Leita í fréttum mbl.is

FLESTALLIR VIÐSKIPTAVINIR GOLDFINGERS....

 

...hafa, svei mér þá, velflestir, heimsótt kommentakerfið mitt vegna gleðifærslunnar hér fyrir neðan um að Goldfinger fái ekki endurnýjað leyfi fyrir nektardansi. 

Það hafa þeir gert til að fagna með okkur konum.

Eða....?

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Það er alltaf sama sagan með ykkur femínistabeljurnar ... DJÓK!!!

Í Vikunni sem kom út í dag kemur fram að nektardansmeyjar sem vinna mjög langan vinnudag (vinnunótt) hafa nú um 150-170 þúsund í mánaðarlaun. Sá í teknablaði Mannlífs að eigandi Goldfinger er með yfir milljón á mánuði. Umhugsunarvert! 

Guðríður Haraldsdóttir, 2.8.2007 kl. 18:17

2 Smámynd: Ragnheiður

Kva Guðríður, hann er með svona mikið til að hann fari örugglega EKKI úr fötunum !

Ragnheiður , 2.8.2007 kl. 18:31

3 Smámynd: Sunna Dóra Möller

hahaha....já eins gott að koma vel í veg fyrir þann harmleik ! Annars er ég algjörlega sammála gleðifærslunni þinni og mér finnst þetta frábært að verið sé að koma í veg fyrir svona starfsemi. Það er svo merkilegt að það verður ekki komið í veg fyrir kynbundið ofbeldi fyrr en einmitt að gripið er til aðgerða og þessi aðgerð er einn liður í þá átt! Það þarf miklu meira til, en þetta er sannarlega eitt lítið skref á þeirri leið! Ég blæs á allt tal um forræðishyggju í þessum efnum og ég á svo bágt með að skilja hvað fær fólk til að vilja sækja svona staði, mér hefur alltaf fundist það eitthvað svo undarlegt! Það er bara mín skoðun svo sem og án efa er það angi af hinum alræmda feminisma sem að svo margir virðast óttast .....en ég elska !

Sunna Dóra Möller, 2.8.2007 kl. 18:41

4 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Var að koma fyrst inn núna. Þetta eru gleðifréttir með Gullputta. Hefði haldið að þessar aumingjans stúlkur væru með minnst 500 þús. á mánuði fyrir þennan dans - en svo eru þær rétt á verkamannakaupi! Hvað er í gangi þeð þessa svívirðu, ég held að þeir sem hafa varið þetta á grundvelli þess að þær séu að vinna sér inn peninga afþví að það er svo mikið upp úr þessu að hafa og þær komi frá fátkækum löndum og eru að senda peninga heim hljóti nú að vera málum blandið! 

Edda Agnarsdóttir, 2.8.2007 kl. 18:54

5 Smámynd: Eva Þorsteinsdóttir

En þú heppinn! .... að fá alla viðskiptavini Gullputta inn til þín ;)

Opnar þú kannski næst?

The Jenfinger.

Eva Þorsteinsdóttir, 2.8.2007 kl. 18:58

6 Smámynd: Þröstur Unnar

Hello mættur.....

Þröstur Unnar, 2.8.2007 kl. 20:24

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Blessuð láttu þér þetta í léttu rúmi liggja, þetta fékk ég í andlitið, hjá Jónínu Ben; þeir sletta skyrinu sem eiga það, svo sannarlega

Smámynd: Baldur Fjölnisson

 

Umsjónarmaðurinn er á deyjandi krummaskuði þar sem sjóndeildarhringurinn er í fjögur hundruð metra fjarlægð - sem mótar víðsýni hans. Þetta er einfeldningskjáni sem lítið veit og var því falið það hlutverk að jarða málefnin.

Baldur Fjölnisson, 2.8.2007 kl. 20:48

Einhver sagði einhverntíman að oflof væri háð, en sá hinn sami hefði átt að segja líka að skítkast sem drukknar í eigin skít væri ekki marktækt.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.8.2007 kl. 21:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 2985799

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband