Leita í fréttum mbl.is

ÉG ÞOLI SVO HJARTANLEGA..

..að horfa á miðnætursólina

..að lykta af blóðbergi

..að halda á börnum og finna lyktina af þeim

..að láta rigna á mig

..að fjúka

..að sofa

..að hlægja

..að lesa

.. að snúa upp á hárið á mér

..að mála á mér augnhárin

..að vera á sjó

og svo margt, margt fleira.

ÉG ÞOLI SVO HJARTANLEGA EKKI

..hentistefnu stjórnmálamenn

.. umræðustjórnmál

..nýrík snobbhænsni

..fólk með fórnarlambsblóðbununa aftan úr sér

..soðinn fisk

..sólregn

..tímann frá nýársdegi og fram í miðjan janúar

..magaspeglanir

..helgislepju og væmni

..lýsi "in any way, shape or form"

..rafmúsíkk

og nokkur atriði til viðbótar sem þola ekki birtingu.

ÉG SKIL SVO HJARTANLEGA EKKI

..Georg Bush

..Pétur Blöndal

..Ellý Ármanns

..Jón Val

..Biskupinn og aðra kirkjunnar þjóna sem praktisera mannréttindabrot á samkynhneigðum

..Jay Leno

..kvenhatara og karlrembusvín

..rasista

..nafnlaus skrif sem beinast gegn persónu fólk

Að öðru leyti er ég með allt á hreinu.

Vildi bara koma þessu að.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eva Þorsteinsdóttir

Hmm.... nokkuð góð!

Best að ég fari að taka minn saman ;)

Eva Þorsteinsdóttir, 12.6.2007 kl. 20:02

2 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Jenný mín ég sé ekki stafina hjá þér þetta er allt of smátt letur hjá þér.

Kristín Katla Árnadóttir, 12.6.2007 kl. 20:05

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Að FJÚKA Jenný?

OMG

Hrönn Sigurðardóttir, 12.6.2007 kl. 20:59

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jabb elska að láta mig berast með vindinum Hrönnsla!  Beinlínis að fjúka en.. finnst þér að ég ætti að tala við Húsa um málið.  Helduru að ég sé veik, með einhvern spennandi sjúkdóm?

Jenný Anna Baldursdóttir, 12.6.2007 kl. 21:01

5 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Ég er ansi sammála þér með ansi margt þarna, dúllið mitt! Nema helst Jón Val, hann er víst bara að djóka á blogginu sínu ...

Guðríður Haraldsdóttir, 12.6.2007 kl. 21:02

6 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Nei, nei..... láttu hann alveg eiga sig. Ertu ekki með þinn eigin heimilislækni?

lovjú still

Hrönn Sigurðardóttir, 12.6.2007 kl. 21:03

7 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Já og hver er þessi Jón Val? (ur)?

gosh mætti halda að ég væri alveg úti á túni........

Hrönn Sigurðardóttir, 12.6.2007 kl. 21:04

8 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

...alveg heimatúni....

híhíhíhí

Hrönn Sigurðardóttir, 12.6.2007 kl. 21:05

9 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ferlega er þetta gott hjá þér, miið er ég sammála þér. Í dag þoli ég ekki skólastjórann í Verkmenntaskólanum á Aey og alla þá sem eru í kring um hann sem eru að ganga á bak orða sinna með að leyfa einhverfum frænda mínum að stunda nám þar næsta vetur, hann sem útskrifaðist núna í vor úr 10.bekk og fékk myndlistarverðlaunin, ég er ekki hætt að fjalla um þetta mál. Það kemur meira frá mér þegar ég kem heim. Jenný love U

Ásdís Sigurðardóttir, 12.6.2007 kl. 21:13

10 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Sammála öllu nema að vera á sjó því ég er bæði sjóveik og sjóhrædd.

Svava frá Strandbergi , 12.6.2007 kl. 21:39

11 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Er smmála öllu nema að vera á sjó og fjúka. Það mætti detta í næsta flokk fyrir neðan

Ég skal pússla þig enn frekar með Jón Val. Við Jón Valur höfum rifist heiftarlega í mörgum kommentakerfum hér víða á mbl, aðallega um samkynhneigð og kynfrelsi. Svo kom þetta komment frá honum til mín um daginn.  Hafði ekki hugmynd um að hann og dóttir hans væru að "heimsækja" mig en ég býð þau velkomin.

Er sko líka með upp í kok af umræðustjórnmálum. Garrrrgh! Knús til þín

Laufey Ólafsdóttir, 12.6.2007 kl. 21:49

12 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Tek svo hjartanlega fram að ég var að grínast í fyrri athugasemd ...

Guðríður Haraldsdóttir, 12.6.2007 kl. 21:50

13 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Að fjúka, já, það er rosalega gaman að setja upp úlpuna, upp fyrir haus, á glerhálu svelli og láta sig fjúka, ÞAÐ er gaman, og allt hitt líka.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 12.6.2007 kl. 21:53

14 Smámynd: Hugarfluga

Snilld! Ég þoli reyndar soðinn fisk en ekki að vera á sjó ... og svo er ég alveg á því að nokkrir í síðasta flokknum eiga heima í miðflokknum .. að mínu mati.

Hugarfluga, 12.6.2007 kl. 22:30

15 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Við erum allar kolruglaðar stelpur.  Gurrí eins gott að þú tókst það farm (skelfingarkarl) því ég hélt að þú værir að flippa.

Jenný Anna Baldursdóttir, 12.6.2007 kl. 22:46

16 identicon

Loksins fann ég eitt sem er ekki líkt með okkur bloggvinkonunum!! - ég er sjúklega hrædd við rok og þoli svo hjartanlega ekki að fjúka Líklega er ástæðan sú að ég var soddan písl þegar ég var stelpa að það mátti ekki hreyfa vind þá var ég í lífshættu! Man eftir minnst tveimur skiptum sem ég tókst á loft, slapp með skrekkinn í bæði skipti en ég er ekki ein af þeim sem tók úlpuna upp fyrir haus eins og nafna mín Björnsson, ég ef líklega bara farið heim til mín þegar hinir fóru í þann leik.

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 12.6.2007 kl. 23:01

17 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Hvað er umræðustjórnmál?

Jóna Á. Gísladóttir, 12.6.2007 kl. 23:42

18 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Hurrðu Jenný, ýttirðu á orðið "þetta" í kommentinu mínu? Mæli með að Gurrí geri það líka

Laufey Ólafsdóttir, 13.6.2007 kl. 01:54

19 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Að sjálfsögðu gerði ég það Laufey.  Ýti alltaf á linka í texta.  Smjúts!

Jenný Anna Baldursdóttir, 13.6.2007 kl. 07:11

20 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

ok...  Fyrra komment Guðríðar gæti nefnileg alveg staðist skv. þessu svona fljótt á litið. Nema hann sakni mín þessi elska og sé að minna á sig. Ég ætla að skella mér í "heimsókn".

Laufey Ólafsdóttir, 13.6.2007 kl. 09:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 7
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 2985874

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband