Leita í fréttum mbl.is

ÉG STUNDA EKKI HAUSATALNINGAR...

22

...þegar Silfur Egils er annars vegar en panell nr. 2 núna áðan samanstóð af 5 körlum (að Agli meðtöldum).  Það er ekki fjöldi karlanna sem verður mér tilefni til þessa bloggs heldur besserwissaraháttur sumra þáttakenda.  Það voru Sigurður G. Tómasson og Pétur Tyrfingsson sem þar fóru á kostum.  Pétur Tyrfingsson tók fram að hann væri ekki hrifinn af samsæriskenningum, en setti fram nokkrar í leiðinni.  Sama gerði Sigurður G. Tómasson.  Þa´best´asegeggimeir.

Andrés og Pétur hinn voru málefnalegir og fá heilan hóp af "poengum" fyrir það.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Ég kveiki ekki einu sinni á sjónvarpinu. Hlustaði bara þess í stað á Katrínu Jakops og Sæunni í Framsókn hjá Ævari Erni í útvarpinu.

Edda Agnarsdóttir, 20.5.2007 kl. 16:38

2 Smámynd: Hrólfur Guðmundsson

Ætla bara að lýsa því yfir að égmun vera næstum því kurteis á þessari síðu héðan í frá.

Hrólfur Guðmundsson, 20.5.2007 kl. 18:16

3 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Missti af Silfrinu ... og missti líka af því að heilsa Agli þegar hann gekk inn um dyrnar heima hjá sér í gær þegar ég var að fara til vinkonu minnar sem býr beint á móti. Er með allt of dauf gleraugu. Fólk um allan bæ heldur að ég sé algjör dóni. 

Guðríður Haraldsdóttir, 20.5.2007 kl. 18:19

4 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Ég sá ekki silfrið. Já Arna það er á stöð 2.

Kristín Katla Árnadóttir, 20.5.2007 kl. 19:59

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hehe þið eruð öll megakrútt og þú Hrólfur ert eðal þegar þú ert "næstumþvíkurteis". That´s good enough for me!

Jenný Anna Baldursdóttir, 20.5.2007 kl. 20:33

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Já Svampur minn, þegar maður er ekki til þe. er án kennitölu, skóstærðar, andlits, og nafns, þá vill maður verða smá á reyki og missa af einu og öðru.  Þetta á einkum við um nýyrðið poengum. 

Jenný Anna Baldursdóttir, 20.5.2007 kl. 21:43

7 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

hehehehehe góð

Hrönn Sigurðardóttir, 20.5.2007 kl. 21:55

8 Smámynd: halkatla

það eru allir hrifnir af samsæriskenningum en ekki allir eru nógu hugrakkir til að viðurkenna það

halkatla, 20.5.2007 kl. 21:58

9 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Það var gaman að sjá Grétar Mar taka Kristján Þór og pakka honum saman.  Kristján er þarna inni sem leiguþý fyrir L.Í.Ú.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 20.5.2007 kl. 22:14

10 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Mér fannst Grétar Mar ekkert nema strigakjaftur en játa mig vitlausa.  Hann er mikill husjónamaður og logar af sannfæringu.  Alltaf þörf fyrir sollis menn ef þeir þjóna góðum málstað og það gerir Grétar svo sannarlega.

Jenný Anna Baldursdóttir, 20.5.2007 kl. 22:17

11 Smámynd: Þórdís Bára Hannesdóttir

Horfði á Silfrið og fannst gaman, létt yfir öllum nena helst Andra og Siv.  Horfði líka á Boston Legal. Flamingoarnir eru engum líkir, frábær húmor. Uppáhaldsþátturinn minn.

Þórdís Bára Hannesdóttir, 20.5.2007 kl. 22:54

12 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Já sammála Þórdís Bára, þetta eru brilljant þættir sem eru að taka á málunum dagsins í dag.

Beta stundum sér maður ekki demantinn fyrir semelíusteinunum.  Þetta með að hafa ekki séð silfrið bara þáttinn fékk mig í eitt gott hláturskast.  Sínum augum lítur hver Silfrið.  Fyrir mér þarfnast þetta Silfur akút pússningu.

Jenný Anna Baldursdóttir, 21.5.2007 kl. 02:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 2985888

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband