Leita í fréttum mbl.is

OJ BARASTA

Það eru kannski örfáir sérvitringar sem borða hvalkjöt.  Þeir lofsyngja það út af einhverri nostalgiu er ég viss um.  Lýsibragðið lætur ekki að sér hæða, sama hversu fólk vill afneita því.  Nú er Hagkaup hætt að selja Hrefnukjöt.  Áhuginn á því nánast enginn.  Gætum við svo hætt að veiða hvali, þar sem enginn vill kaupa og hætt að láta eins og óþekkir krakkar.  Plís!!!!!


mbl.is Íslendingar vilja ekki hrefnukjötið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Sama hér, plís, þetta er tilgangslaust ströggl.

Ásdís Sigurðardóttir, 16.6.2007 kl. 14:17

2 Smámynd: Ívar Pálsson

Hráa kvalkjöts- sushi-ið á Þremur frökkum hefur alltaf komið svo vel út, að enn hef ég engan hitt sem líkaði það ekki, eftir fjöldamörg ár mín af slíkum athugunum.  Að vísu er það yfirleitt af stærri hvölum, en amk. um tíma var einungis um hrefnukjöt að ræða.  Rétt marinering og meðferð skilar sér í frábærum rétti. Að auki er þetta hollasta kjöt sem hugsast getur, með hátt Omega3 fituhlutfall og næringarríkt.

Lærum að nota þetta aftur eins og síldina eftir að hún hvarf 1968, þar sem heil kynslóð neytenda datt út. Nú hefur bæði síldin og markaðurinn hennar náð sér á strik aftur. Vonandi þora veitingahús að nýta þetta góða hráefni og láta ekki tískubólur eins og hvalaást hafa áhrif á sig.

Ívar Pálsson, 16.6.2007 kl. 14:28

3 Smámynd: AK-72

Hrefnukjöt er gott ef það sé rétt meðhöndlað, og algjörlega laust við lýsisbragðið. Til að losna við lýsisbragðið þarf eingöngu að leggja það í vökva yfir eina nótt(mjólk eða vatn) og eftir það er alveg sambærilegt, ef ekki betra en góð nautasteik. 

Vandamálið auðvitað með söluna á kjötinu, er eins og bent er á í fréttinni, að ný kynslóð sem þekkir ekki gæði kjötsins, er tekinn við og einnig að við borðum mun meira af léttara keti í dag(kjúkling t.d.). Svo er auðvitað spurningin hvort þetta hafi verið selt rétt í búðunum, þ.e. ekki í þessum frosnu öskjum sem komu fyrst allavega, heldur unnið og skorið niður fyrir grillmarkaðinn og haft í kjötborðum í neytendavænum umbúðum t.d.

AK-72, 16.6.2007 kl. 14:42

4 identicon

Já hvalkjöt oj

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 16.6.2007 kl. 15:08

5 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Ég fékk einu sinni hvalkjöt (veit ekki af hvaða tegund hvals) á veitingastað og fannst það gómsætt. Trúi eins og fleiri hér að þetta snúist um markaðssetningu og þekkingu á matreiðslu.

Berglind Steinsdóttir, 16.6.2007 kl. 15:42

6 Smámynd: Eva Þorsteinsdóttir

Er ekki lýsi svo hollt ;)

Eva Þorsteinsdóttir, 16.6.2007 kl. 17:24

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Er geðveik kjötæta og þjáist ekki af kærleik til hvala.  Finnst þetta vont kjöt, mér klígjar við lýsinu og mér er fokk sama hvort það sé hollt

Jenný Anna Baldursdóttir, 16.6.2007 kl. 17:33

8 Smámynd: Brynja Hjaltadóttir

Lýsi hér með ógeði mínu á hvalkjöti yfir...

Ætli lýsi sé nokkuð svo óhollt í miklu magni..ætli maður fái ekki í mesta lagi niðurgang?

Ég gúffa nú alltaf í mig hákarlalýsi í pilluformi á morgnana en veit ekki hvort ég er eitthvað skárri fyrir það. En fljótandi lýsi er hinn mesti hroðbjóður og fer ekki inn fyrir mínar varir.

Brynja Hjaltadóttir, 16.6.2007 kl. 19:43

9 Smámynd: Sigurjón

Þetta er spurning um matreiðsluna.  Það sem vantar í þessa frétt er sú staðreynd að Hagkaupsverzlanir selja kjötið allt of dýrt.  Það er gallinn.

Sigurjón, 17.6.2007 kl. 00:31

10 Smámynd: Björn Kr. Bragason

Ég er af þeirri kynslóð sem aldrei fékk að smakka hrefnukjöt, en af nýjungagirni ákvað ég að prófa það þegar það kom fyrst á markað aftur fyrir 5 árum eða hvað það var. Marineraði það í teriyaki og hvítlauk og grillaði og úr varð uppskrift sem hefur brætt bragðlauka allra sem prófað hafa, ungra sem aldinna. Í gamla daga lét fólk kjötið liggja í mjólk til að losna við lýsisbragðið, en ég held að hvaða marinering sem er geri sama gagn, allavega er ekki vottur af lýsisbragði af steikunum sem ég elda, bara gott kjöt, á kjötfarsverði.

Björn Kr. Bragason, 17.6.2007 kl. 07:14

11 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ok Björn og Sigurjón, ég viðurkenni hér með að hafa frekar mikla fordóma í garð hvalkjöts en það kemur til vegna ættgengrar klígjugirni sem gengur út yfir allan þjófabálk.  Mamma eldaði þetta stundum og ég man eftir að hafa fundist það gott.  En hún talaði stundum um hluti eins og "til að ná úr kjötinu lýsisbragðinu" eða "það er ekkert lýsisbragð af kjötinu"  og það var nóg til að ég dæmdi það til ævilangrar útlegðar.

Jenný Anna Baldursdóttir, 17.6.2007 kl. 10:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 2985804

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband