Leita í fréttum mbl.is

Af sætaferðum í Ikea og fleira "laufardagslegu" athæfi

Héðan frá kærleiksheimilinu verður farin sætaferð í IKEA og nú mun hver sótraftur á sjó dreginn.  Híhí og góðan daginn "kids".  Ég er á leiðinni í IKEA ásamt Söru, Jennýju Unu Eriksdóttur, Erik pabbanum,Helgu frumburði, og ef um semst Jökli gelgjubarni, Dúu-Dásó-Dúsk og Völuskottinu hennar.  Húsband neitar að fylgja með, í þessari plebbalegu fjöldaferð og ætlar til gítarsmiðs í staðinn.  Svona geta karlmenn verið ógeðslega ömurlegirWhistling.

Þar sem líf mitt er bæði spennuhlaðið, örlagaríkt og fullt af ótrúlegum ævintýrum, finnst mér að þið verðið að vera með í geiminu.  Ég geri mér grein fyrir að það eru ekki allir sem njóta þeirra forréttinda að lifa svona lífi "on the fast lane".  Úje.  Ég er að hugsa um að hringja í hana Jónu vinkonu mína og bjóða henni með, vona að það sé ekki búið að læsa hana inni í skáp einn ganginn ennW00t.

Mig vantar þrennt, bráðnauðsynlega úr IKEA.  Styttu, blóm og ausu.  Segi svona.  Mig vantar gardínur, gólfmottu (enginn boðið sig fram í það hérDevil) og kjötbollur.  Nú má spyrja, hvernig hægt sé að vanta, bráðnauðsynlega, kjötbollur, og því er auðsvarað.  Mig vantar þær bráðnauðsynlega, því litli matargikkurinn hún Jenný Una, elskar kjötbollur og hún ætlar að vera hjá okkur í nótt.  Sara dóttir mín lætur yfirleitt undan vælinu í okkur, um að fá barnið og pabbi hennar Jennýjar gefur leyfi sitt líka, af því hann er góður maður, en ég held að þeim þyki nóg um stundum.  Ég legg þá sektarflipp á Söruna og bendi henni á að Jökullinn er orðinn gelgja og fer sínar eigin leiðir auðvitað og Óliver prins, er í London og fjarri Granny-J.  Annars er amma-Brynja að fara til þeirra á mánudaginn (þessar fluffur, aldrei heima, hehe)og mun taka myndir og segja mér frá öllu í smáatriðum.  Svei mér þá ef hún Brynja er ekki jafn flott amma og ég og þá er nú mikið sagt.  Hef ég nefnt það við ykkur áður, hvað ég er hógvær að eðlisfari?

Hm. Nú má ég ekki vera að þessu lengur, í bili að minnsta kosti.  Skyldan kallar (Sick).  Er að þvo, baka, sulta og strauja.  Okok dragið frá 75% og fáið út þvottahús.

Held áfram að uppfæra, eftir IKEA-ferð og þið krakkar mínir sem viljið fara í orgíu til hinnar sænsku verslunarhallar, látið vita, enn eru nokkur sæti laus.

Á "laufardögum" fáum við "pínulítið" nammi, "pínulítið" ömmukók og horfum á "Grekamyndir" út í eitt.  Jenný Una sem þessa dagana fær "HUMYNDIR" alveg stöðugt, bað mig að koma þessu á framfæri.

Á morgun plana ég að hitta frumburðin og gelgjuna og kíkja á þeirra nýja ættarsetur í Vesturbænum, hvar þau hafa nýlega hreiðrað um sig.

Síjúgæs!

Úje.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Já það er akkúrat svona fílingur hérna líka nema við ætlum í hina áttina til Crawley og látum Ikea bíða betri tíma. Verslunarleiðangur en við förum bara fjölskyldan og einn vinur Nóa. Það á að kaupa töffaraföt og fá klippingu.

Góða skemmtun..segi þér svo frá í details hvvað ég keypti þegar ég kem til baka. Kannski nokkra potta..

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 13.10.2007 kl. 10:58

2 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Já eskan ef ég hefði vængi mundi ég fljúga til ykkar undir eins!

