verður kona næsti forseti Bandaríkjanna. Setjum Bush inn í eldavélina ekki bakvið.

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 19.11.2007 kl. 14:29

9 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Bandaríkjamenn ættu að fara að passa upp á eigin rass og hætta að pota í aðra, svona generalt.

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 19.11.2007 kl. 15:55

10 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Æi, ,,on second thought" er þetta kannski rasismi að tala svona um heila þjóð!...   Ameríkanar eru sem betur fer misjafnir, fullt af fínu fólki - þó við séum ósátt við stjórnvöldin þar.

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 19.11.2007 kl. 15:57

11 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Víða eru frekjurassarnir.

Ásdís Sigurðardóttir, 19.11.2007 kl. 16:08

12 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jóhanna: Ég er auðvitað að tala um stjórnvöld, almenningur í USA hefur ekkert með málið að gera

Gísli: Líklegast verða demókratar að velja um Hillary eða Ombama: Það verður áhugavert að sjá útkomuna úr því dilemma.  Ég persónulega er föst BAKVIÐ eldavélina.

Jón Arnar: Þetta er hugmynd, ansi góð meira að segja (en hverjir eiga airbus?)

Ásdís: Þeir eru út um allt frekjuhundarnir.  Vóff.

Jenný Anna Baldursdóttir, 19.11.2007 kl. 16:20

13 Smámynd: Svala Jónsdóttir

Þegar ég fór til Kúbu fórum við m.a. á næturklúbb, þar sem kynnirinn spurði salinn hvaða gestirnir voru. Nokkuð stór hópur var bandarískur. Kaninn fer nefnilega líka til Kúbu, en fólk fer í gegnum önnur lönd og sleppir því að láta stimpla vegabréfin sín.

Hræsnin leynist víða.

Svala Jónsdóttir, 19.11.2007 kl. 19:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 2985882

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband