Leita í fréttum mbl.is

Einhver til í að gefa mér kr. 80.000?

1

Ég á óteljandi uppáhaldsrithöfunda.  Nánast allir rithöfundar sem ég hef nennt að lesa, getað haldið þræði og gleymt mér yfir, hljóta þennan titil.  Oscar Wilde er svona uppáhalds, uppháhalds.  Ég á flestar bækurnar hans þýddar og ég á safnið hans komplett á frummálinu.  Reyndar gerðist ég Oscars áhangandi á sama tíma og ég lá í bókum Edgar Allans Poe, sem á sama afmælisdag og ég og var fórnarlamb dauðans en er brilljant engu að síður. Þeir félagar voru "inn" á sama tíma.

Myndin af Dorian Grey, eftir OW er fullkomnasta lýsing á sjálfsdýrkanda sem skrifuð hefur verið fram á þennan dag, það er ég viss um.

Nú er hægt að fá frumútgáfu "The Importance of Being Earnest eftir O.W. og það er tölusett eintak nr.349.  Ef ég ætti peninga sem ég þyrfti nauðsynlega að losa mig við, myndi ég kaupa bókina, bara svo dætur mínar gætu látið bjóða hana upp eftir svona fimmtíu ár og þær eignast smá lausafé til að spandera á sjálfar sig.  Gætu t.a.m. keypt bækur fyrir peninginn.Whistling

En þetta er nú bara asnagangur í mér, ég er alveg sátt við mína útgáfu af TIoBE, fjölföldaðri í nútíma prentsmiðju og alveg þræl læsileg.

Reyndar er ég hissa á að bókin skuli ekki vera dýrari.

Dem, hvað Wildarinn er góður rithöfundur.

Og mikið fjárann sem þeir voru vondir við hann samtímamenn hans sem fangelsuðu hann fyrir að vera hommi.

Ójá.


mbl.is Fágætt eintak bókar eftir Oscar Wilde fannst í handtösku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hehe, fyrst þyrftum við að kaupa í matinn Kristjana en það er hugsunin sem gildir.

Jenný Anna Baldursdóttir, 21.10.2007 kl. 22:57

2 Smámynd: Halldór Sigurðsson

Og mikill húmoristi var hann

Halldór Sigurðsson, 21.10.2007 kl. 23:00

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ójá Halldór, hann var leifrandi greindur og mikill húmoristi.  I love the man.

Jenný Anna Baldursdóttir, 21.10.2007 kl. 23:08

4 Smámynd: Kolgrima

80.000? Ekki meira? Iss, þetta nýríka pakk ber ekki skynbragð á neitt.

Kolgrima, 22.10.2007 kl. 02:36

5 identicon

Ég geri fastlega ráð fyrir að hér hafi krónan misritast í stað punda. 80.000 ensk pund, vega 9.802.000 krónur, pínu munur þar á. 

., (IP-tala skráð) 22.10.2007 kl. 04:40

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

.,: Það hlaut að vera.  Hehe, ég dreg þá bón mína um peninga til baka, hm.. nema nottla að Björgúlfur og Jóhannes séu til í að styrkja verkefnið: "Óskar heim".

Kolgríma: Auðvitað var þetta of gott til að vera satt. eins og sjá má hjá punkti-kommu.

Ljónynja: ÞÚ hefur verið mynduð.  Muhahahaha

Jenný Anna Baldursdóttir, 22.10.2007 kl. 07:41

7 identicon

Nei, hún var víst á sölu fyrir 650 pund.

http://news.bbc.co.uk/player/nol/newsid_7050000/newsid_7053600/7053628.stm?bw=nb&mp=rm&nol_storyid=7053628&news=1

Earnest (IP-tala skráð) 22.10.2007 kl. 08:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 8
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 45
  • Frá upphafi: 2985787

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 39
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband