Leita í fréttum mbl.is

AFMÆLISSNÚRA ÚJE

1a

Tíminn flýgur.  Í dag er ég níu mánaða snúra.  Heill meðgöngutími liðinn í edrúmennskunni og mér aldrei liðið betur.  Lífið verður bara innihaldríkara og skemmtilegra.  Jesús minn.  Nú verður haldið upp á afmælið.  Er að drífa mig niður í Laugardalshöll þar sem gestir bíða mín og við byrjum á að opna afmælið kl. 08,00 með marsi sem Lúðrasveitin Svanur tekur af sinni alkunnu snilld.

Ekki alveg kannski en einu sinni í mánuði, fyrsta árið leyfi ég mér að finna svolítið til mín. Síðan tek ég þetta á misserunum bara.  En muna Jenny, muna, einn dag í einu.  Sígandi lukka er best.  Með hægðinni hefst það osfrv. osfrv.

Lofjúgæs.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Til hamingju með árangurinn og dekraðu nú við þig að launum, svo þú getir horft með tilhlökkun til næsta áfanga.  Farðu í Spa eða í hressandi göngu í náttúrunni með nesti.  Það er ekkert sem jafnast á við frelsið sem fylgir þessu.  Njóttu augnabliksins og láttu hugann ekkkert vera að reika til fortíðar og framtíðar of mikið.  Það er vitlaus sóun á tíma. Hér og nú hefur þú allt og skortir ekkert. Það er eitthvað til að vera þakklát yfir.  Hugarfar þakklætis dregur svo til þín fleiri þakkarverð atvik og áhyggjuefnin leysast af sjálfu sér.  (Hér er talað af reynslu.)

Jón Steinar Ragnarsson, 20.7.2007 kl. 00:33

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þakk þér kærlega Jón Steinar.  Það er list að lifa í augnablikinu og þegar það tekst er það toppurinn á tilverunni.

Jenný Anna Baldursdóttir, 20.7.2007 kl. 00:39

3 Smámynd: Orri Harðarson

Innilega til hamingju, Jenný mín!

Orri Harðarson, 20.7.2007 kl. 00:40

4 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Til hamingju Jennsla. Jón Steinar hefur rétt fyrir sér. Þú ættir að dekra við sjálfa þig í tilefni áfangans. Knús

Jóna Á. Gísladóttir, 20.7.2007 kl. 00:42

5 identicon

Til hamingju með meðgöngutímann.

Maja Solla (IP-tala skráð) 20.7.2007 kl. 00:59

6 Smámynd: Huld S. Ringsted

Til hamingju með níu mánuðina

Huld S. Ringsted, 20.7.2007 kl. 01:04

7 identicon

Og ég er búinn að halda mig frá kvenfólkinu í einn dag. Ég ætla að halda upp á það með því að detta ærlega í það í kveld. Hver hefur sin djöful að draga.

Ævar Eiður (IP-tala skráð) 20.7.2007 kl. 02:05

8 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Tempus fugit,   Gangi þér vel!  Til hamingju!

.

Ágúst H Bjarnason, 20.7.2007 kl. 02:26

9 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Að nefndu Spa-i þá bendi á að ganga varlega um gleðinnar dyr og vísa til ÞESSARAR færslu, Söru Vilbergsdóttur.

Jón Steinar Ragnarsson, 20.7.2007 kl. 03:46

10 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

til hamingju með áfangann

 knús

Hrönn Sigurðardóttir, 20.7.2007 kl. 07:00

11 Smámynd: Kristín M. Jóhannsdóttir

Frábært hjá þér. Innilega til hamingju.

Kristín M. Jóhannsdóttir, 20.7.2007 kl. 07:12

12 Smámynd: Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir

Ég bendi á uppskriftina af Mintulímónaðinu á síðunni minni...og sorrý ..stjörnuspárkommentið um daginn...ég hafði ekki hugmynd um að þú hefðir verið í þurrkaranum...innilega til hamingju að vera dry-cleaned

Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, 20.7.2007 kl. 07:14

13 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Steinunn Ólína takk ljósið mitt, Hahahahahaha sástu ekki svarkommentið frá mér við þeirri athugasemd?  Ég dey.   Takk fyrir límónaðið.

Takk öll áfram skal haldið.

Jenný Anna Baldursdóttir, 20.7.2007 kl. 07:17

14 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Til hamingju með þenna frábæra árangur Jenný! Þú ert sönn hetja !

Guðsteinn Haukur Barkarson, 20.7.2007 kl. 08:00

15 identicon

Til hamingju! Nú fer þetta fyrst að verða gott!

Omar V (IP-tala skráð) 20.7.2007 kl. 08:59

16 Smámynd: Valgerður Halldórsdóttir

Til hamningju - það er auðvitað gleðiefni að ná markmiðum sínum og finna að lífið verður bara dásamlegra  - full ástæða til að halda upp á það eins oft og manni langar til!

Valgerður Halldórsdóttir, 20.7.2007 kl. 09:16

17 identicon

 Frábært. Til hamingju með meðgöngutímann. Þú ert algjör hetja.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 20.7.2007 kl. 09:21

18 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Mjög frábært hjá þér. Heil meðganga er ekki svo lítið..verður merkilegt að sjá hvað fæðist bráðum hjá konu..ha?

Takk fyrir að tala ekki við mig í símanum í gær.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 20.7.2007 kl. 11:27

19 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þið eruð yndisleg að deila með mér sigrunum, bæði smáum og stórum.

Katrín mín var á svo svakalegri hraðferð að ná í Maysuna áður en hún færi í undergroundið en þá næst ekki í símann á meðan.  Svo kom svo á mig að ég var heillengi að fatta hvert ég hafði hringt.  Híhí, en það var gaman að heyra í Óla.

Jenný Anna Baldursdóttir, 20.7.2007 kl. 11:45

20 identicon

innilega til hamingju frænka....

Eygló frænka (IP-tala skráð) 20.7.2007 kl. 15:08

21 Smámynd: Rebbý

Til hamingju með daginn ... ég dáist af fólki sem hefur vit á að takast á við vanda sinn og ná að vinna að honum frá degi til dags.
You go girl

Rebbý, 20.7.2007 kl. 20:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 2985771

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband