Leita í fréttum mbl.is

DÚA - DÚA -DÚA

 1

..eða Sigþrúður Þorfinnsdóttir, vinkona mín, er fertug í dag.  Ég óska henni til hamingju og ég veit að hún er ákaflega glöð yfir að vera loksins orðin þroskuð kona, a.m.k. að nafninu til.

Dúa dásamlega, Dúa dásó eða Dúa athugasemd (www.dua-athugasemd.blog.is) er nokkuð skemmtileg kona, bráðfyndin, djúp og yfirborðskennd og hundleiðinleg þegar hún vill það við hafa.  Hún er líka viðurstyggilega hreinskilin sem gerir það að verkum að það getur tekið verulega á að vera vinkona hennar. 

Hún er konan sem raðar eftir stafrófsröð í eldhússkápana, kallar það umhverfisslys ef það skvettist vatn á gólfið, fer í ham ef svarta peysan er lögð í rauðupeysudeildina og þess háttar.  Enda er konan meyja af Guðs náð. 

Hún er líka sú sem hægt er að leita til ef eitthvað kemur uppá, þ.e. ef hún er í stuði til þess að svara í símann.  Það næst þó alltaf í hana á endanum.

Hún er konan sem kemur mér oft til að gráta úr hlátri, vegna þess að hún er svo meinfyndin og skemmtileg.

Svo er hún sæmilega gefin kjéddlan og hægt að ræða við hana um allt milli himins og jarðar.

Hún er Sjálfstæðismaður en það er auðvitað engin manneskja fullkomin.

Til hamingju villingurinn þinn!

Æamvottæam (syngur hún sko)

Újejejeje


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Skemmtileg færsla Jenfo. Ég á sko afmæli í september

Jóna Á. Gísladóttir, 27.8.2007 kl. 20:14

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég líka sko, er ein af þessum 9/11 dæmum  Fæddist ellefta september og get ekkert gert að því þó Goggi búskur og kó hafi stórskemmt ammælisdaginn minn.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.8.2007 kl. 20:16

3 Smámynd: Þröstur Unnar

Ætlarðu þá að vera hérna ein og rífast í sjálfri þér?.

Maður er nú bara að dást að frásagnarhæfileikum Jennslunar, so vertu bara góð stelpu tuðra.

Þröstur Unnar, 27.8.2007 kl. 20:24

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ásthildur ég á einn svona 9/11 miðjubarnið mitt, strákur sem hataði að vera meyja þegar hann var barn, ekki kúl.

Ásdís Sigurðardóttir, 27.8.2007 kl. 20:25

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Flott mynd kjéddlan.  Alveg eins og aldurinn segir til um. Muhahaha

Já ég bíð spennt eftir ammóinu Jóna mín, þú verður aldrei söm.

Jenný Anna Baldursdóttir, 27.8.2007 kl. 20:28

6 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Meyjur eru bestu skinn! Dúa, til hamingju með daginn!!!

Guðríður Haraldsdóttir, 27.8.2007 kl. 20:29

7 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ég hef alltaf verið veik fyrir meyjum

Hrönn Sigurðardóttir, 27.8.2007 kl. 20:38

8 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

úbbs - það mátti nú stórlega misskilja þetta.....

meinti það ekki þannig ef þið takið því svoleiðis........

Hrönn Sigurðardóttir, 27.8.2007 kl. 20:39

9 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Hver sagði að ég væri ruglingsleg??

Hver??

Hrönn Sigurðardóttir, 27.8.2007 kl. 20:39

10 Smámynd: Þröstur Unnar

 Dúfan mín

Þröstur Unnar, 27.8.2007 kl. 20:49

11 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ásdís jú kúl er það.  Þetta er svona eins og Boy named Sue

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.8.2007 kl. 21:26

12 identicon

Til hamingju Dúa dásamlega  Þar sem þetta er þín færsla þá nefni ég ekki Jennslu í þessu kommenti - úppsss... 

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 27.8.2007 kl. 21:29

13 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Gaman að þið skemmtið ykkur meðan ég bregð mér frá.  Skil ekki af hverju Dúan heldur ekki afmælisveislu með okkur rugludöllunum á netinu.  Við erum svo skemmtileg, þ.e. þið að ég var að missa mig út hlátri meðan ég las kommentin við færsluna.  Dúa hræðu í pönnslur, hamfarakokkurinn þinn.

Jenný Anna Baldursdóttir, 27.8.2007 kl. 21:47

14 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Til Hamingju Dúfa.

Kristín Katla Árnadóttir, 27.8.2007 kl. 21:54

15 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Segi það nú!! Hvers vegna hefur konan ekki hrært í pönnsur?

Þykir henni ekkert vænt um linkana sína?

Kona spyr sig........

Hrönn Sigurðardóttir, 27.8.2007 kl. 22:00

16 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já fíla pönsur með rjóma, sérstaklega svona á netinu þær eru ekki fitandi

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.8.2007 kl. 22:34

17 Smámynd: Rebbý

Meyjur eru bestar - en djöfull erum við erfiðar við okkur sjálfar
Til hamingju með afmælið hérna megin líka Dúa mín og við hinar á næstu dögum og vikum

Rebbý, 27.8.2007 kl. 22:53

18 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

í guðs bænum... ég verð 39 .... þrjátíuogníu. Ekki klína neinum fjörkum eða núllum á mig... ekki strax

Jóna Á. Gísladóttir, 27.8.2007 kl. 23:29

19 identicon

Jú, Jenný Anna, og aðrir skrifarar !

Hlýt; að taka undir með ykkur, meðfram því, að bjóða þetta hörkukvendi velkomið, á fimmtugsaldurinn. Oftsinnis skelegg, í athugasemdum, þá henni býður við að horfa.

Þótt Sjálfstæðiskona sé, kvíddu engu; Jenný. Hún gæti turnast, til þungavigtarsveitar Frjálslynda flokksins, gæfi hún sér tóm til.

Þá væri vel.

Mbk. / Óskar Helgi Helgason 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 27.8.2007 kl. 23:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.