Edda Agnarsdóttir, 13.10.2007 kl. 11:06

3 identicon

Hehehehehehe.Ekkert IKEA hjá mér í dag en sundferð er í kortunum. Góða verslunarferð og smakkist þær sænsku vel. Knús til þín

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 13.10.2007 kl. 11:10

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ný búin að fara skotferð í IKEA kíkti þá á glerskáp undir alla steinana mína, ætla að kaupa mér einn slíkan.  Kjötbollurnar eru æði í ÍKEA, við höfum stundum farið í mötuneytið, bæði hér og annarsstaðar, Danmörku og Austurríki og það eru sömu góðu kjötbollurnar allstaðar  nammi namm.  Góða skemmtun

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 13.10.2007 kl. 11:19

5 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

ooooh alltaf boðnar sætaferðir í IKEA þegar ég er peningalaus. Getiði skipulagt aðra ferð 2. nóv? Þá panta ég 2-3 sæti allt eftir hvort mín gelgja er viðræðuhæf eður ei.

Laufey Ólafsdóttir, 13.10.2007 kl. 11:30

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Laufey: Búin að skrá þig á IKEA-listann.  Sætaferðir jenfo.husmodurplebbaiseljahverfinu.is

Ásthildur:  Svona kjötbollur eru bráðnauðsynlegar á hvert heimili.  Veistu tímann sem það tekur að búa til almennilegar kjötbollur svo vel sé?  Svo er hægt að nota þessar í ítalskar líka.  Ójá.

Birna Dís:  Passaðu þig nú og hafðu hemil á sveigjanleikanum í sundinu.  Þú ert allt of utanáliggjandi í skápamálunum. Skápur nr. 1 skal það vera ´sskan.

Edda mín: Ertu ekki með vængi?

Katrín:  Demdu ofan í körfuna nokkrum bókum eftir lókalhetjuna Alister.

Jenný Anna Baldursdóttir, 13.10.2007 kl. 11:39

7 identicon

Blessuð mín kæra...Sit úti á velli að bíða eftir flugi til Olivers. Lofa þér fullt af myndum af ömmubarni okkar Ég kláraði fyrr hér í Stokkhólmi og allt gekk mjög vel.. Fullt af kossum til Söru,Helgu og barnabarna þinna. 

Brynja Nordquist (IP-tala skráð) 13.10.2007 kl. 11:45

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þús. kossar og knús elsku Brynja mín.  Viltu knúsa Oliver og Maysuna í klessu og Robba auðvitað líka, ef hann er ekki floginn heim.

Verum í bandi þegar þú ert komin á svæðið.

Love u

Jenný Anna Baldursdóttir, 13.10.2007 kl. 11:48

9 Smámynd: Heiða  Þórðar

Sjáumst í Ikea....verð á milli sófanna tveggja.

Heiða Þórðar, 13.10.2007 kl. 12:08

10 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

það er útilokað fyrir mig að fara í IKEA þegar svona lítið er í buddunni. Ég get engan veginn stigið fæti þar inn án þess að stinga allavega kerti, mottu og eins og einum sófa inn á mig.

Ég er með humynd. Farðu í þerapíu addna til að lyfta aðeins upp sjálfstraustinu og egóinu. Það er ekki hægt að þú gangir um svona niðurlút og óánægð með sjálfið.

Jóna Á. Gísladóttir, 13.10.2007 kl. 12:43

11 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Væri sko til í IKEA og Ikea mat í dag. Gæti örgglega keypt helling af einhverju sem mig vantar ekki, t.d. seríu, ramma, mottur, kerti, lampa os.frv.  ómægod hvað það væri gaman að vera með ykkur.  Góða skemmtun.

Ásdís Sigurðardóttir, 13.10.2007 kl. 12:45

12 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Væri sko alveg til í að fara með ykkur í IKEA. Hef bara komið þangað einu sinni eftir að það flutti upp í sveit. Nú er það svo mikið úr leið, finnst mér, og er hálfmóðguð yfir dekrinu við þetta gengi sem á bíl. Það eina sem vantar hér á Akranesi er Rúmfatalagerinn ... svona ef út í það er farið. 

Guðríður Haraldsdóttir, 13.10.2007 kl. 13:09

13 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Er að lesa fyrir próf um helgina

Marta B Helgadóttir, 13.10.2007 kl. 13:16

14 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

Ég hef ekki farið í IKEA eftir að það flutti. Verst að ég gæti mögulega neyðst til þess fljótlega, þarf að fara að kaupa rúm fyrir litlu krakkana, þau eru að fara sitt í hvort herbergið og kojurnar verða aflagðar.

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 13.10.2007 kl. 13:18

15 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Ég hef farið 2 sinnum í IKEA síðan að það var flutt en sænsku kjötbollurnar er mjög góðar.

Kristín Katla Árnadóttir, 13.10.2007 kl. 13:35

16 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Góða ferð ! Hér er ekki tími fyrir IKEA ferðir né nokkuð annað, þar sem bakstur dauðans er í gangi vegna fimm ára stórafmælis !

Sunna Dóra Möller, 13.10.2007 kl. 13:46

17 identicon

Ég trúi því nú mátulega að hún Jóna bloggvinkona okkar nýti ekki þetta góða boð að fara í IKEA án hennar ðaddna „rasistans“. Það eru nú til hin og þessi plastkort sem koma að gagni þegar ekki klingir í krónum

Endilega njóttu ferðarinnar í IKEA. En bara svo eitt sé á hreinu, ég bý til bestu sænsku kjötbollur í heimi. Það eru margir sem geta staðfest það. Þú veist þá að það er eitt af því sem bíður þín þegar þú kemur norður til mín, mín kærasta kæra  og ekki væri verra að litla prinsessan hún Jenný Una Eriksdóttir, trommuleikari með meiru gæfi álit sitt á bollunum

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 13.10.2007 kl. 14:40

18 Smámynd: Ragnheiður

Ég er nú áreiðanlega yfirplebbinn hérna -ég hef aldrei á minni æfi étið neitt í Ikea og fer ég þó þangað nokkuð oft.....

Ragnheiður , 13.10.2007 kl. 15:36

19 Smámynd: Kristín Björg Þorsteinsdóttir

Er á leið í forgarð helvítis (Kringluna) - ég heyrði nýtt nafn á IKEA um daginn þegar samstarfsona mín kallaði hana "Stóru Hryllingsbúðina"

Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 13.10.2007 kl. 16:36

20 Smámynd: Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir

Fórum í Ikea um daginn til að peppa upp barnaherbergin..

ég fékk slæmt óþol og fannst ég vera komin upp á klakann aftur....keypti samt kjötbollur og nóg af þeim!!!

Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, 13.10.2007 kl. 16:48

21 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Bíddu!!!! Af hverju var ekki hringt i mig???!!!??? Er einhver mismunun í gangi???!!!???

Hrönn Sigurðardóttir, 13.10.2007 kl. 21:14

22 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Sko, ef Steinunn Ólína, eðalkokkan sjálf kaupir sænskar kjötbollur, þá eruð þið hinar fullsæmdar af því líka.

Anna: Tek þig á orðinu, var eimitt að pæla í að reyna að draga Jónuna með mér til Agureyris.

Kristjana: Auðvitað hefðirðu drifið þig á 10 tímum flötum, verst hvað þú ert stundum lítið við tölvuna.

Hrönnsla:  Þú varst rokin til Borgar Óttans í menningarferð þegar ég hringdi

Ragga:  Þú verður að prufa IKEA mat.  Ekki spurning, fyrr hefur þú ekki lifað.

Kristín Björg: Þetta er mikið réttnefni á Kringlunni.  Hahaha

Þið hinar dúllurnar mínar og þetta á við Fröken Himnaríki líka, skrifa sig á sætaferðirnar, muna það og Marta mín, þú kemur eftir próf.

Lofjúgæs.

Jenný Anna Baldursdóttir, 13.10.2007 kl. 23:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 2985883

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 52
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband