Leita í fréttum mbl.is

13 mánaða snúra - ójá

95

Nú er það snúruafmæli einn ganginn enn.  Næst síðasta snúra ársins.  Það er ekkert öðruvísi.  Fyrir þrettán mánuðum síðan fór ég á Vog og eftir að af mér rann hefur bara verið gaman að lifa.

Ekki misskilja mig, ég er ekki að halda því fram að ég hafi lifað við lúðrablástur og endorfínrús upp á dag, alls ekki.  Sumir dagar eru minna betri en aðrir, en ég get tekist á við þá og skakklappast yfir hindranirnar, sem er byltingarkennd breyting, frá því fyrir meðferð.

Eftir því sem allsgáði tíminn minn lengist finnst mér ég styrkjast örlítið á hverjum degi, það er mér nóg, einn dag í senn.´

Annars er ég að snúrast þetta þegar ég á að vera farin að sofa í hausinn á mér.  Ég er að deyja úr hungri því ég hef verið á fljótandi fæði í allan dag, út af rannsókn sem ég fer í á morgun.  Ég lifi alveg af sko, að geta ekki borðað fyrr en eftir hádegi á morgun, en mig langar svo til að vera með smá fórnarlambstakta að kvöldi dags.

Nú ætlar þessi óvirki alki, sem er ekki einu sinni líftryggingarhæfur (búhú, vorkenna, vorkenna) að silast í rúmið og velta sér þar upp úr miklum hörmum sínum.

Sjáumst á morgun elskurnar.

Ég fer edrú að sofa á eftir.

En þið? (Hljóp í mig einhver Júdas þarna).

Nigthy,

Úje!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Hjartanlega til hamingju hetja.  Það er styrkur í að hafa svona nagla hér á bloggvellinum og ég veit að bloggið hjálpar við að setja tilveruna í samhengi og vinna ú hugmyndum og ranghugmyndum.

Hefur reynst mér vel og er tveggja og hálfs á morgum.

Jón Steinar Ragnarsson, 5.11.2007 kl. 01:21

2 Smámynd: Einar Örn Einarsson

Dettur ekki í hug að vorkenna þér, tja nema að þú sért til í að vorkenna mér þá líka

Hjartanlega til hamingju. Takes one to know one. Skil þig betur en þig grunar.

Þarf ekki að segja meir. Gott gengi á morgun. Og vonandi feit máltíð á eftir.

Einar Örn Einarsson, 5.11.2007 kl. 01:22

3 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Æ, elsku Jenný! Til hamingju með enn einn áfangann og gangi þér allt í haginn á morgun  

Laufey Ólafsdóttir, 5.11.2007 kl. 01:38

4 Smámynd: Ester Júlía

Til hamingju!!! 

Ester Júlía, 5.11.2007 kl. 07:14

5 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Til hamingju með gærdaginn Jenný og til hamingju með daginn í dag Jón Steinar

Jónína Dúadóttir, 5.11.2007 kl. 07:16

6 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

Til lukku jenný mín gangi þér vel í rannsóknum.

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 5.11.2007 kl. 07:50

7 identicon

Já, segi það líka til hamingju með snúru afmælið.

Alva (IP-tala skráð) 5.11.2007 kl. 08:37

8 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Til hamingju með 13 mánuðina, frábær árangur  

Gangi þér vel í dag

Hrönn Sigurðardóttir, 5.11.2007 kl. 08:39

9 Smámynd: Hugarfluga

Rosalega líður tíminn. Mér finnst eins og einsárssnúrammilið hafi verið í gær! Til hamingju með hvert skref, Jenný mín. Gangi þér mikið vel í dag.

Hugarfluga, 5.11.2007 kl. 08:45

10 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Til hamingju líka frá mér !! Gangi þér ótrúlega vel í dag !

Sunna Dóra Möller, 5.11.2007 kl. 08:47

11 identicon

Til hamingju með alla þessa edrú daga, hvern einasta  Gangi þér vel í dag. Bloggvinkona hugsar til þín þennan daga meira en venjulega (sem er þá bara alveg heilmikið). Knús 

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 5.11.2007 kl. 09:03

12 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jón Steinar: Til hamingju með áfangann.  Já það hjálpar að setja hluti niður á blað, bæði í gamni og alvöru

Einar Örn: Já við skiljum hvort annað við hin ólíftryggingarhæfu, takk kærlega fyrir kveðju.

Laufey, Ester, Jónína, Krumma, Alva og Hrönnslí mín: Takk allar, þið eruð bestar

Fluví mín: Það sem þér finnst hafa verið í gær var 5. október en svona líður tíminn fljótt í bloggheimum. Takk dúllan mín

Anna: Elsku knúsan mín, þú sem ert búin að styðja mig frá þvíégmanekkihvenærafþvíþaðersvolangstsíðan, takk elsku bloggvinkona en hvenær kemurðu í borg (orðinansiþreyttáaðbíðakelling)?

Jenný Anna Baldursdóttir, 5.11.2007 kl. 09:21

13 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Nei....ég var ekki alveg bláedrú þegar ég fór að sofa! Eitt hvítvínsglas rann mjög ljúft niður í góðum félagsskap

En gangi þér vel í dag!! Ekki vera til vandræða... læknagreyin hafa svo mikið að gera að þú verður að vera í lagi!!

Heiða B. Heiðars, 5.11.2007 kl. 09:49

14 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

ég ekki alveg edrú í gær heldur, við bóndinn deildum einni rauðri í tilefni 19 ára trúlofunarafmælis okkar.

En gangi óxla vel í dag, krossum alla putta og tær...

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 5.11.2007 kl. 11:16

15 Smámynd: Ragnheiður

til hamingu með áfangann kæra Jenný...frábært ! Biðst forláts á að hafa ekki komin fyrr inn en þá á sér skýringar í furðulegu háttalagi kellu um nótt (sjá blogg)

Ragnheiður , 5.11.2007 kl. 11:32

16 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Heiða: Þú sleppur með eitt glas, híhí og þú Hildigunnur líka.  Ég var nú að hugsa um Jesúauglýsinguna við erum hér, hvar ert þú.  Sami rytmi sko. Takk krúttin mín og Heiða, þeir þurftu áfallahjálp þegar ég var búin að verka þá (læknana sko), enda búin að fá nokkuð góðar upplýsingar í dag.

Ragga: Fer samstundis og kíki og takk fyrir kveðjuna

Jenný Anna Baldursdóttir, 5.11.2007 kl. 13:38

17 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Assgotans byttur eru þetta sem þú þekkir Jenný.  Skildi drykkjuorðspor þitt vera til komið fyrir þennan slæma felagsskap?

Jón Steinar Ragnarsson, 5.11.2007 kl. 22:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 2985887

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband