Leita í fréttum mbl.is

Fjandskapsjöfnun

 1

Jæja, til að slá á öldurnar í kommentakerfinu hef ég nú hugsað mér að almennilegheitablogga.  Það er ekki nokkur leið að hækka blóðþrýsting upp úr öllu valdi hjá heilum hópi fólks.  Nú verður bloggað um hluti sem allir elska.  Eins og t.d. litbrigði fiðrildavængja í ljósaskiptunum, hamingju húsmóður í hverfi 112 yfir tómum eldhúsvaski, áhrif hrásykurs á ljóshærða karlmenn á 24. aldursári og fleira skemmtilegt.

Jæja: Here goes!

Litbrigði fiðrildavængja í ljósaskiptunum eru blágrá með dassi af gulu.

Hamingja húsmóður í hverfi 112 yfir tómum eldhúsvaski er takmarkalaus og stjórnlaus.

Áhrif hrásykurs á ljóshærða karlmenn á 24. aldursári eru skelfileg og óafturkræf.

Jæja, þá er það búið.

Hvað á að taka næst?

Kolgríma kom með uppástungu um spilavítablogg.

Helvítis spilakassarnir.

Útmeððá.

Er ekki allir glaðir bara?

Æmgiggelinglækabeibí!

Úje!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Jú, jú, hér ríkir mikil gleði yfir svona friðsamlegri færslu. Bíð samt spennt eftir meiri látum. Knús í bæinn.

Guðríður Haraldsdóttir, 21.10.2007 kl. 12:58

2 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Jahéddna! Það er aldeilis að maður missir af ef maður hefur slökkt á tölvunni sinni í örfáa daga!! 

Heiða B. Heiðars, 21.10.2007 kl. 13:09

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Var farin að sakna þín Heiðuskott.

Gurrí: Ég er að kafna úr friðarvilja.

Lalalalala.

Jenný Anna Baldursdóttir, 21.10.2007 kl. 13:12

4 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Jú mikil gleði ekki veitir af

Kristín Katla Árnadóttir, 21.10.2007 kl. 13:14

5 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Sko, litbrigði fiðrildavængja eru sko ekki svona eins og þú segir. Þau eru sko ljóstúrkisgrá með dassi af gul dröppuðu. Hvað ertaðdirfast að halda öðru fram! og hva! Eru bara ljóshærðir karlmenn á 24. aldursári sem bregðast svona við hrásykri? Hefuru eikka á móti dökkhærðum miðaldra köllum ha? Kélling!

Hí hí, bara prófa hvernig er að æsa sig! Lovjú! Sársaukalaust að minni hálfu þótt spilakassar hverfi.

Laufey Ólafsdóttir, 21.10.2007 kl. 13:20

6 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

BHAAA haha, alveg ertu óborganleg addna Jenný mín, kona tekur sér frí frá finnsku og bloggi, í millitíðinni brýst út smá stríð á blogginu þínu, gott samt, ég sé betur hverjir eru áhugaverðir að tala við. 

Er reyndar alveg bit á sumum kommentum sem fólk skyldi eftir á síðunni þinni, er ekki árið 2007?   Hélt í einfeldni minni að fólk væri almennt upplýstara, og hvað hefur það þá sér til afsökunar á tímum upplýsinga að vera það ekki.  Það sem aðskilur dýr frá mönnum er sú staðreynd að dýr verður að haga sér samkvæmt eðli, köttur getur aldrei hagað sér öðruvísi en köttur, manneskjan hefur hins vegar val. En þegar sumir haga sér eins og skepnur, ja þá skammast ég mín fyrir kynstofninn.   Frábær afstaða hjá þér varðandi kynþátta fordóma, samkynhneigð og trúarofstæki, er alveg á þinni línu, finnst sú afstaða sæma okkur manneskjum.

 Haha, veistu hvað er mikið til af fólki sem upplifir það sem hámark hamingjunnar að sjá hreinan eldhúsvask, eða nýbónaðan bíl. í þeirra veröld rúmast fátt annað. Það veit varla að fyrir utan garðinn þeirra er risa stór veröld, með öllum sínum frábæra fjölbreytileika. Mikið er ég þakklát fyrir það að mín tilvera skuli rúma meiri gleði en hreinan eldhúsvask.

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 21.10.2007 kl. 13:46

7 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Fjandskapsjöfnun AARGHHH. Asninn þinn addna

Jóna Á. Gísladóttir, 21.10.2007 kl. 13:54

8 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Ég er í kasti.......fjandskapsjöfnun er eitthvert flottasta nýyrði sem að ég hef heyrt lengi !

Shalom!

Sunna Dóra Möller, 21.10.2007 kl. 14:35

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Skrifaði ég Jón Valur minn elskulegi bloggvinur (inni hjá Gurrí?).  Ég er með manninn á heilanum, ég get svarið það.  Þorrí Elsku krúsídúllan mín Jón ARNAR.  Hvernig gat ég ruglað ykkur saman? Oj ég hendi mér í vegg.

Jenný Anna Baldursdóttir, 21.10.2007 kl. 14:47

10 Smámynd: Huld S. Ringsted

Fínt að taka fjandskapsjöfnun á sunnudegi en endilega taktu svo spilakassana næst svo maður fái nú eitthvað fútt í blogglesturinn

Eigðu góðan fjandskapsjöfnunardag Jenný mín

Huld S. Ringsted, 21.10.2007 kl. 15:13

11 identicon

Heil og sæl, Jenný Anna og aðrir skrifarar !

Ósköp léttvægur; þessi já- kór þinn, hér í umræðunni. Hyggur þú, brottkast Helgu Guðrúnar, af spjallvina lista þínum, einhverja fróun þinnar þvermóðsku, hér á spjallsíðunum ? Dæmigerð viðbrögð rökþrota fólks, eins og þú virðist, því miður vera, að nokkru. Þú minnir mig; meir og meir, á þann öðlingsdreng, Bjarna Harðarson bókavin og alþm., þó; reynir hann, stöku sinnum, að svara fólki, án þess að kasta því, í vítiselda rökheldninnar, hvað þá af spjallvina lista sínum.

Þar skilur á milli, þín og Bjarna. Hefi ei haft tök á þátttöku umræðunnar, sökum svikullar nettengingar, síðan í gærkveldi.

Ekki þessa heift; Jenný mín. Fer ekki prúðu, og skikkanlegu fólki, neitt sérlega vel.

Með beztu kveðjum, úr Árnesþingi / Óskar Helgi Helgason 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 21.10.2007 kl. 15:48

12 identicon

Vildi þó bæta við !

Við þurfum; með öllum mætti okkar og getu, og snefil heiftar; ef þarf, að berjast, öll sem eitt, gegn ríkisstjórnardruslunni, þar getum við þó verið sammála; Jenný, og aðrir skrifarar !

Mbk. / Óskar Helgi Helgason  

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 21.10.2007 kl. 15:55

13 Smámynd: Kristín M. Jóhannsdóttir

Ætlaði að fara að andskotans yfir fiðrildunum og skapa leiðindi en sá að Leufey reyndi og mistókst þannig að ég verð bara að vera úti. Hér er greinilega engin leiðindi að finna í dag. Annars missti ég alveg af rifrildunum í gær því ég dróst aftur úr í lestri blogga. Hafði ekki við bloggvinum. En það er allt í lagi því ég hafði svo sem ekki margt að segja sem ekki hafði komið fram áður. Ég er í auknum mæli farin að þurrka út eigin athugasemdir áður en ég sendi þær inn á síður fólks því ég á það til að verða of reið yfir einhverju og ákveð svo að ég nenni ekki að standa í þessu. En trúðu mér, hef skrifað nokkrar velvaldar sem aldrei litu dagsins ljós í bloggheimum (bara á minni tölvu).

Kristín M. Jóhannsdóttir, 21.10.2007 kl. 16:02

14 Smámynd: Katrín Ósk Adamsdóttir

Þú ert frábær

Katrín Ósk Adamsdóttir, 21.10.2007 kl. 16:20

15 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Enginn, ekki þú, Óskar Helgi, ekki þessi orðheppni og djúpi bloggari né vinir hans heldur.  Ekki nokkur skapaður hræranlegur lifandi hlutur getur haggað mínu Nirvanaástandi sem ég er í, í dag.  Er ég rökþrota Óskar Helgi?  Dem og ég sem hef enga tilfinningu fyrir því.

Laufey, Hrafnhildur, Jóna og Sunna Dóra og Huld ég hata ykkur allar(engan jákór hér).

Kristín: Kannski ertu sniðugri en sumir sem gaspra og gaspra og uppskera ekkert annað en magasár fyrir bragðið

Jenný Anna Baldursdóttir, 21.10.2007 kl. 16:24

16 identicon

Líði þér, sem allra bezt í Nirvana ástandi þínu, Jenný Anna !

Vel að því komin, enda Bhúdda heitinn einhver mesti hugsuður, hver á jarðríki hefir dvalið, nokkru sinni; a.m.k., til þessa.

Mbk. / Óskar Helgi Helgason

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 21.10.2007 kl. 16:35

17 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Leitt að hafa misst af  "fjörinu" alltaf er ég jafn eftirávitur og seinheppin. 

Tek undir með Huld, taktu  spilakassana fyrir Jenný af þinni snilld, þegar þú ert í stuði.

Marta B Helgadóttir, 21.10.2007 kl. 18:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 2985878

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband