Leita í fréttum mbl.is

BRAGI SIGRAÐI Á FISKMARKAÐSMÓTINU

1

Í dag sigraði Bragi á Fiskmarkaðsmótinu en þar er keppt í langstökki á milli þorsk- og ýsukara.  Bragi var skreflengstur allra og vann hann með miklum yfirburðum.

 Við tökum þennan aftur.  Þetta var taflmót og Bragi sigraði en mótið var haldið í Fiskmarkaðnum innan um þorsk- og ýsukörin.

Lokatilraun. Bragi Þorfinnsson sigraði Ingvar Þór Jóhannesson í lokaumferð Fiskmarkaðsmótsins í kvöld.  Þetta er hárrétt eftir haft og það þýðir ekki að kæra mig fyrir óviðeigandi tengingu við frétt góðir hálsar.

En er ekki skemmtileg tilhugsun að það hefði getað verið keppt í teygjustökki, eða langstökki á milli kara?  Mér hefði fundist það rosalega krúttlegt.  Sko krúttlegt að lesa um en ekki að lykta af.

Takk fyrir mig og ég lofa því Mogginn minn að fíflast ekki svona gróflega aftur.

OK?


mbl.is Bragi sigraði á Fiskmarkaðsmótinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Hvernig ferðu að þessu? You are geniues

Edda Agnarsdóttir, 28.6.2007 kl. 00:33

2 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Jú gerrrrrrðu það! Fíflastu svona aftur! We are counting on you .

...annars sprakk ég úr hlátri þegar ég smellti á fréttina. Ætla ekki að spilla þeirri kátínu fyrir öðrum .

Laufey Ólafsdóttir, 28.6.2007 kl. 00:39

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Love u girls, það er einhver púki sem grasserar í mér í dag.  Held að ég sé smá manisk til karaktersins.  Flippa reglulega út.

Jenný Anna Baldursdóttir, 28.6.2007 kl. 00:47

4 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Vááááá 7 vinninga í 9 skákum bleh.... Nú munar engu sko að ég tilkynni þig. Það eru sko takmörk....

Jóna Á. Gísladóttir, 28.6.2007 kl. 00:48

5 identicon

Mér finnst kannski spurning hvort tenging í teygjustökk er óviðeigandi en definetly EKKI teygjutvist!!! - ohhhh nú fékk ég nostalgíukast - mig langar í teygjó!!!!  

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 28.6.2007 kl. 02:01

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Mig líka og sipp, ekki spurning.

Jenný Anna Baldursdóttir, 28.6.2007 kl. 02:11

7 Smámynd: Sigurður Sveinsson

Teygjustökk hefði verið mjög flott. Sá sem hefði komið hausnum oní flest körin hefði sigrað. Útnefndur þorskhaus mótsins.

Sigurður Sveinsson, 28.6.2007 kl. 06:28

8 Smámynd: Snorri Bergz

Vek athygli á skemmtilegri bloggsíðu mótsins, http://hellir.blog.is og síðan umfjöllun um þann keppanda, sem kom mest á óvart, Misiuga, Pólverja sem býr hér á landi, á heimasíðu mesta stórveldis íslenskrar skáksögu, Taflfélags Reykjavíkur á www.taflfelag.is

En úthverfadvergurinn í Helli stóð sig vel í þessu mótshaldi og allri umgjörð.

Snorri Bergz, 28.6.2007 kl. 10:07

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hahahaha, þið eruð bara dásamleg.  Teygjustökk það er málð!

Jenný Anna Baldursdóttir, 28.6.2007 kl. 11:50

10 Smámynd: Ingvar Þór Jóhannesson

Sæl Jenný! Velkomin á svartan lista hjá skákmafíunni.......ýttu á 1 til að hætta við en ýttu á 2 til að staðfesta!

Ingvar Þór Jóhannesson, 28.6.2007 kl. 15:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband