Mánudagur, 12. nóvember 2007
Nú verð ég að hneigja mig..
.. og taka ofan fyrir honum Agli Helgasyni, en hann fékk tvær Eddur. Ég geri það hér með í huganum. Ef hægt er að segjast vera í "sambandi" við mann sem maður sér í sjónvarpi, þá er ég í ástar-haturssambandi við þetta krullukrútt og megadúllu. Það er eitthvað svo einlægt við karlinn stundum og svo er hann asskoti naskur á þjóðfélagspúlsinn. Egill er alveg ferlega illa áttaður á feminisma, þannig að stundum gríp ég andann á lofti, þegar hann bloggar um skoðanir sínar á málaflokknum Það er allt að því fyndið (ég hlæ; hahahaha). Svo finnst mér hann skuggalega "leim" þegar hann ætlar að fara að útskýra kynjafræði, finnst það jafn mikið út í hött og ef ég ætlaði að fara að laga vatnskassa í bíl (held ennþá að þeir séu útlits eins og jólaölsbrúsar), einhendis. Það gengi ekki upp, ég lofa.
Ég hef horft á Silfrið frá byrjun. Þegar Egill byrjaði á Skjá I var það svo mikið "happening". Hann framlengdi bara þar til dagskráin var tæmd, lét ekkert stoppa sig af og það var skólasjónvarpsbragur á þættinum en samt var hann alveg ferlega skemmtilegur.
Nú eru ekki uppákomur lengur, þátturinn er innan tímaramma og Egill þræl fagmannlegur, svona oftast.
Ég missi aldrei af Silfrinu eða Kiljunni, það er á hreinu. Maður verður að hafa eitthvað að röfla yfir.
En ég hef ákveðið að hætta að lesa bloggið hans.
Mig langar ekkert til að heyra skoðanir hans á "jafnréttismálum".
Þær eru hreinlega algjört törnoff.
En Kiljan og Silfrið voru ágætlega að Eddunni komin (Kiljan þrátt fyrir ismatalið og þrátt fyrir Pál Baldvin sem er með jafnsvekktari mönnum í fjölmiðlum).
Til hamingju RÚV.
Úje.
P.s. Kynnirinn á Eddunni var að fíflast með jakkafötunum sem hann klæddi sig í, er það ekki? Segið mér að þessi hroðalegu föt séu ekki það nýjasta í fatatísku karlmanna. Plís, plís, plís.
Make my day!
Kvikmyndin Foreldrar fékk flest Edduverðlaun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Dægurmál, Kvikmyndir, Snúra | Breytt s.d. kl. 00:51 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 16
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bláar eyllýar
- Bloggar
- Bækur
- danskar kjötbollur með sósu
- Dómar
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Femínistablogg
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Halloki
- Hamfarablogg
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hneyksli
- Íþróttir
- Jólafár
- Kjaramál
- kvikindiskapur og illt umtal
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Lúkas
- lygasögur
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjálfsdýrkun
- Sjónvarp
- Snúra
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Synt til sigurs
- Synt yfir sundið
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Þvagleggur
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Tenglar
Tónlist
Vinir og fjölskylda
Vinkonur
Ég les alltaf
Netmiðlar
Tónlistarspilari
Bloggvinir
- draumur
- jonaa
- hronnsig
- larahanna
- skessa
- eddaagn
- amman
- annabjo
- annambragadottir
- annaragna
- asthildurcesil
- kolgrima
- birnan
- bjarnihardar
- brjann
- brylli
- christinemarie
- danjensen
- lillagud
- disadora
- einari
- einarorneinars
- emm
- estro
- evabenz
- fifudalur
- garun
- gelgjan
- gunnarggg
- halkatla
- halo
- hildurhelgas
- heidah
- helgamagg
- hildigunnurr
- iaprag
- hlynurh
- hugarfluga
- hugsadu
- ibbasig
- katrinsnaeholm
- ingolfurasgeirjohannesson
- jogamagg
- jara
- jensgud
- katlaa
- krummasnill
- krissa1
- lehamzdr
- ktomm
- laufeywaage
- lauola
- lindalinnet
- madamhex
- maggij
- majaogco
- mariakr
- markusth
- meistarinn
- motta
- nimbus
- olinathorv
- pollyanna
- ragnarfreyr
- ragnhildur
- ringarinn
- rosa
- roslin
- saedis
- sailor
- salkaforlag
- skordalsbrynja
- skrifa
- snar
- soley
- steingerdur
- steinnhaf
- steinunnolina
- stinajohanns
- sunnadora
- svetlana
- thuridurbjorg
- tibet
- tigercopper
- toshiki
- unns
- valgerdurhalldorsdottir
- wonderwoman
- vefritid
- vest1
- bidda
- zeriaph
- killjoker
- sisvet
- gudrununa
- dora61
- possi
- gelin
- silfri
- jyderupdrottningin
- gretaulfs
- sibba
- baldvinj
- stjaniloga
- bokakaffid
- kreppukallinn
- jonerr
- gerdurpalma112
- adhdblogg
- astafeb
- snjolfur
- haddih
- brell
- reisubokkristinar
- little-miss-silly
- baldis
- olofdebont
- kikka
- jarnar
- thorolfursfinnsson
- birnast
- vrkristinn
- leifur
- astroblog
- bjarkey
- manisvans
- siggisig
- nordurljos1
- gunnaraxel
- ragnar73
- sij
- kreppu
- runirokk
- gotusmidjan
- dorje
- slembra
- skari60
- must
- fhg
- aevark
- fridaeyland
- hedinnb
- cakedecoideas
- taraji
- audurproppe
- kollakvaran
- finni
- arnaringvarsson
- samstada
- drum
- gretarogoskar
- tbs
- vistarband
- valdivest
- fingurbjorg
- gustichef
- skulablogg
- andreskrist
- fasteignir
- rognvaldurthor
- helgatho
- gullfoss
- bailey
- jennystefania
- gattin
- annaandulka
- ansy
- gumson
- berg65
- bjarnimax
- brahim
- elin
- gudlaugbjork
- dramb
- gudrunkatrin
- hvilberg
- himmalingur
- ingaragna
- naflaskodun
- kiddirokk
- sigurborgkrhannesdottir
- joklamus
- stjornlagathing
- saemi7
- unnurgkr
Athugasemdir
Horfði bara á part af Eddunni. Fannst þátturinn óhemjulega leiðinlegur , það sem ég horfði af honum. Fannst flott að Egill skyldi fá verðlaun fyrir Kiljuna. Skemmtilegur þáttur. En mér fannst tíu fingur sem var tilnefndur í sama flokki ekki síðri.
Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 12.11.2007 kl. 01:18
hef aldrei horft á Kiljuna. Mér þykir alveg óendanlega leiðinlegt að horfa á fólk í sjónvarpi tala um bækur. sorrý. En Egill er krulludúlla.
Var það ekki Börn sem vakti alla lukkuna meðal almennings. Foreldrar þóttu síðri. Eða er ég að snúa þessu við?
Jóna Á. Gísladóttir, 12.11.2007 kl. 01:37
Ég nennti ekki að horfa á Edduna og finnst þátturinn hans Egils og Kiljan leiðinlegir þættir. Ég get samt alveg fundið eitthvað til að röfla yfir
Jónína Dúadóttir, 12.11.2007 kl. 06:47
Ég nennti ekki að horfa á þetta í fyrsta skipti síðan að þessi verðlaun byrjðu, Harry Potter var eitthvað meira spennó !
En Egill er ágætlega að þessu komin, búin að vera svo lengi að í sjónvarpinu. ég les reyndar aldrei bloggið hans og einhvern veginn hef ekki lagt mig eftir því, en Silfrið er eitthvað sem að mér hefur oft þótt gaman að !
Eigðu góðan, mæðulausan mánudag
Sunna Dóra Möller, 12.11.2007 kl. 08:05
Daginn. Horfði ekki á Edduna var á her.hehehehehehe. Egill er krútt-kall en ég horfi sjaldan á hann og lítið á kiljuna. Get samt alveg röflað er á þarf að halda eins og sumir aðrir.Fékk Kompás ekki eitthvað? Minn þáttur enda hefur konan komist í þann þátt.
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 12.11.2007 kl. 08:45
Hélt með Eddu Andrésdóttur, finnst hún flottust! .. en Egill er krútt! ..
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 12.11.2007 kl. 09:02
Sá part en er ekki mikill edduhorfandi. Horfði á æsispennandi kappræður á DR. Níu formenn flokka 5 konur og 4 karlmenn. Konurnar unnu.
Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 12.11.2007 kl. 09:02
Það er bara fyndið að maður sem stjórnar kjaftaútvarpsþætti í sjónvarpinu skuli valinn sjónvarpsmaður ársins og að þáttur þar sem fólk talar um bækur (og ætti betur heima í útvarpi) sé valinn aðal sjónvarpsþátturinn... eitthvað drepfyndið við þetta. Þróun sjónvarps á Íslandi síðustu 40 árin hefur verið afar hæg. Hver man ekki eftir sjónvarpsþættinum "góða" maður er nefndur...) Bestu kveðjur,
Hlynur Hallsson, 12.11.2007 kl. 09:14
Bæði Börn og Foreldrar þóttu snilldarmyndir. Raggi er vel að þessu kominn. Þó hefði ég viljað sjá Astrópíu með miklu fleiri tilnefningar og einhver verðlaun. Fáránlegt til dæmis að hún hafi ekki einu sinni verið tilnefnd fyrir hljóðvinnslu!
Hildigunnur Rúnarsdóttir, 12.11.2007 kl. 09:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.