Leita í fréttum mbl.is

Ef, ef, ef, ef...

..karlinn minn ætti fyrrverandi viðhald (gegnir aðeins öðru máli ef það væri núverandi) og hún myndi flytja til Reykjavíkur frá einhverri holu utan að landi, myndi ég hugsa; ok, þetta er frjálst  land, hún getur svo sem búið hérna í bænum, þessi herfa, en OMG hvað hún skal halda sér á mottunni. 

Ef fyrrverandi viðhald (gegnir enn öðru máli með núverandi viðhald) myndi flytja í götuna mína, þá myndi ég banka upp á og segja "this street ain´t big enough for both of us".  Alveg dedd ákveðin á því.

Ef ég hinsvegar væri meðvituð um viðhöld, fyrrverandi og núverandi, sem mér væri verulega uppsigað við, væri ég auðvitað búin að fleygja karlinum út fyrir löngu, búin að vingast við viðhaldið og hefði hreint ekkert út á hana að setja.

En þetta er alltsaman svona ef dæmi.

Ég er biluð, ég veit það.

Cry me a river!

Úje


mbl.is Ástkonan elti Beckham til Bandaríkjanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

hahaha þú ert fyndin. En það verð ég að segja að ég er svo hjartanlega sammála

Jóna Á. Gísladóttir, 18.9.2007 kl. 17:54

2 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Það er eitthvað við svona viðhöld og framhjáhöld sem fær mig til að fara að hristast til og frá af pirringi......alveg ósjálfrátt hreinlega !

Sunna Dóra Möller, 18.9.2007 kl. 17:56

3 Smámynd: Kolgrima

hahha þessi er góður! En hvað er að þeim sem vilja vera heimsfræg viðhöld anyways?

Kolgrima, 18.9.2007 kl. 18:15

4 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Held að Norður Ameríka sé ekki nógu stór fyrir þær báðar. Viðhaldið fær reyndar athygli út á þetta og vilja ekki allir verða frægir ... til að þeir þurfi síðan að ganga með sólgleraugu og derhúfu til að þekkjast ekki?

Guðríður Haraldsdóttir, 18.9.2007 kl. 18:21

5 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Mér finnst alltaf gott að vera með sólhúfu og dergleraugu

Markús frá Djúpalæk, 18.9.2007 kl. 19:21

6 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Æ, þú ert svo hrikalega góð í þessum greinum þínum. Ég væri búin að henda honum fyrir löngu, deili ekki eiginmanni.

Ásdís Sigurðardóttir, 18.9.2007 kl. 19:36

7 identicon

Fyrrverandi kella húsbandsins míns elti okkur landshluta má milli. Þau skildu 3 árum áður er við byrjuðum saman. Það stóð til að vingast við mig með góðu eða illu og flutt landshorna á milli til þess. Enda er ég æðisleg

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 18.9.2007 kl. 19:54

8 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Birna Dís, á hvaða landshorni er hún núna? Grafin á Melrakkasléttur? Muuuhaaaaaa

Jóna Á. Gísladóttir, 18.9.2007 kl. 20:02

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég spyr líka, dr..st þú kj.....? Segi svona.  Við konur eigum alltaf að standa saman.  The sisterhood you know.

Jenný Anna Baldursdóttir, 18.9.2007 kl. 20:07

10 Smámynd: Bjarndís Helena Mitchell

LOL, ekki er öll vitleysan eins!

Bjarndís Helena Mitchell, 18.9.2007 kl. 20:13

11 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Já óþolandi! LA er auðvitað smábær þar sem allir þekkja alla.

Laufey Ólafsdóttir, 18.9.2007 kl. 21:37

12 identicon

Neibb. Mosó . Ég (við)fluttum suður aftur og hún á eftir  erum ekki enn orðnar vinkonur. Ég er með andstöðuþrjóskuröskun.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 19.9.2007 kl. 09:13

13 identicon

Ég hugsa að Becham eigi nú aðeins eftir að skransa í Rebeccu. Maður fær nú leið á því að grafa alltaf í sömu holuna, enda eru þrengslin víst inn í dag.

Boggi (IP-tala skráð) 19.9.2007 kl. 15:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 42
  • Frá upphafi: 2985797

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 39
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband