Leita í fréttum mbl.is

Og það er að bresta á..

 

..með jólunum.  Í dag hafa starfsmenn Orkuveitunnar verið að setja upp jólaljósin í miðbænum.  Úff, ég verð alveg mössí-mössí.  Merkilegt hvað ég er jólavæmin alltaf.

Hér var Jenný Una Eriksdóttir í opinberri heimsókn í dag.  Hún, eins og amman er svolítið jólaspennt.  Það endaði með að við fórum í geymsluna og náðum í smá jóladót.  Bara pínu-pínulítið, eins og hún sjálf sagði.

Í dag sagði barn eftirtalda hluti, m.a.:

Amma, syngdu kerrrti og spil og blessuð jólin. (Þetta er u.þ.b. eina mannveran sem biður mig að syngja fyrir sig, ég lýt höfði auðmjúklega til jarðar, djúpt snortin af þakklæti).

Amma, ég veit það ekki baun. (Sagt þegar amman spurði um skóna hennar)

Ér feimin, hættu Einarr! (Jenný Una hefur ruglast eitthvað og heldur að feimin þýði að vera í fýlu, hér fylgdi svipur þar sem barn setti í brýnnar).

Amma, ég verr a fá súkkula, ég mjög, mjög veik.W00t

Aðspurð hvað hún vilji í jólagjöf stóð ekki á svari: É vil pakka.

Gleðileg jól, en það eru 43 dagar til jóla.

GMG!

Halelúja!

P.s. Á myndinni er fröken Jenný Una Eriksdóttir, Ásamt honum Franlíkn Mána Addnarsyni, sem nú um stundir er góður vinur hennar.


mbl.is Jólaljósin sett upp í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Þessi litla flís er alveg ævintýralegt krútt...mér finnst línan með súkkulaðið algjör snilld, ég er að hugsa um að nota þetta þegar vel á við !

Hér er jólastandið allt líka alveg að bresta á, mamma setti aðventuljós og seríur í gluggana í sveitinni og ég búin að kaupa jólaföt á kvenkynið í fjölskyldunni. Ég verð líka svona jólaviðkvæm, er alltaf við það að bresta alla aðventuna og það nær hámarki þegar Heims um ból er sungið rétt fyrir 7 á aðfangadag...þá bara ræð ég ekki við mig !

Jólaundirbúningskveðjur !

Sunna Dóra Möller, 11.11.2007 kl. 18:22

2 Smámynd: Ragnheiður

Hún er ótrúlega fallegt barn. Og ekki er vinur hennar minna krútt.

Ragnheiður , 11.11.2007 kl. 18:22

3 identicon

Yndislegt barn.Snemmbúnar jólakveðjur í þitt hús

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 11.11.2007 kl. 18:25

4 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Súkkulaði er sjálfsagt meðal þegar veikindi berja að dyrum. barnið er megakrútt. Eins gott að Einarrr taki tillit.

Ég var einmitt að segja við Nick (þar sem þetta verða mín fyrstu jól á blogginu hehe) að ég gæti ímyndað mér hvað við yrðum öll væmin hérna nokkrum dögum fyrir jól. Þetta verður  alveg svona smúsíknúsímúsí samfélag.

Jóna Á. Gísladóttir, 11.11.2007 kl. 18:25

5 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

haha, yndisleg, liggur við að ég hlakki til að verða amma þegar ég les.  (Liggur þó ekkert á, Fífa, stóra barnið mitt er bara 15...)

Aðventuljós fyrir fyrsta í aðventu?   

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 11.11.2007 kl. 19:44

6 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Það er í sveitinni sko....næst þegar við komum verður komin aðventa !

Sunna Dóra Möller, 11.11.2007 kl. 20:00

7 Smámynd: Bjarndís Helena Mitchell

Hún er sjarmatröll hún Jenný Una Eriksdóttir!

Bjarndís Helena Mitchell, 11.11.2007 kl. 20:02

8 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Yndisleg börn, Jenný Una er fullkomin, svei mér þá. Hafðu það gott gamla mín. Knús,krús,klemm

Ásdís Sigurðardóttir, 11.11.2007 kl. 20:14

9 Smámynd: Huld S. Ringsted

Yndisleg stelpan, ég ætla muna þessa setningu hennar um súkkulaðið, núna verð ég alltaf veik, súkkulaðifíkillinn ég!!

Huld S. Ringsted, 11.11.2007 kl. 20:28

10 identicon

Arrgg - ég er að verða sjúklega öfundsjúk yfir þessu ömmubarni

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 11.11.2007 kl. 20:49

11 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

meilí

Jóna Á. Gísladóttir, 11.11.2007 kl. 21:10

12 Smámynd: Þorkell Sigurjónsson

Gleðileg jól, eða þannig. 

Þorkell Sigurjónsson, 11.11.2007 kl. 21:18

13 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Hrikalega krúttleg og yndisleg börn þarna í sófanum, ömmustelpan og vinurinn    þau bræða mann auðveldlega þessar elskur   

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 11.11.2007 kl. 21:44

14 identicon

Já jólin að BRESTA á ,bara eins og ofviðri. Þetta er nú meiri brandarinn.

Margrét (IP-tala skráð) 12.11.2007 kl. 13:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 2985888

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband