Leita í fréttum mbl.is

SÁRT AÐ SJÁ

 

Ég horfði á viðtal við konuna frá Úkraníu sem fjármagnar píanónám dóttur sinnar með því að dansa á Goldfinger. Viðtalið má sjá á visir.is, Ísland í dag.  Þar var talað við dótturina einnig og það var verulega sárt að sjá þær báðar bresta í grát þegar stúlkan var spurð hvort hún vissi hvað mamma gerði.

Það var líka vont að sjá hversu ötullega konan reyndi að sannfæra fréttamanninn um að henni líkaði vinnan vel.  Áður en hún kom hingað var hún læknir í sjúkrabíl. 

Dóttirin sagði í lok viðtalsins að svona væri lífið þeirra núna og þær væru ekki að líta til baka.

Enginn skyldi reyna að telja fólki trú um að það felist hamingja og gleði í því að vinna fyrir sér með þessum hætti.  Í þessu viðtali fengum við að sjá sannleikann, grímulausan sannleikann.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Sæl Jenný! Long time no comment! Ég get ekki einu sinni byrjað að lýsa skoðun minni á þessu en um leið og ég dáist að konunni fyrir að gera hvað sem er fyrir dóttur sína finnst mér sorglegt að hún þurfi að gera þetta til að veita henni nám sem á að vera sjálfsagt fyrir alla. Ójöfnuður hvað???

Laufey Ólafsdóttir, 11.7.2007 kl. 08:56

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Sammála Laufey, þessi kona leggur allt í sölurnar fyrir dóttur sína.  Hún á betra skilið en þessi örlög.

Jenný Anna Baldursdóttir, 11.7.2007 kl. 09:07

3 identicon

Ég sá þetta sorglega viðtal. Vægast sagt ömurlegt. En ég skyldi það þannig að það væri verið að réttlæta einka og súludans Geira. Að það hafi átt að sýna hversu góður maður Geiri væri að vera að "hjálpa"mömmunni að koma barninu í píanónám. OMG það mistókst allavega alveg og þetta var ömurlegt. Og að konan væri svoooooo ánægð í vinnunni. Vesalings konan hún á alla mína samúð og barnið hennar niðurbrotna líka. En þvílíkar varir voru á konunni. Ég gat ekki hætt að stara á þær.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 11.7.2007 kl. 09:40

4 identicon

Já, aumingja konan. En henni hefur allavega tekist að hugga sjálfa sig með því að ná sér í fullt af botox í varirnar og D&G föt. Það er nú gott.
Auðvitað á maður ekki að skipta sér af því hvernig aðrir eyða peningunum sínum, en ef hún myndi aðeins slaka á lífsstílnum gæti hún örugglega unnið fyrir píanónámi dóttur sinnar á aðeins sómasamlegri máta.
Mitt álit, now shoot me!

Maja Solla (IP-tala skráð) 11.7.2007 kl. 09:56

5 Smámynd: Ester Júlía

Maðurinn minn kallaði á mig og sagði með undrun i málrómnum  "sjáðu konuna"! Hann var  að horfa á sjónvarpið og ég rétt kíkti úr eldhúsinu á kassann ..þar sem blöstu við mér risastórar varir og stúlka að spila á píanó.  Hélt svo áfram að elda og spáði ekkert i´þessu meira.  Veit í dag um hvað málið snérist og finnst þetta vægast sagt mjög spes. 

Ester Júlía, 11.7.2007 kl. 11:52

6 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Sá þetta ekki - óhugnanlegt.

Edda Agnarsdóttir, 11.7.2007 kl. 12:40

7 Smámynd: Ósk Sigurðardóttir

Ætla ekkert að segja hvað mér finnst um starf þessarar konu, en OMG þetta tilfinningaklám á stöð 2 var alveg að gera út af við mig...hvað ætluðu þeir eiginlega að láta alla horfa á þær gráta lengi? Þvílíkt verið að spila með fólkið í landinu með svona vitleysu....

Ósk Sigurðardóttir, 11.7.2007 kl. 14:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.5.): 6
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 33
  • Frá upphafi: 2985898

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband