Leita í fréttum mbl.is

Kæri Vilhjálmur

Myndirðu vilja vera svo vænn að fara að láta sjá þig.  Það eru allir að bíða eftir því að þú mætir og segir eitthvað.

Þinn eigin borgarstjórnarflokkur er að fríka út og sjálf er ég og mín fjölskylda orðin þreytt á að hanga í óvissu með hvað þú ætlar að gera í REI og GGE.

Svo hár er blóðþrýstingurinn í þínum eigin flokki, að einhver lét sér detta í hug að slíta samstarfinu við Binga (Framsóknarflokkinn reyndar, en er það ekki bara Bingi og svo bróðir hans í nefndarstörfum?) og fara í samstarf með VG.  Þú sérð að málin eru komin á hættulegt stig.

Plís láttu sjá þig áður en allt verður vitlaust.

Komasho.


mbl.is Átti að vaða yfir okkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það ætti nú fyrst og fremst að reyna að drösla gamla framsóknarhundinum honum Alfreð G Þorsteinssyni fram í sviðsljósið fyrir þetta og spyrja hann spjörunum úr, því að auðvitað er það hann sem stjórnar þessum mönnum á bak við tjöldin. Villi og Björn Ingi eru bara strengjabrúður í hans höndum, enda Villi oft kallaður Vilfreð.

Stefán 

Stefán (IP-tala skráð) 8.10.2007 kl. 09:22

2 identicon

Hvaða vitleysu er Villi kominn í og það með framsóknarspillingaraflinu? Ég sem yfirlýst íhald er ekki sátt við Villa núna.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 8.10.2007 kl. 09:27

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég sá ekki betur Stefán en að Alfreð hafi verið að verja gjörninginn í sjónvarpinu rétt fyrir helgi.  Ójá.

Birna Dís, ég skal fyrirgefa þér íhaldsmennskuna en Vilhjálmur er flokknum til skammar.

Jenný Anna Baldursdóttir, 8.10.2007 kl. 09:44

4 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Þetta er svo ósvífið mál að ég er bara gjörsamlega algjörlega orðlaus! Ég vona að mér verði fyrirgefið fyrir að segja þetta....en þessi borgarstjórnarmeirihluti með Villa í brúnni er að drulla upp á bak.....þó að restin að íhaldinu hafi ekkert vitað! Það eru bara fleiri mál sem eru í ólestri eins og leikskólamál og fleira. En svo eru bara menn á Spáni að skoða vatnsrennibrautir......það eru greinilega til peningar fyrir því !!

Sunna Dóra Möller, 8.10.2007 kl. 11:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 7
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 2985874

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband