Leita í fréttum mbl.is

ÞÁ VAR EKKI LJÓSANÓTT - ÓNEI

1

Einu sinn bjó ég í Keflavík, ég veit, erfitt að trúa, ég þessi rosa heimsborgari.  En þarna bjó ég sem sagt í nokkur ár og vann á skrifstofu Aðalverktaka, flokksbundin í Alþýðubandalaginu og á kafi í hermanginu.  Svona getur maður verið ógeðslega siðlaus, ég veit það, en þeir borguðu vel.

Á þeim tíma var ekki Ljósanótt í Keflavík.  Ónei.

Þá voru myrkar nætur í bænum.

Og til að kóróna allt var ég að kafna úr gúanólykt.

Dónteikmitúsíríoslíplís!

Live is beutiful!

Úje


mbl.is Léttir til á Ljósanótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Ó þú siðlausa kvendi... hvar hefur þú verið þetta eilífðarkvöld

Jóna Á. Gísladóttir, 1.9.2007 kl. 23:54

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Já, nú sjá menn ljósið í Keflavík, gott mál.

Ásdís Sigurðardóttir, 1.9.2007 kl. 23:56

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jóna heldurðu að ég hafi ekki verið að horfa á menningarlegt efni á sjónvarpsstöðinni E.  Ég veit, ég veit, alveg hámenningarlegt.  10 flottustu bikiniberararnir (þeir sem bera bikini muhahahaha).  Það komst ég að því að Jessica Alba hafði stórsigur á Jennifer Aniston, eftir snarpan lokaslag á endasprettinum.  Úff, þvílík spenna.  Og þá skilur þú nottla af hverju ég hef ekki getað verið í netheimum á meðan.  En nú er ég komin, eiturhress enda vann mín kona.

Jenný Anna Baldursdóttir, 1.9.2007 kl. 23:58

4 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Þetta get ég skilið. Afhverju léstu mig ekki vita af því að þessi hámenningarlegi þáttur væri á dagskrá í kvöld?

Jóna Á. Gísladóttir, 2.9.2007 kl. 00:18

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég get svarið það Jóna að ég var svo hrædd um að missa af þættinum að ég gúffaði í mig matinn, henti diskunum og hnífapörunum (til að þurfa ekki að sitja uppi með uppvask) og rétt náði að planta mér með ferðaklósettið við sjónkann.  Algjör spenna kona góð.

Jenný Anna Baldursdóttir, 2.9.2007 kl. 00:24

6 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Hey, hverju missti ég af á meðan ég hékk í youtube. Ohhh, þú ert svo menningarleg.

Guðríður Haraldsdóttir, 2.9.2007 kl. 00:57

7 Smámynd: Fishandchips

Samhryggist.... Bjó þarna líka til skamms tíma.

Furðuleg (ó)menning. það skipti ekki máli hvort vinnan var á stórum eða litlum vinnustað, þú varst bara utanbæjarpakk. En fólk úr Sandgerði, Höfnum og þessum litlu stöðum allt í kring, er yndislegt.

Eina fólkið sem var hægt að stofna til vinskapar við.   

Fishandchips, 2.9.2007 kl. 01:40

8 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Arrgghhh ertu búin að losa ferðatojarann?

Jóna Á. Gísladóttir, 2.9.2007 kl. 01:55

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

nei sit á the traveler as we speak

Jenný Anna Baldursdóttir, 2.9.2007 kl. 02:16

10 identicon

Kæra Jenný, Undnafarna daga hafa birst afar skeleggar greinar um stöðu velferðarmála á Íslandi - einkum hvað lýtur að sjúkum og öldruðum. Ég hvet þig eindregið til að lesa færslu á :

http://www.blogcentral.is/gislina 

sem ber yfirskriftina ,,Mótmælum öll´´, lesa athugasemdirnar og veita innihaldinu áfram á þinni síðu. 

M.kv.

Linda María

Linda María Magnúsdóttir (IP-tala skráð) 2.9.2007 kl. 07:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 54
  • Frá upphafi: 2985885

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband