Leita í fréttum mbl.is

FINGURINN UPP...

1

..á Barnes & Noble, sem hafa ákveðið að taka að sér sölu á játningabók OJ Simpson.  Það er nokkurn veginn ljóst að maðurinn er morðingi og hann er þekktur heimilisofbeldismaður.  Smekklegt eða hitt þó heldur að gefa honum vettvang til að koma sjúklegum löngunum sínum sem m.a. felast í því,  að hælast um yfir skelfilegum morðunum sem nánast allir telja að hann hafi framið, á framfæri.

Dem, dem, dem og ég sem hef alltaf verið svo höll undir Barnes & Noble.

Júkantrustenýboddíenímor!

ARG


mbl.is Ósmekklegasta bók síðustu ára
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Já ég er viss um að allir eru tryllitir í að velta sér upp úr viðbjóðnum.  Arg.

Jenný Anna Baldursdóttir, 2.9.2007 kl. 18:41

2 Smámynd: Bjarndís Helena Mitchell

Bjarndís Helena Mitchell, 2.9.2007 kl. 18:42

3 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Sársaukinn og eymdin gefur líka peninga, því miður.

Edda Agnarsdóttir, 2.9.2007 kl. 18:43

4 identicon

Þið eruð eitthvað að misskilja. Simpson er ekki að gefa út bókina, það eru foreldrar fórnarlambanna sem eiga réttindin á bókinni og létu prenta hana. Peningurinn rennur meðal annars til góðgerðamála og fyrrnefndra foreldra en ekki króna fer til Simpson, sem hefur heldur engan rétt á kvikmynd eða öðru fjölmiðlastússi sem gæti fylgt myndinni.

 Eiga Barnes og Noble að segja: "Nei, ógissleg bók, viljum ekki selja hana þó svo að það sé eina leiðin fyrir fjölskyldu fórnarlambana að ná hluta af þeim pening sem þeim var dæmdur út úr morðingjanum eftir margra ára málaferli og vandræði."?

 Ég vona að sem flestir kaupi þessa bók og hendi henni í ruslið.

G. H. (IP-tala skráð) 2.9.2007 kl. 19:21

5 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ef þetta er málið o.k. en samt því að gefa viðbjóðinn út.??

Ásdís Sigurðardóttir, 2.9.2007 kl. 20:49

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Það stendur ekkert um þetta í fréttinni G.H. og þrátt fyrir að þetta sé raunin, þá hljóta smekklegri fjáröflunarleiðir að vera til.  Égmeinaða.

Jenný Anna Baldursdóttir, 2.9.2007 kl. 21:12

7 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Ef það sem G.H. segir eru staðreyndir þá er mbl.is eitthvað að kúka í brækurnar núna með fréttaflutninginn. Mér finnst vissulega skipta máli ef ættingjar fórnarlambanna eru á einhvern kaldhæðinn hátt að sýna almenningi fram á sekt O.J með þessari bók. En eitthvað er samt skrýtið í þessu. Er ekki alveg að ganga upp. Ég vil fá skýringu. STRAX

Jóna Á. Gísladóttir, 2.9.2007 kl. 21:20

8 identicon

Transfer of rights

Rights for the book were transferred to the Goldman family, who will receive 90% of profits, as part of their settlement. The family's lawyers announced intentions to pursue new publishing, film or TV deals in order to receive some of $33.5 million awarded to them in the civil case.[36]

Lawsuits

Fred Goldman sued the shell corporation, Lorraine Brooke Associates, for the publishing rights after it filed for bankruptcy. After Goldman purchased the rights from the court-appointed bankruptcy trustee,[37] Nicole's father, Louis H. Brown, sued Goldman attempting to stop the publication but lost.[38]

tók þetta af eftirfarandi slóð á Wikipedia:  http://en.wikipedia.org/wiki/If_I_Did_It

Vala (IP-tala skráð) 2.9.2007 kl. 23:02

9 Smámynd: Bertha Sigmundsdóttir

Sannleikurinn er einmitt sá að gróðinn af bókinni fer til fjölskyldu fórnarlambanna, en ekki til O.J.´s. Barnes and Nobles tók að sér að gefa bókina út, vegna fyrirspurnar o.s.fr. Þessar staðreyndir breyta samt ekki því að þessi bók er óhugnaleg og ógeðsleg, það er viðbjóðslegt að hugsa til þess að svona bók sé til, spurning hvort kom fyrst, bókin eða fórnarlömbin????

Það er skiljanlegt að Goldman fjölskyldan sé að reyna að fá eitthvað af peningnum sem að OJ skuldar þeim, en mér finnst mjög ósmekklegt af þeim að fara þessa leið. Fjölskyldan meira að segja skrifar forword í bókinni, þannig að þau eru að reyna að fá einhvern pening frá OJ, með því að ýta undir það að bókin verði gefin út, og að fólk kaupi bók sem lýsir því hvernig sonur þeirra var myrtur.

ÓGEÐSLEGT á alla vegu, á gróður þessarar bókar eftir að færa Goldman fjölskyldunni soninn tilbaka? Eiga peningar eftir að færa fjölskyldunni frið og ró, kannski, ekki get ég skilið hvernig samt.

Ég er sammála einu, ef ég myndi kaupa þessa bók, þá myndi ég brenna hana eða kasta henni í ruslið...

Bertha Sigmundsdóttir, 3.9.2007 kl. 00:50

10 Smámynd: Jens Guð

  Þetta er allt sjúkt frá A-Ö.  O.J. Simpson var/er ofbeldishrotti.  Mjög líklega drap hann konu sína og kærasta hennar.  Flest bendir til þess.  Hann var/er hinsvegar forríkur.  Hann réði til sín lögfræðingateymi sem kann allar kúnstirnar.  Í Bandaríkjunum eru það ekki dómarar sem kveða upp úr um sekt eða sakleysi heldur fólk af götunni.  Svokallaður kviðdómur.  Í kviðdómi mega ekki sitja neinir sem hafa myndað sér skoðun á málinu.  Þess vegna eru þetta yfirleitt fáfróðir kjánar.  Leikurinn snýst um það að koma kjánunum á sitt band.  Það er auðvelt dæmi þegar verjendur eru klárir en sækjandi máls láglauna lögfræðingur á launum frá ríkinu.   

Jens Guð, 3.9.2007 kl. 01:44

11 Smámynd: halkatla

fólkið sem kaupir þetta er líka bara illa sjúkt og ómerkilegt!

halkatla, 3.9.2007 kl. 09:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.