Leita í fréttum mbl.is

FEMÍNISTAKÓRINN

1

Ef Femínistakórinn er til þá er ég í honum, þrátt fyrir að geta ekki sungið nótu án þess að fólk þurfi á áfallahjálp að halda.  Systur Geira á Goldfinger (www.sifjar.blog.is)  er tíðrætt um þennan kór í nýrri færslu sinni, þar sem hún fer mikinn í að undirstrika góðverk bróður síns gagnvart lækninum frá Úkraníu, sem dansar súludans og dóttur hennar.  En eins og flestir landsmenn sáu þá brustu þær mæðgur í grát í Íslandi í dag í vikunni, þegar stúlkan var spurð að því hvort hún vissi hvað mamma hennar ynni við.

Geiri á Goldfinger er kominn með þennan fína blaðafulltrúa, systur sína blaðamanninn og samkvæmt nýjustu varnarfærslu hennar er á henni að skilja að aðalvandamálið sé Femínistakórinn, margnefndi, sem sé að mistúlka og snúa útúr algjörlega eðlilegum hlut, þe að konan dansi nektardans til að afla fjár fyrir píanónámi dótturinnar.

Telpan grét ekki vegna vinnu móðurinnar hún grét af þakklæti og einhverju allt öðru að sögn hinnar tryggu systur Geira Goldfinger.  Látum það liggja á milli hluta.

Ég get hins vegar upplýst að forvitna blaðakonan er ekki í Femínistakórnum og hvort hún syngur yfirhöfuð veit ég ekkert um.  En tóninn í færslunni er ekki fallegur og sem betur fer starfsemi bróður hennar heldur ekki til framdráttar.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég hlusta nú ekki á svona réttlætingar. Finnst þetta bara allt hið sorglegasta mál.

Maja Solla (IP-tala skráð) 13.7.2007 kl. 08:35

2 Smámynd: Ibba Sig.

Jú túkk ðe vörds ræt át off mæ máð, Jenný.

Að auki velti ég því fyrir mér hvort manneskjan sé hæf til að vera blaðamaður ef hún getur ekki sett sig í hlutleysisgírinn og horft á málið utanfrá. Ætli öll hennar skrif séu jafnlituð af hennar persónulegu skoðunum? 

Ibba Sig., 13.7.2007 kl. 09:31

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Alveg nákvæmlega það sama og ég var að hugsa um Ibba.  Eigum við að tékka?

Muhahahahahaha

Jenný Anna Baldursdóttir, 13.7.2007 kl. 09:34

4 identicon

Sorglegasta viðtal og engan veginn réttlætanleg starfssemi hjá honum Geira"góða". Ég er enginn sérstakur femínisti en ég þetta er engan veginn ásættanleg starfssemi.Og að barnið hafi grátið af "þakklæti er mesta kjaftæði og bull sem ég hef heyrt.Og það þarf ekki femínista til að sjá svívirðinguna. Allir með smá comonsens sjá það. Svona réttlætingar eins og hjá systur Geira"góða"eru eitt af því fáa sem gerir mig pirraða.Þvílík sýking er á ferðinni í  skynsemi systur þess "góða"

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 13.7.2007 kl. 09:34

5 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Ég  verða segja mér fannst þetta viðtal mjög sorglegt.

Kristín Katla Árnadóttir, 13.7.2007 kl. 10:02

6 identicon

Það er líka alveg ótrúlegt hvað það þarf alltaf að garga "feministar!" þegar svona umsagnir komast á kreik.
Fer þetta ekki að flokkast undir fasisma?

Maja Solla (IP-tala skráð) 13.7.2007 kl. 10:06

7 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég þarf að kíkja á þetta. Fór bara alveg framhjá mér. En ekki finnast mér þetta góðar tvíbökur.

Ásdís Sigurðardóttir, 13.7.2007 kl. 10:33

8 Smámynd: Hlynur Þór Magnússon

Líklega er ég þá líka í Femínistakórnum. Og skammast mín ekkert fyrir það.

Hlynur Þór Magnússon, 13.7.2007 kl. 10:43

9 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Búin að lesa greininga. Mikil skrif um lítið efni. Sú er á þörfinni að réttlæta súlunuddið. Þessi setning hjá henni "Eða leigja sér íbúð, kaupa bíl og allt sem hver Íslendingur þarf að eignast svo hann komist af...? Endilega látið þig mig vita." á örugglega ekki við hjá þessari konu sem lætur sér nægja hvað sem er til að fjármagna nám dóttur sinnar, hún þar ekki að elta íslenska drauminn eða hvað.?  Held ég myndi frekar vilja vinna á skrifstofu þegar ég yrði stór heldur en að spila á píanó, rándýrt nám og mamma nuddaði súlur til að hafa efni á náminu. Þetta er kannski illa sagt hjá mér, en súludans, er með því sorglegasta sem ég sé í niðurlægingu kvenna.

Ásdís Sigurðardóttir, 13.7.2007 kl. 10:44

10 Smámynd: halkatla

rock on mín kæra ég hvet þig til að halda áfram að syngja!

halkatla, 13.7.2007 kl. 12:07

11 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jenný Anna Baldursdóttir, 13.7.2007 kl. 12:20

12 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Frábær færsla - meira af þessu - þú ert sko femenisti nr. 1 Takk fyrir.

Edda Agnarsdóttir, 13.7.2007 kl. 12:43

13 Smámynd: Guðrún Þorleifs

Ég er nú engin femínisti, þó er ég þeirrar skoðunar að heimurinn væri betur komin á þessháttar starfsemi. Aðskilnaður móður og barns er aldrei góður og setur mark sitt á þá sem í því lenda á ýmsan hátt. Sennilega er ég draumóramanneskja sem dreymir um betri heim fyrir börn þessa heims...

Guðrún Þorleifs, 13.7.2007 kl. 12:46

14 identicon

Að vera eða vera ekki feministi? Ef þú vilt njóta sömu réttindi og annað fólk, og að börnin þín njóti sömu réttinda og önnur börn þá ertu feministi. Jafnréttindi eru mannréttindi og það þarf enginn að skammast sín fyrir það að vera þeirra skoðana að konur séu alveg jafn mikilvægar og karlmenn í þjóðfélaginu. Ég er feministi og er stolt af því að hafa notið þeirra forréttinda að vera alin upp af sannkölluðum feministum þar sem aðal umræðuefnið við matarborðið var að konur eigi að njóta sömu réttindi og karlmenn. Áfram mamma. Ég elska þig. Þín Sara

Sara Einarsdóttir (IP-tala skráð) 13.7.2007 kl. 15:49

15 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Takk Sara mín, þú ert flottust og ég elska þig líka.

Jenný Anna Baldursdóttir, 13.7.2007 kl. 17:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 54
  • Frá upphafi: 2985885

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband