Leita í fréttum mbl.is

Borgarstjórnarfundurinn í dag - mín upplifun

Ég er búin að sitja yfir fundinum títtnefnda, reglulega frá byrjun til enda.  Reyndar tók ég smá pásu á meðan Bingi hélt sjálfsmæringarræðuna og ég var nokkuð viss um að Bingi og spegilmynd væru ákaflega ástfangnir hvor að öðrum, og yfir sig ánægðir með sitt framlag til mannkynssögunnar.

Ég er svo stolt af henni Svandísi og mér finnst að Reykvíkingar (og landsmenn allir reyndar) geti þakkað hennar einurð til að grafast fyrir um hvað væri í gangi, að þetta mál lak ekki, án viðstöðu í gegn, þegjandi og hljóðalaust.  Svandís mætti vera til í mörgum eintökum.  Ég er örugg með að þetta mál verður skoðað ofaní kjölinn af því hún hefur tekið það að sér.

Samfylkingin er höll undir einkavæðingu opinberra fyrirtækja og ég get ekki alveg tekið þá alvarlega í þessari umræðu.  Finnst eins og þeir séu móðgaðir yfir framgangsmátanum, allt hitt sé í lagi.

Margrét Sverris var flott að vanda, ég er ekki sammála henni í pólitík, en ég ber heilmikla virðingu fyrir henni.

Borgarstjórinn, ó Borgarstjórinn!  Ég engist og finn til meðaumkunar vegna þeirrar stöðu sem hann er í.  Allt upp í loft í hans eigin flokki og samstarfið við hinn eina Framsóknarmann í meirihlutanum í hættu.  Það gerist hjá Vilhjálmi, eins og gerist hjá öllum, þegar þeir reyna að sigla milli skers og báru.  Allir rosa pirraðir og enginn ánægður. 

Svo er það voða slæmt hvað mikið minnisleysi hrjáir manninn þessa dagana, einkum og sér í lagi varðandi sum atriði, sko þessum sem þjóðin stendur á öndinni yfir.

Ójá!

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Já, þetta er allt ótrúlega fróðlegt og heimskulegt. Svandís er alveg að toppa þarna, mér finnst hún alveg bráðgáfuð og skynsöm manneskja að hlusta á.  Spurning hvernig sápan endar.

Ásdís Sigurðardóttir, 10.10.2007 kl. 19:33

2 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Ég sá Svandísi líka í fréttunum, Hún er alveg svakalega flott í þessu máli og á heiður skilinn fyrir framgang sinn!

Villi gleymni er alveg að spila rassinn úr buxunum....hvað er málið með það að muna ekki neitt. Mér finnst það grafalvarlegt mál að vera með borgarstjóra sem berst við minnisleysi.....það veit ekki á gott ef að hann fer að gleyma svona almennt og yfirleitt hinu og þessu. Ég fyllist bara skelfingu....nema þetta sé svona once in a læftæm minnisgloppa......heppilegt að hún komi á þessum tíma !

Sunna Dóra Möller, 10.10.2007 kl. 20:06

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég held eimitt Sunnu Dóra að þetta sé voðalega "heppilegt" minnisleysi sem ætlar alls ekkert að stoppa við, sem betur fer

Kristjana:  Nú kann ég við þig, nú VEIT ég hver það er sem er að kommenta hjá mér.  Muhahahaha

Ásdís: Þú sérð hverjir eru að missa sig í þessu máli, og hverjir standa keikir eftir

Jenný Anna Baldursdóttir, 10.10.2007 kl. 20:19

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sammála ykkur að Svandís var rosalega flott þarna.  Og hún bókstaflega rassskellti allt liðið þarna.  Því miður missti ég af Margréti Sverris, hefði viljað hlusta á hana líka.  En takið eftir að það eru konurnar sem ber mest á í að hræra upp í spillingarpottinum.  Hinsvegar var Dagur B ágætur í kastljósinu, en unga konan frá sjöllum útbólgin af frekju og yfirgangi. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.10.2007 kl. 20:20

5 identicon

Veistu það jenný að mér finnst borgarstjórinn orðinn svo margsaga í þessu máli að ég er orðin verulega tortryggin. Svandís er sú eina sem ég treysti orðið í þessu máli.

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 10.10.2007 kl. 21:04

6 Smámynd: krossgata

Svandís skörungur.  Flott kona.  En hann Vilhjálmur, guð minn góður!  Hann segir það er sátt, það er einhugur í meirihlutanum og svo segir Bingi nei ég er ekki sammála og enginn sátt eða einhugur er sjáanlegur innan landhelgi.

krossgata, 10.10.2007 kl. 21:17

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Nennti ekki að horfa á Kastljós, geri það seinna, ákvað það þegar ég sá að það voru sjallar og Dagur sem mættu.  Þó ég sé nú ansi ánægð með Dag sko en var eiginlega komin með upp í kok af þessu rugli eftir daginn.

Anna, ég er líka tortryggin, það er á hreinu og ég legg allt mitt traust á Svanhildi, því það er eina manneskjan sem ég veit að hefur verið að bera hag almennings fyrir brjósti í þessu máli.

Krossgata: Bingi og Bill eru frekar kjánalegir, og þetta mál alveg með ólíkindum.  Af hverju taka þeir ekki pokann sinn?  Ég skil þetta ekki.

Jenný Anna Baldursdóttir, 10.10.2007 kl. 21:42

8 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

sjá hér. Snilld, bara snilld...

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 11.10.2007 kl. 08:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 2985884

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 53
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.