Leita í fréttum mbl.is

UPPÁHALDSLISTI

 1

Það eru allir að gera lista.  Afhjúpandi klukklista.  Hm.. ég skrifa stundum lista á mínu bloggi, hef t.d. skrifað "eiturbeinalista" svo eitthvað sé nefnt.

Nú kemur listi yfir smá uppáhalds:

1. Bækurnar mínar.

2. Maskarinn minn.

3. Svarti DKNY hörkjóllinn.

4. Passamyndin af mér þegar ég var 13 ára með bítlatopp.

5. Rjúpur.

6. Lykt af grasi.

7. Veggjakrot.

8. Blús og djass, Bítles, Stóns og Van Morrisson, Dilli, Amy Whinehouse ásamt húsbandinu auðvitað.

9. SKÓFJÖLDINN í samlede verker eða frá a-imeldu markos.

10. Spiladósir með ballettmær sem snýst.

11. Snæris- og kartöflulykt.

12. Nóttin og skammdegið.

13. Kaldhæðni með dashi af kvikindisskap í hæfilegu magni.

14. "Understatement" (hef ekki orð yfir fyrirbærið á íslensku, einhver?)

15. Jólakveðjur á Gufunni á Þorláksmessudag.

16. Gamlar amerískar bíómyndir.

Hér er stiklað á stóru.  Skemmtilegt að dunda sér við að finna út hvað hitar manni að innan.  Ég set að sjálfsögðu ekki "selvfölgeligheter" eins og mannleg tengsl, kærleika og því um líkt á lista.  Það er asnalegt.

Meira seinna og þetta er hótun.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

nr 14. Bein þýðing væri Undirfylkjameining

Jóna Á. Gísladóttir, 12.7.2007 kl. 01:31

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

FÍBBL (HJARTA)

Jenný Anna Baldursdóttir, 12.7.2007 kl. 01:36

3 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

 Maðurinn minn er alltaf að spyrja mig af og til, "er svona gaman á blogginu"?

Edda Agnarsdóttir, 12.7.2007 kl. 01:38

4 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

En jenný mín ég gleymdi listanum, hann er súper

Edda Agnarsdóttir, 12.7.2007 kl. 01:39

5 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

nr 14. Vanhvörf?

Hrönn Sigurðardóttir, 12.7.2007 kl. 08:12

6 Smámynd: Sædís Ósk Harðardóttir

snærislykt skondið, þarf að þefa betur af snæri.  Annars alltaf jafn gaman að lesa bloggið þitt

Sædís Ósk Harðardóttir, 12.7.2007 kl. 08:58

7 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Hvernig væri að klukka með ósk um svona lista. Þessi er frábær. Sædís, snærislykt er frábær. 1,5,6,10,12 og 15 get ég tekið heilshugar undir.

Ásdís Sigurðardóttir, 12.7.2007 kl. 13:25

8 identicon

smá uppáhalds....????

7. Veggjakrot!!!

Bíddu aðeins... ertu eitthvað biluð?? Athæfi sem kostar samfélagið milljónir á hverju einasta ári!!! Bæði einstaklinga og sveitarfélög í þrautlausri baráttu við það að þrífa og mála yfir svona krot, stundum dag eftir dag. Nei og aftur nei!!! Svonalagað eru skemmdarverk og ekkert annað..... og meira að segja saknæm skemmdarverk ef til glæpamannanna næst.

Drífðu þig svo til sálfræðings eða geðlæknis. Svonalagað getur ekki verið heilbrigt!!

Haraldur S. (IP-tala skráð) 13.7.2007 kl. 08:34

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Veggjakrot er götulist sem getur verið falleg.  Ég bíð með geðlækninn. 

Jenný Anna Baldursdóttir, 13.7.2007 kl. 08:41

10 identicon

þú ert semsagt að hvetja til skemmdarverka, því þessir hryðjuverkamenn eru að skemma veggi sem þeir eiga ekki. Mega þeir koma og spreyja hvað sem þeir vilja utaná húsið heima hjá þér???????

Haraldur S. (IP-tala skráð) 13.7.2007 kl. 09:23

11 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Rólegur Haraldur S, rólegur.  Nei ég er ekki að hvetja til hryðjuverka (finnst það reyndar óviðeigandi orð í þessu samhengi) heldur er ég einfaldlega að segja að veggjakrot er ákveðið listform sem er hluti af stórborgarmenningu upp á gott og vont.  Hin praktíska hlið hennar sem er veggjaþvottur og óþægindi ýmiskonar er slæm að sjálfsögðu og eignarspjöll eru alltaf vond.  En listformið sem slíkt finnst mér oft fallegt. 

Ok?

Jenný Anna Baldursdóttir, 13.7.2007 kl. 09:27

12 identicon

Veggjaþvottur? Gaman að sjá JAB þvo lakksprey af bæsuðum trévegg.

Þetta er saknæmt og mér mislíkar að sjá þig hvetja til saknæmra verka!!!! Flokka þetta undir kellingaröfl.

Haraldur S (IP-tala skráð) 13.7.2007 kl. 09:34

13 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Flokkaðu bara Haraldur S, flokkaðu og flokkaðu.  Hvar á ég að staðsetja þig? Hm.. hugs..hugs.. Þú ert með þetta á heilanum maður.  Slakaðu á og vertu úti að leika

Jenný Anna Baldursdóttir, 13.7.2007 kl. 09:36

14 identicon

En hvað með kostnaðinn Jenny? Ég hef lent i að þurfa að láta mála hjá mér eftir árás veggjakrotara. Kostaði mig 80.000 kr.

Solla (IP-tala skráð) 14.7.2007 kl. 11:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 2985766

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband