Leita í fréttum mbl.is

SÝNUM VANDLÆTINGU Á BORÐI...

1

..en ekki bara í orði að þessu sinni.  Kínversk börn eru látin vinna við að framleiða söluvarning fyrir Ólympíuleikana sem haldnir verða í Kína á næsta ári.  Þetta kemur fram í rannsókn á aðstæðum verkafólks í fjórum kínverskum verksmiðum sem framleiða löglega minjagripi tengda leikunum.  Börn og unglingar vinna allt að 15 tíma á dag við afar lélegar aðstæður.

"Þessar staðreyndir koma fram í skýrslu sem lögð var fyrir meðlimi Alþjóða Ólympíunefndarinnar þegar þeir komu saman í London í dag. Í skýrslunni kemur fram að eftirlitsmenn hafi fundið um 20 börn allt niður í 12 ára gömul í verksmiðjunni Le Kit Stationery, í Guangdong. Þau unnu sömu vinnu og fullorðið fólk á lúsarlaunum. Einnig hafi um 3.000 verkamenn hjá verksmiðju í Shenzen fengið um 45% af lágmarkslaunum."

Væri ekki lagi að "dissa" Ólímpíuleikana?  Íþróttir og markmið þeirra eru algjörlega á skjön við þennan nöturlega raunveruleika.  Mér finnst að þjóðum með sómatilfinningu hljóti að finnast þetta ósamræmanlegt hinum sanna íþróttaanda,  og barnaþrælkun er eitthvað sem enginn getur sætt sig við.  Ég bíð spennt eftir viðbrögðum Íslenskra íþróttafrömuða.  Eitthvað hljóta þeir a.m.k. að taka til bragðs.


mbl.is Börn í þrældómi búa til vörur fyrir Ólympíuleikana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Hrikalegt... en samt sem áður alkunna.  Og ef það ætti að bregðast við þessu sem slíku væri varla hægt að gera það án þess að rífa alla þátttakendu Olympíuleikana úr íþróttaskónum líka. Öll stóru íþróttamerkin starfrækja "sweat shops" til að framleiða vörurnar sínar.....

Heiða B. Heiðars, 11.6.2007 kl. 16:07

2 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Þetta er bara hræðilegt.

Kristín Katla Árnadóttir, 11.6.2007 kl. 16:21

3 identicon

Án þess að ég sé að mæla þessu bót þá man ég nú þá tíð ekki fyrir svo mörgum árum þegar börn niður í 12 ára gömul og jafnvel yngri unnu langa vinnutíma í frystihúsum og á síldarvertíðum og þótti það bara hið besta mál að þau lærðu snemma að vinna.

Það sem ég geri ráð fyrir í Kína hins vegar er að þetta sé daglegt brauð þessara barna og kemur í veg fyrir menntun þeirra og æsku.

Anna K. (IP-tala skráð) 11.6.2007 kl. 16:34

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Sú staðreynd að íslensk börn (niður í 10 ára á Bæjarútgerðarreitnum í denn) réttlætir ekki barnaþrælkun.  Enda öllu alvarlega mál hér á ferð.  Þrælkun er alvarlegt orð.

Jenný Anna Baldursdóttir, 11.6.2007 kl. 17:34

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Sorry gleymdi hluta setningar: Sú staðreynd að íslensk börn unnu erfiðisvinnu í denn réttlætir ekki nútíma barnaþrælkun (átti að standa þarna að sjálfsögðu)

Jenný Anna Baldursdóttir, 11.6.2007 kl. 17:35

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Heiða verð að svara þér með íþróttaskóna, fótboltana, fatnaðinn (Hillfiger td) og segi við þessu:  Rífum þá úr skónum og tökum af þeim boltana og rífum þá úr fötunum ef það getur orðið til þess að koma í veg fyrir þrælkun á börnum.

Jenný Anna Baldursdóttir, 11.6.2007 kl. 17:37

7 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Til er ég

Heiða B. Heiðars, 11.6.2007 kl. 17:42

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ók pöntum flugfar og förum til... hugs... hvar eigum við að byrja?

Jenný Anna Baldursdóttir, 11.6.2007 kl. 17:47

9 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Humm... Væri alveg til í að byrja á honum addna.... man-ekki-hvað-hann-heitir-ameríska-sundstjarnan... rífum hann úr speedo-unum

Heiða B. Heiðars, 11.6.2007 kl. 21:40

10 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Gat nú verið kjéddling, alltaf svo KYN-eitthvað

Jenný Anna Baldursdóttir, 11.6.2007 kl. 22:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 46
  • Frá upphafi: 2985792

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband